Fréttablaðið - 23.06.2006, Qupperneq 20
23. júní 2006 FÖSTUDAGUR20
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
> Hlutfall íslenskra, norrænna og
bandarískra leikinna mynda í bíó árið
2004
Íslendingur verður meðal þeirra 15 þátttakenda
sem keppa í raunveruleikaþættinum Rock
Star: Supernova sem sýndur verður í Banda-
ríkjunum í sumar. Það er hann Guðmundur
Magni Ásgeirsson, betur þekktur sem Magni í
Á móti sól, sem syngur fyrir hönd Íslendinga í
þáttunum, en áheyrnarprufur voru haldnar hér
á landi fyrir nokkrum mánuðum þar sem fjöldi
manns tók þátt.
Hvað er Rock Star: Supernova?
Rock Star: Supernova er önnur þáttaröðin
af raunveruleikaþáttunum Rock Star þar
sem keppt er um stöðu söngvarans í þeirri
hljómsveit sem spilar í hverri þáttaröð. Síðast
var það ástralska hljómsveitin INXS sem leitaði
að söngvara en í ár var sett saman hljómsveit
sérstaklega fyrir þáttinn. Hún samanstendur af
Jason Newstead úr Metallica, Tommy Lee úr
Mötley Crüe og Gilby Clarke úr Guns N‘Roses.
Í hverjum þætti syngja keppendur valin lög
með hljómsveitinni og að því loknu
kjósa sjónvarpsáhorfendur um það hver
dettur úr leik. Að lokum verður aðeins
sigurvegarinn eftir.
Hvað fær sigurvegarinn í sinn hlut?
Sá keppandi sem kemst í gegnum alla
niðurskurði verður fjórði meðlimur-
inn í hljómsveitinni Supernova,
en hún mun taka upp að
minnsta kosti eina plötu að
þáttaröðinni lokinni og fara
að því loknu í tónleikaferð
um heiminn. Það er ljóst að
til mikils er að vinna, því erf-
itt er að verða ekki heimsfrægur sem söngvari
hljómsveitar á borð við Supernova.
Hver er Magni?
Magni hefur í mörg ár verið söngvari Á
móti sól, einnar helstu sveitaballahljóm-
sveitar landsins. Hljómsveitin var stofnuð
árið 1995, en Magni gekk ekki í hana fyrr en
haustið 1999. Hann hefur kannski lítið verið
þekktur fyrir þess háttar söng sem rokk-
ararnir úr Metallica, Mötley Crüe
og Guns N‘Roses leita að, en þeir
Íslendingar sem hafa heyrt kraft-
mikla rödd hans vita að hann
er til alls líklegur. Nú vona
landsmenn að þátturinn verði
góður stökkpallur fyrir Magna
upp á stjörnuhimininn.
FBL-GREINING: ROCK STAR: SUPERNOVA
Sungið til sigurs í beinni útsendingu
Markmiðið að efla
virka samkeppni
Dagur Group var á
dögunum sektað af
Samkeppniseftirlitinu
um 65 milljónir fyrir
það að hafa misnotað
markaðsráðandi stöðu
sína og brotið þannig
gegn bannákvæðum
samkeppnislaga.
Páll Gunnar Pálsson
forstjóri Samkeppnis-
eftirlitsins er til svara.
Hvað gerir samkeppniseftirlitið? Það
hefur eftirlit með samkeppnislögum
sem hafa það markmið að efla virka
samkeppni í viðskiptum og þar með að
vinna að hagkvæmri nýtingu fram-
leiðsluþátta þjóðfélagsins.
Hvenær var það stofnað? Það var
stofnað 1. júlí í fyrra og tók þá við af
Samkeppnisstofnun og Samkeppnisráði.
Með þessari breytingu þá voru í raun-
inni sett ný samkeppnislög og helstu
breytingarnar eru í raun breytingar á
stjórnsýslu þannig að Samkeppniseftir-
litið einblínir nú á samkeppnismálin og
er ein stofnun með sérstakri stjórn sem
rannsakar og tekur ákvarðanir í málum.
Áður var Samkeppnisstofnun sem hafði
með samkeppnismál að gera en hafði
líka eftirlit með réttmætum viðskipta-
háttum en sá þáttur starfseminnar fór til
Neytendastofu.
Hversu mörgum málum sinnir Sam-
keppniseftirlitið? Nú eru til formlegrar
stjórnsýslumeðferðar um eitt hundrað
mál og starfsemi Samkeppniseftirlitsins
fer vaxandi.
SPURT & SVARAÐ
SAMKEPPNISSTOFNUN
PÁLL GUNNAR
PÁLSSON
FORSTJÓRI.
Dalbraut 3, 105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
MARKISUR
www.markisur.com
VILTU SKJÓL Á
VERÖNDINA?
1375 11
ÍSLENSKAR NORRÆNAR BANDARÍSKAR
Heimild: Hagstofa Íslands
Samruni Burðaráss og Straums
Fjárfestingabanka í september í
fyrra var sameining til sóknar.
Sameiningin gekk ekki snurðu-
laust fyrir sig og blossuðu upp
átök innan stjórnar Straums-
Burðaráss í mars þegar Magnús
Kristinsson var sniðgenginn í
kjöri til varaformanns stjórnar.
Svo virðist þó vera að samstarfs-
örðugleikar meðal stjórnarmanna
og stjórnenda nái lengra aftur í
tímann. Nokkrir einstaklingar
sem gegndu yfirmannsstöðum í
Burðarási voru látnir fara eftir
samrunann og jafnvel hefur heyrst
að stjórnarmenn hafi átt í óeðli-
legum viðskiptum við félagið eða
notið óeðlilegrar fyrirgreiðslu. Þá
er ljóst að Björgólfur Thor Björ-
gólfsson og Magnús eiga ekki skap
saman.
Deilt um lögmæti fundar
Allt sprakk í háaloft á miðviku-
dagskvöldið þegar þrír af fimm
stjórnarmönnum í Straumi ákvaðu
að víkja Þórði Má Jóhannessyni úr
starfi forstjóra Straums-Burðar-
áss á löngum átakafundi og réðu
Friðrik Jóhannsson, sem gegndi
forstjórastarfi í Burðarási á sínum
tíma, í hans stað.
Umræddur fundur var boðaður
eftir að til stjórnar barst krafa frá
hluthöfum undir forystu Magnús-
ar um að boðaður yrði hluthafa-
fundur í félaginu til að kjósa nýja
stjórn og fá rétta mynd á eignar-
hlutföll í stjórninni. Telur minni-
hluti hluthafa að Páll Þór Magnús-
son, fulltrúi Grettis í stjórn, sé
umboðslaus eftir að Landsbankinn
og Björgólfsfeðgar náðu meiri-
hluta í Gretti.
Stjórnarmennirnir Kristinn
Björnsson og Magnús eru
mjög ósáttir með lyktir
mála og telja fundinn á mið-
vikudaginn hafa verið ólög-
legan og kynntu sín sjónar-
mið fyrir
Fjármálaeftirlitinu í gær.
Álíta þeir að meirihlutinn
hafi ekki farið eftir starfs-
reglum stjórnar þegar hann
ákvað að fá Birgi Már Ragn-
arsson, framkvæmdastjóra
Samsonar, eignarhaldsfélags
Björgólfsfeðga, á fundinn sem
varamann Páls Þórs, sem var
staddur erlendis, en ekki Finn
Geirsson sem Páll Þór hafði til-
nefnt sem sinn varamann á stjórn-
arfundi þann 26. apríl. Samkvæmt
reglum stjórnar er Birgir Már
varamaður Björgólfs Thors Björg-
ólfssonar. Kristinn og Magnús
telja að Finnur sé réttur og lögleg-
ur varamaður Páls Þórs. „Við töld-
um þetta vera kolólögt athæfi og
við létum bóka það í upphafi fund-
ar að allur gjörningur sem fram
færi á fundinum væri ólöglegur,“
segir Magnús Kristinsson.
Meirihlutinn, undir forystu
Björgólfs Thors, segir engum vafa
undirorpið að fundurinn var hald-
inn í samræmi við lög, samþykktir
og starfsreglur bankans og bendir
á að lögfræðingur bankans hafi
staðfest um lögmæti fundarins í
fundargerð. Páli Þór hafi verið
heimilt að tilnefna annan vara-
mann en Finn þar sem sú tilnefn-
ing sé ekki bindandi og alfarið á
valdi viðkomandi stjórnarmanns.
Farsæll forstjóri tekur pokann
Brotthvarf Þórðar Más vekur auð-
vitað athygli en hann er jafnframt
tíundi stærsti hluthafinn í félaginu
í gegnum Fjárfestingafélagið
Brekku. Þórður Már hefur notið
virðingar í viðskiptalífinu og
meðal starfsmanna Straums, og
trausts helstu hluthafa eins og
Kristins, Magnúsar og lífeyris-
sjóða.
Hvers vegna var þá maðurinn
látinn víkja? Svo virðist sem sam-
skiptaörðugleikar forstjóra og
stjórnarformanns hafi stigmagn-
ast að undanförnu sem sá síðar-
nefndi gat ekki búið við. Björgólf-
ur hefur litið svo á að til þess að ná
tökum á félaginu hafi orðið að
fórna Þórði vegna náinna tengsla
við stjórnarmenn í minnihluta.
Lagði stjórnarformaður það til að
Þórður tæki sér frí fram yfir hlut-
hafafund, sem hefur verið boðaður
19. júlí næst komandi, og kæmi
ekki nálægt stjórnun félagsins á
meðan. Magnús segir að hann hafi
lýst því yfir að hann væri á móti
þessari tillögu: „Ef þú vilt ekki
hafa mann þá rekurðu hann bara
strax.“ Stjórnarformaður bauð for-
stjóra að taka sér frí frá störfum
sem sá fyrrnefndi afþakkaði. Var
þar með tæplega fimm ára starfi
Þórðar Más hjá Straumi lokið, hvað
sem síðar kann að gerast.
Vildi taka á óþolandi stöðu
Björgólfur Thor sagði á blaða-
mannafundi í gær að átök innan
eigendahóps fjárfestingabankans
hafi haft neikvæð áhrif á rekstur
og ímynd félagsins. Sem stjórnar-
formaður beri hann ábyrgð gagn-
vart öllum hluthöfum félagsins
og hafi því orðið að taka ábyrgð á
þeirri stöðu sem var orðin óþol-
andi að hans mati. „Atburðarrás
gærdagsins [miðvikudagsins]
gerði það alveg tært í mínum
huga að þetta ástand væri
ekki hægt að búa við öllu
lengur.“ Hann segist ekki
vera þannig maður að sætta
sig við það óvissuástand sem
komið var upp innan félags-
ins og vildi eyða óvissu með
því að fá hana út af borðinu.
Eins og staðan er í dag hafi
núverandi fimm manna stjórn
verið kosin þar til annað
kemur í ljós. „Meirihlutinn ræður,
þetta er bara mjög einfalt mál.“
Björgólfur íhugaði vandlega
að selja hlut Samsonar í Straumi
eftir varaformannsslaginn í mars
en það kom í ljós að það var hæg-
ara sagt en gert að fá kaupanda.
„Ég var alveg tilbúinn til að selja
en það var bara enginn sem gat
komið og keypt með peningum.“
Hann vildi peninga en ekki hluta-
bréf. Björgólfur segir ekki koma
til greina að svo stöddu að sam-
eina Straum og Landsbankann
eða taka Straum yfir en eignar-
hald hans og tengdra aðila nemur
um 38 prósentum af hlutafé
Straums. Magnús og Kristinn
telja hins vegar að ef Björgólfur
Thor á fyrir þremur stjórnar-
mönnum í stjórn Straums þá sé
komin klár yfirtökuskylda í félag-
inu, enda dugi núverandi atkvæða-
magn Björgólfsfegða, Grettis og
Landsbankans ekki fyrir þremur
sætum.
eggert@frettabladid.is
Meirihlutinn lét til sín taka
Trúnaðarbrestur milli stjórnarformanns Straums og forstjóra er ástæða uppsagnar Þórðar Más Jóhannesson-
ar. Deilt er um lögmæti óreglulegs stjórnarfundar. Minnihluti stjórnar telur að yfirtökuskylda hafi myndast
ef meirihluti eigi fyrir þremur stjórnarmönnum. Björgólfur Thor er tilbúinn að selja hlut sinn fyrir peninga.
MEIRIHLUTINN LÉT TIL SKARAR SKRÍÐA Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums-Burðaráss, útskýrði sjónarmið meirihluta
fyrir brottvikningu Þórðar Más Jóhannessonar úr forstjórastóli. Friðrik Jóhannsson, nýr forstjóri, situr við hlið hans.
STJÓRNARMENN Í STRAUMI OG VARAMENN
Aðalmaður Tilnefndur varamaður
Björgólfur Thor Björgólfsson * Birgir Már Ragnarsson
Eggert Magnússon * Þórunn Guðmundsdóttir
Kristinn Björnsson Gunnar Sch. Thorsteinsson
Magnús Kristinsson Guðjón Auðunsson
Páll Þór Magnússon * Finnur Geirsson
* Meirihluti stjórnar