Fréttablaðið - 23.06.2006, Síða 24
23. júní 2006 FÖSTUDAGUR24
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.585 +0,37% Fjöldi viðskipta: 338
Velta: 5.859 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Hlutabréf í úrvalsvísitölu: Actavis
62,70 -0,63% ... Alfesca 3,55 +0,00%... Atorka 5,95 +0,85% ...
Bakkavör 44,70 -1,11% ... Dagsbrún 5,73 +0,00% ... FL Group 17,70
-1,67% ... Flaga 3,94 +0,00% ... Glitnir 17,80 +1,14% ... Kaupþing
banki 753,00 +1,07% ... Landsbankinn 21,10 +0,00% ... Marel 70,10
+1,01% ... Mosaic Fashions 15,70 +2,61% ... Straumur-Burðarás 19,10
+0,00% ... Össur 108,00 -0,92%
MESTA HÆKKUN
Mosaic Fashons +2,61%
Glitnir banki +1,14%
Kaupþing banki +1,07%
MESTA LÆKKUN
Atlantic Petroleum -2,26%
FL Group -1,67%
Bakkavör -1,11%
Velta á fasteignamark-
aði hefur dregist saman
meðan metframboð er
af nýbyggingum. Allt
útlit er fyrir einhverjar
verðlækkanir húsnæðis
í höfðuðborginni, helst
í úthverfum. Sumarið
kann að spila inn í ró-
legri tíð í fasteignasölu.
„Við getum búist við fimm til tíu
prósenta raunlækkun á fasteigna-
markaði á næstu misserum“, segir
Snorri Jakobsson, hagfræðingur
greiningardeildar KB banka, og
bætir við „Veltan er minni en áður
og framboð nýbygginga mikið auk
þess sem fjármagnskostnaður
hefur hækkað. Þetta dregur þig í
raun að þeirri niðurstöðu að verð-
lækkanir séu í spilunum.“
Velta á fasteignamarkaði hefur
dregist saman um nærri þriðjung
síðan í vor. Að meðaltali hefur
tuttugu og fimm til þrjátíu samn-
ingum verið þinglýst á dag það
sem af er júní, en í mars og apríl
var um fjörutíu samningum þing-
lýst að meðaltali.
Þá hafa vaxtahækkanir orðið til
þess að fjármagnskostnaður við
húsnæðiskaup hefur hækkað um
tíu prósent síðastliðna tólf mánuði.
Loks er útlit fyrir metframboð á
húsnæði í ár eða um fjögur þúsund
nýjum íbúðum.
Snorri telur að íbúar í úthverf-
um verði meira varir við verðlækk-
anir en miðborgarbúar. Það sé
þekkt erlendis að sveiflur séu meiri
í útjaðri borga en í miðborgum
„Það er mun meira framboð á íbúð-
um í úthverfunum. Í miðbænum er
minna framboð en eftirspurnin er
líka jafnari. Þá eru ýmsir aðrir
þættir, til að mynda hækkandi
bensínverð sem gera það enn fýsi-
legra en ella að búa miðsvæðis í
námunda við þjónustu.“
Bárður Hreinn Tryggvason,
annar eigenda fasteignasölunnar
Valhallar, segist ekki eiga von á
verðlækkunum þótt hugsanlegt sé
að leiðrétting verði á þeim eignum
sem hafa verið of hátt metnar.
Vissulega hafi hægst aðeins á
en það eigi sér eðlilegar skýringar.
„Sveitarstjórnarkosningar eru
nýafstaðnar, heimsmeistarakeppn-
in í knattspyrnu stendur yfir og
fólk er í sumarfríi auk þess sem
lánskjör bankanna eru óhagstæð-
ari en áður. Þetta hefur allt áhrif
en ég held að markaðurinn fari
aftur á fulla ferð í haust.“
jsk@frettabladid.is
101 SKUGGAHVERFI Sérfræðingar telja að verðlækkana á fasteignum verði ekki vart í mið-
borginni. Aldrei hefur meira framboð verð af nýbyggingum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Útlit fyrir tíu prósenta
lækkun fasteignaverðs
Atorka hefur aukið lítillega hlut
sinn í NWF Group og fer nú með
17,2 prósent hlutafjár í breska iðn-
aðarfyrirtækinu. Gengi NWF
Group hefur hækkað um þriðjung
frá áramótum, þar af um fimmt-
ung í júní.
Verðmæti hlutabréfa Atorku í
NWF Group nema um 1,7 milljörð-
um króna. - eþa
NWF Group hækkar
Friðrik Jóhannsson, nýr forstjóri
Straums-Burðaráss, kemur ekki
reynslulaus, enda fyrrverandi for-
stjóri Burðaráss. Hann bendir þó
á að ákveðnar breytingar hafi
orðið á félaginu eftir að hann yfir-
gaf sameinað félag og fyrstu verk-
efni hans verði að ræða við starfs-
fólk og setja sig inn í reksturinn.
„Það er öllum ljóst að deilur
hafa verið í félaginu og það er
eitthvað sem hluthafar setja niður
á næstu dögum og vikum,“ segir
hann spurður um hvort erfitt sé
að taka við starfinu við þessar
aðstæður.
Hann segir að markmið félags-
ins sé að verða leiðandi fjárfest-
ingabanki á Norðurlöndum og
býst við einhverjum áherslu-
breytingum í fjárfestingum.
„Þetta er gríðarlega sterkt og vax-
andi fyrirtæki með öflugan mann-
skap. Þegar horft er á styrkleika
þessa fyrirtækis, sem er með
þriðjungs eiginfjárhlutfall, þá
gefur það mikil sóknarfæri bæði
heima fyrir og erlendis.“
Friðrik ætlar að halda áfram
starfi stjórnarformanns upplýs-
ingatæknifélagsins TM Software
en hann á helming hlutafjár í
félaginu. Hann telur sig geta
sameinað þessi störf: „Ég hef
ekki komið að daglegum rekstri
TM Software frá því ég fjárfesti
í því og þannig verður það
áfram.“ - eþa / Sjá einnig síðu 20
FRIÐRIK JÓHANNSSON Fyrrverandi forstjóri
Burðaráss tekur við Straumi-Burðaráss.
Telur að hluthafar
leysi ágreining sinn
Glitnir banki hefur tekið 200 millj-
óna evru ádráttarlán, jafnvirði
18,9 milljarða íslenskra króna, til
fimm ára hjá ellefu alþjóðlegum
viðskiptabönkum. Lánskjör eru 18
punktum yfir millibankavöxtum
(EURIBOR) verði lánið ekki nýtt
en 36 punktar verði það nýtt. Lánið
verður nýtt til endurfjármögnun-
ar á 160 milljarða evru ádráttar-
láni sem tekið var árið 2003.
Ingvar Ragnarsson, forstöðu-
maður alþjóðlegrar fjármögnunar
hjá Glitni, segir lánskjör aðeins
hærri en á síðasta ári og endur-
speglar það erfiðari markaðsað-
stæður bankanna. Hins vegar séu
kjörin mun betri en lán á skulda-
bréfamarkaði í dag. - jab
MERKI GLITNIS Glitnir banki hefur tekið
18,9 milljarða króna sambankalán.
Glitnir endur-
fjármagnar lán
Eftirlitsstofnun EFTA
(ESA) hefur ákveðið að
hefja formlega athugun á
þeirri ríkisaðstoð sem
Íbúðalánasjóði er veitt.
Ákvörðunin er viðbragð
við dómi EFTA-dómstóls-
ins frá aprílbyrjun þar
sem niðurstaða ESA frá
2004, þess efnis að ríkis-
aðstoðin væri þjónusta í almanna-
þágu og því í samræmi við ríkis-
styrkjareglur EES-samningsins,
var dæmd ógild.
Í dóminum kemur fram að vafi
leiki um tiltekin atriði og að niður-
stöður ESA um þau hafi ekki verið
nægilega rökstudd af hálfu eftir-
litsstofnunarinnar. Líklegt þykir
að athugun ESA taki um eitt ár.
Guðjón Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka banka og
verðbéfafyrirtækja (SBV),
segir niðurstöðuna í takt
við það sem SBV bjóst við.
Hafi ESA komist að sam-
bærilegri niðurstöðu
vegna lánastarfsemi sjóðs
á vegum norska ríkisins
fyrir um sex árum. Honum
hafi verið sniðinn þrengri
stakkur og láni hann nú
einungis til nýbygginga auk þess
sem þak var sett á lánveitingarnar.
Markaðshlutdeild norska lána-
sjóðsins minnkaði vegna þessa og
er hún nú um 10 prósent í Noregi.
Markaðshlutdeild Íbúðalána-
sjóðs var 90 prósent þegar athug-
un EFTA hófst. Upplýsingar
liggja ekki fyrir um hlutdeild
hans í dag en Guðjón segir hana
langtum meiri en í nágrannalönd-
unum. - jab
GUÐJÓN RÚNARSSON
Ríkisaðstoð í skoðun
Viðskipti á hinum nýja iSEC mark-
aði Kauphallar Íslands hefjast
formlega þann þriðja júlí næst-
komandi. Þá verða hlutabréf í
Hampiðjunni skráð á markaðinn
en félagið var nýverið afskráð af
aðallista Kauphallarinnar.
iSEC-markaðurinn er svokallað
markaðstorg fjármálagerninga,
þar sem skilyrði til skráningar eru
ekki jafn ströng og á aðallistanum.
Markaðurinn er einkum ætlaður
sprotafyrirtækjum og er fyrir-
myndin sótt til AIM-markaðarins í
Lundúnum.
Fastlega má búast við því að
íslensk-bandaríska líftæknifyrir-
tækið Cyntellect fylgi í kjölfar
Hampiðjunnar en lokað útboð
stendur nú yfir í félaginu og var
nýlega framlengt til 30. júní. -jsk
Opnað fyrir iSEC
KAUPHÖLL ÍSLANDS Opnað verður fyrir
viðskipti með bréf í Hampiðjunni á iSEC
markaðnum þann þriðja júlí.
MARKAÐSPUNKTAR
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 18,5
milljörðum króna á fyrstu þremur mán-
uðum ársins. Þetta er 1,8 milljörðum
krónum minna en á sama tíma í fyrra
og samdráttur upp á 9 prósent.
Tilkynnt var um krónubréfaútgáfu Eur-
opean Investment Bank (EIB) í fyrradag.
Útgáfan nemur 2,5 milljörðum króna
til þriggja ára. Greiningardeild Glitnis
banka segir heildarútgáfu krónubréfa
í kringum 234 milljarða króna sem sé
mun meira en nokkur átti von á þegar
útgáfan hófst.
Þýski fjármála- og tryggingarisinn Allianz
hefur ákveðið að segja upp 7.500
manns um allan heim. Fyrirtækið tapaði
stórfé í fyrra, m.a. vegna fellibyljanna í
Bandaríkjunum.
Andstæðingur kyrrstöðu deyr
David Walton, eini meðlimur
peningamálanefndar Englands-
banka sem í tvígang hefur stutt
hækkun stýrivaxta í Bretlandi, lést í
gærkvöldi eftir skammvinn veikindi.
Greint var frá því í gær að ákveðið
hefði verið að halda stýrivöxtum
óbreyttum í Bretlandi í júní. Walton
var 43 ára. Hann var hagfræðingur
að mennt og starfaði m.a. hjá
fjármálaráðuneyti Bretlands og
fjárfestingabankanum Goldman
Sachs. Hann hóf nefndarsetu
í Englandsbanka fyrir tæpu ári
en þangað kom hann 1. júlí í
fyrra. Með andláti Waltons eru
nefndarmenn Englandsbanka
einungis sjö talsins, en annar
sagði sig nýverið úr nefndinni.
Spákaupmenn í Straumi
Spákaupmenn hafa stokkið á Straums-vagninn
vegna þeirra átaka sem hafa verið í gangi innan
stjórnar Straums. Meðal fjárfesta sem hafa verið
að bæta við hlut sinn á undanförnum dögum
eru FL Group og Samherji og er ljóst að þessir
aðilar hafa ávaxtað pundið sitt vel, enda hafa
bréf Straums rokið upp úr öllu valdi. FL
Group er nú komið í tólfta sæti yfir
stærstu hluthafa í Straumi og jók
hlut sinn á miðvikudaginn um
0,23 prósent frá deginum áður
eða um 450 milljónir króna að
markaðsvirði. Landsbankinn,
sem er að stórum hluta í eigu
Björgólfsfeðga, var einnig á
kauphliðinni og jók hlut sinn
milli daga um 0,33 prósent
eða um 650 milljónir
króna.
Peningaskápurinn...
Mosaic Fashions, breska tísku-
keðjan sem skráð er í Kauphöll
Íslands og er að stórum hluta í
eigu Baugs, hyggst kaupa tísku-
fyrirtækið Rubicon. Kaupverð er
rúmir 48,6 milljarðar króna. Kaup-
in eru háð áreiðanleikakönnun og
samþykki hluthafa.
Rubicon rekur meðal annars
skófyrirtækið Shoe Studio, sem
hefur mörg þekkt vörumerki á
sínum snærum, auk kvenfata-
merkjanna Warehouse og
Principles. Tekjur félagsins námu
rúmum 56 milljörðum íslenskra
króna á síðasta ári.
Baugur, KB banki og fleiri
íslenskir fjárfestar eiga fyrir
smærri hluti í Rubicon og sam-
kvæmt heimildum voru uppi áætl-
anir um að skrá Shoe Studio í
Kauphöll Íslands. Greinilegt er að
fýsilegra hefur þótt að sameina
Rubicon og Mosaic Fashions.
Fram kemur í tilkynningu að
við sameininguna verði til ein
stærsta tískuverslanakeðja á
Bretlandseyjum, með ársveltu
upp á 112,8 milljarða króna og
1700 verslanir í tuttugu og sjö
löndum. -jsk
Tískukeðjur í eina sæng
FRÁ TÍSKUSÝNINGU MOSAIC FASHION