Fréttablaðið - 23.06.2006, Qupperneq 34
23. júní 2006 FÖSTUDAGUR6
Listamaðurinn Snorri Ás-
mundsson segist ekki oft gera
slæm kaup enda keppi hann
ekki að lífsgæðum. Hann var
hins vegar ekki lengi að svara
því hver væru hans bestu
kaup.
Snorri Ásmundsson hefur komið
víða við og því lék blaðamanni for-
vitni á að vita hver væru bestu og
verstu kaup sem hann hefur gert á
lífsleiðinni. Snorri virðist ekki eltast
mikið við efnisleg gæði og það var
langur umhugsunarfrestur sem
listamaðurinn og frambjóðandinn
fyrrverandi tók sér til þess að kom-
ast að því hver væru verstu kaup
sem hann hefði gert. „Ég man nú
bara ekki eftir neinum slæmum
kaupum sem ég hef gert nýlega,“
segir Snorri hikandi. „Eða jú,
kannski, það eru alltaf slæm kaup
að borga sig í bíó inn á eitthvað
Hollywood-rusl og ganga svo út í
hléi,“ segir hann og bætir því við að
það gerist í um það bil 90 prósentum
tilvika þegar hann fer í bíó. „Annars
er ég ekki kaupóður maður. Ég er
ekki mikið í þessu lífsgæðabrjálæði
eins og svo margir eru í. Ég geri því
ekki svo mörg slæm kaup.“
Það stóð hins vegar ekki á svör-
unum þegar Snorri var spurður
hver væru bestu kaupin sem hann
hefði gert. „Ætli bestu kaupin mín
séu ekki þau þegar að ég keypti
rósir handa kærustunni minni, það
voru bara svo miklar tilfinningar í
þeirri gjöf,“ segir hann og gefur
engar frekari útskýringar á rósa-
gjöfinni rómantísku.
valgeir@frettabladid.is
Ekki mikið fyrir lífs-
gæðakapphlaup
Snorri Ásmundsson gefur ekki mikið fyrir lífsgæðakapphlaupið.
Nú er veiðitímabilið komið
á fullt og laxinn bíður í
hyljunum.
Að því tilefni bíður Útilíf upp á
nokkur tilboð. Slate-öndunarvöðl-
ur, sem áður kostuðu 37.990 krón-
ur, kosta nú 29.990 krónur. Þetta
er rúmlega 20 prósenta afsláttur.
Einnig er hægt að fá Slate-vöðlu-
jakka á 24.990 krónur.
Fyrir þá sem eru að byrja í
veiðinni er hægt að fá flugna-
stangasett, stöng, hjól og línu, frá
14.700 krónum. Fyrir lengra
komna er vert að athuga að sett
með lífstíðarábyrgð, sem áður
kostaði 24.990 krónur, kostar nú
21.490 krónur.
Veiðivörur í úrvali
BETRA BAK BÝÐUR UPP Á FJÖLDA TIL-
BOÐA Á RÚMUM OG SVEFNSÓFUM.
Á heilsu- og hægindadögum Betra
baks er hægt að fá stillanleg rúm
á góðu tilboði, en einnig king- og
queen-stærðir á venjulegum dýnum
og svefnsófa. Til dæmis er hægt að
fá dýnu í king-stærð, botn, lappir,
hlífðardýnu og lúxuslak á 159.000
krónur. Sami pakki, en með queen-
stærðar dýnu fæst á 119.900 krónur.
Einnig er sýningarsalur búðarinnar
fullur af nýjum svefnsófum sem eru
á tilboði.
Heilsu- og hægindadagar
Í Betra baki er til dæmis hægt að fá
tempurdýnur.
Sólstöðuhátíð víkinga
í Hafnarfirði 16.- 25. júní 2006
Fjörukráin þakkar eftirtöldum aðilum fyrir stuðninginn:
Fjörukráin
Sími 565-1213
www.fjorukrain.is
Föstudaginn 16. júní kl.17.00 hefst víkingahátíð við Fjörukrána í Hafnarfirði. Bardagamenn og bogaskyttur,
glímumenn og útskurðarmenn, steinhöggvarar og járnsmiðir, sögumenn og seiðkonur, tónlistarmenn og galdramenn.
Sænski sögumaðurinn Jerker Fahlström rifjar upp ævintýri Ása og hinna fornu goða er hann segir okkur frá Ásaþór,
Loka og þeim félögum. Jerker er orðinn fastur liður og segir sögur sínar á íslensku.
Rimmugýgur, hafnfirski bardaga- og handverkshópurinn sér um bardagana ásamt Jómsvíkingunum alþjóðlegum
hópi úrvalsvíkinga. Annar íslenskur víkingahópur, Hringhorni frá Akranesi sýnir leiki fornmanna.
Fjöldi handverksmanna, íslenskra sem erlendra verða á markaðnum.
Norska víkingahljómsveitin Skvaldr og hin dansk-íslenska Kráka munu skemmta gestum alla dagana.
Dansleikir öll kvöld, Hollenska raggea hljómsveitin Five-4-vibes og hljómsveit Hilmars Sverrissonar.
Opið verður alla daga frá 16. til 18. júní og aftur 23. til 25. júní. Kynnir hátíðarinnar er Steinn Ármann Magnússon.
ATH: Dagskrá Sólstöðuhátíðarinnar er á heimasíðunni: fjorukrain.is
Sumarútsalan er hafin
30 til 60%
afsláttur
Hæðasmára 4 • s. 544-5959
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI