Fréttablaðið - 23.06.2006, Síða 38

Fréttablaðið - 23.06.2006, Síða 38
■■■■ { hús og garður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■2 Áður fyrr var einungis hægt að fá mjög gervileg silkiblóm inn í stofu sem vöktu meiri óskunda en prýði en nú er hægt að fá silkiblóm bæði inni og úti og verður sífellt erfiðara að sjá muninn á alvöru og gervi. „Það er mun algengara núna að Íslendingar kaupi sér silkiblóm bæði inni og úti og ég held að það tengist auknum ferðalögum erlend- is. Þá getur fólk skellt sér í fríið og þarf ekki að fá einhvern til að hugsa um plönturnar,“ segir Hrönn Óskarsdóttir, starfsmaður Soldis í Blómavali. „Vinsælustu blómin eru tóbaks- horn og hengitóbakshorn, sem er minni útgáfan. Bóndarósirnar eru mjög vinsælar í sumarbústaðinn en við seljum líka öll algengustu blómin eins og stjúpur, begoníur, pelargóníur og hortensíur. Við erum meira að segja með kryddjurtir í pottum. Í silkiblómunum er mjög gott litarefni sem hefur gefið góða reynslu og endist mjög vel, jafnvel í þrjú til fjögur ár. Inniblómin endast enn lengur. Trén eru líka mjög vin- sæl í garðinn og seljum við mikið af trjám sem eru klippt til í keilur og kúlur eins og maður sér víða erlendis,“ segir Hrönn en í Soldis í Blómavali fást fjöldamargar gerðir af gervitrjám. „Við flytjum mikið af silkitrján- um inn frá Ítalíu en tréin sem við seljum eru á ekta stofni sem hefur verið innþurrkaður. Á hann eru boruð göt og greinarnar límdar í. Þau líta þar af leiðandi mjög eðli- lega út.“ „Silkiblómin eru oftast seld í pottum en fólk setur þau líka í hengipotta og vírar þau jafnvel niður svo þau fjúki ekki. Það getur oft verið veðrasamt á Íslandi og við getum einnig fest plönturnar ofan í potta og ker með sterkum efnum,“ segir Hrönn en ekkert mál er að þrífa plönturnar. „Best er að láta þær undir sturtuna og jafnvel þrífa þær með smá sápuvatni ef þær eru mjög skítugar eftir sumarið.“ Líta ótrúlega eðlilega út Silkiblóm eru fyrirbæri sem hefur notið sífellt meiri vinsælda hér á landi Kúlulaga tré sjást æ oftar hér á landi líkt og erlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Silkiblóm sem nota á úti eru yfirleitt víruð í potta og ker. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Hvít tóbakshorn eru flott í garðinn.FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Hvítt og lillað eru litirnir í ár - líka í silki- blómum. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Stjúpur er meira að segja hægt að fá sem silkiblóm. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI „Við bjóðum upp á glerhús sem eru sólstofur úr póstalausu gleri sem hægt er að opna alveg og loka alveg. Fólk getur sem sagt fengið verönd sem er bæði inni og úti,“ segir Gunnar Svanberg Jónsson, eigandi Glers og brauta. „Það er mjög auðvelt að ráða við hitastigið í þessum glerhúsum þar sem hægt er að opna allar hliðarn- ar til og frá. Það er til dæmis mjög þægilegt að vera með heitan pott í þessum sólstofum. Einnig er gott að grilla í þeim og vera með alls kyns aðstöðu sem aðeins er hægt að vera með undir berum himni þar sem glerhúsin eru fullopnanleg,“ segir Gunnar en Gler og brautir eru með svokallað Cover-glerbrautakerfi. „Kerfið er til dæmis skröltfrítt sem er tvímælalaust kostur hér á landi. Við höfum gengið frá um þrjú hundruð sölum með þessu kerfi og hefur það gefið mjög góða reynslu. Við bjóð- um upp á fimm ára ábyrgð en fyrsta kerfið sem sett var upp fyrir tuttugu árum er enn í lagi. Það var reynd- ar ekki hér á landi en þessi ending segir engu að síður margt um kerf- ið. Það er nánast viðhaldsfrítt.“ „Það er ekkert mál að þrífa kerf- ið. Fyrsta rúðan er opnuð inn og þrifin beggja vegna og síðan koll af kolli. Hægt er að fá hvaða lit sem er á brautunum og við getum pól- íhúðað grindina í hvaða lit sem er. Þannig að fólk getur fengið sólstofu með öllum bitum í þeim lit sem það vill. Glerið er alltaf gegnsætt en hægt er að fá sandblástursfilmur í það. Persónulega mæli ég samt með gluggatjöldum,“ segir Gunnar en Gler og brautir selja einnig handrið og svalagler. Verönd inni og úti Fyrirtækið Gler og brautir býður upp á fullopnanleg glerhús sem eru nánast viðhaldsfrí. Þægilegt er að hafa heitan pott inn í sólstofunni. Glerhúsin eru opnanleg frá öllum hliðum. Gunnar er nú ásamt starfsmönnum Glers og brauta að smíða 22 fermetra sólstofu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.