Fréttablaðið - 23.06.2006, Page 44
■■■■ { hús og garður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Það er engin ástæða til að
örvænta þótt maður hafi
ekki græna fingur, þar sem
blóm og beð þurfa ekki
að vera fyrirferðarmikil í
garðinum. Garðeigendur
vestur í bæ tóku þann pól
í hæðina þegar þeir létu
endurhanna lóðina sína.
Garðar sem eru uppfullir af
skemmtilegum gróðri geta verið
til prýðis en þó fer mikil vinna í
að halda þeim við og af ýmsum
ástæðum treysta sumir sér einfald-
lega ekki til þess.
Garðeigendur vestur í bæ, sem
voru búnir að fá nóg af stöðugu
streði í garðinum, brugðu á það ráð
að fá landslagsarkitektinn Ragn-
hildi Skarphéðinsdóttir til liðs við
sig og hanna lóð sína upp á nýtt
með það fyrir augum að þurfa sem
minnst að gera.
Veggir voru reistir beggja vegna
hússins til að afmarka lóðina,
göngustígur lagður til að brjóta
hana upp og sum beðanna fyllt
hvítri möl, sem talin er hamla vexti
arfa og annars illgresis.
Veggirnir veita líka ágætis skjól
fyrir ágangi sjávarins, þar sem
húsið er niðri við sjávarsíðuna,
en þegar sjórinn lætur mest að sér
kveða er ekki óalgengt að hann
ýrist yfir húsið og sjávarselta setj-
ist á rúður þess.
8
Húsið var hannað af Ingimundi Sveinssyni
og byggt á áttunda áratugnum. Gleri var
seinna komið fyrir aftan á húsinu, bæði af
hagnýtum ástæðum og svo speglast hafið
skemmtilega í því, þannig að mörk lands
og sjávar virðast rofna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Marga dreymir um að eiga jafn skemmtilegan sólpall og þennan úti í garði þar sem hægt
er að drekka gott morgunkaffi. Það geta eigendur hússins við sjávarsíðuna gert þegar vel
viðrar auk þess sem þeir hafa einstakt útsýni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fjólublá blóm fara vel við hvíta möl og lífga
upp á garðmyndina, sé þeim komið fyrir á
nokkrum vel völdum stöðum.
Þetta skemmtilega þríhyrningslaga blómabeð virkar vel saman við göngustíginn og kerin
sem eru í garðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Stutt er niður að sjó frá húsinu, þar sem góður göngustígur liggur meðfram allri strand-
lengjunni, en hann er fjölsóttur af göngugörpum, skokkurum, hjólreiðamönnum og hunda-
eigendum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fallegt beð, en segja mætti að viðurinn og
glerið á húsinu tengi hús og lóð skemmti-
lega við saman við náttúruna.
Annað gott dæmi um hvernig landlagsarkitekinn hefur nýtt sér ferköntuð form til að brjóta
upp garðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Mörk lands og sjávar rofin