Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.06.2006, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 23.06.2006, Qupperneq 46
■■■■ { hús og garður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■10 „Nei, ég er nú ekki flutt í sveit- ina, en fer þangað hluta af sumri,“ segir Margrét hlæjandi. „Við hjón- in eigum bóndabæ, sem nefnist Kirkjubær, við Skutulsfjörð við Ísafjarðardjúp. Ég var þarna mikið sem krakki og hjálpaði til við sveitastörfin, þar sem afi og amma áttu sumarhús skammt frá. Svo eiga foreldrar mínir sumarbústað með móðursystur minni rétt hjá þar sem langafi og -amma bjuggu áður, þannig að stórfjölskyldan er þarna samankomin í sitthvoru húsinu.“ Margrét segir fjölskylduna ekki fara sjaldnar en einu sinni í mánuði vestur, þar sem tímanum er oftar en ekki varið í framkvæmdir. „Maður- inn minn hefur verið duglegur við að reisa girðingar og svo höfum við gróðursett talsvert,“ segir hún. „Í sumar ætlum við að skipta um glugga, en það var síðast gert árið 1970. Heitum potti verður einn- ig komið fyrir og gott ris útbúið, en við það ætti grunnflöturinn að stækka úr 50 fermetrum í hátt í 150 fermetra. Í fyrrasumar skiptum við líka um þak, sem lak lítilega. Ann- ars var húsið í mjög góðu ástandi þegar við keyptum það árið 1998,“ bætir hún við. „Á milli verkefna förum við á handfæraveiðar, en mikil vinna fer í að ganga frá aflanum ef vel veiðist,“ segir Margrét. „Eins og heyrist kannski finnst okkur svolítið gaman að hafa eitthvað fyrir stafni,“ bætir hún við og hlær. Margrét tekur fram að fjölskyldan slappi þó líka af í góðra vina hópi, enda sé gestkvæmt á Kirkjubæ og oft mikið fjör. „Okkur finnst gaman að snæða í garðin- um, þar sem gott skjól ríkir vegna allra girðinganna sem húsbóndinn er búinn að reisa. Það er óhætt að segja að hér uni sér allir, enda ótrú- lega fallegt um að litast.“ Líkar vel við sveitastörfin Hjónunum Margréti K. Sverrisdóttur, framkvæmdastjóra Frjálslynda flokksins og vara- borgarfulltrúa, og Pétri S. Hilmarssyni viðskiptafræðingi, finnst gott að verja tímanum á bóndabæ sínum vestur við Skutulsfjörð. En má búast við því að Margrét söðli um og flytji alfarið í sveitina? Margrét Sverrisdóttir í garðinum heima hjá sér með hundinn Blöndu, sem fær að fara með vestur þar sem hún unir hag sínum vel þótt ferðalagið leggist illa í hana. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL BERGMANN Afasystir Margrétar og eigimaður hennar byggðu bæinn árið 1940. Þegar hún féll frá var hann um langa hríð ekki í eigu fjölskyldunnar, eða þar til Margrét og Pétur keyptu hann árið 1998. MYND ÚR EINKASAFNI Það er gestkvæmt á Kirkjubæ og oft glatt á hjalla eins og sést á þessari mynd þar sem stórfjölskyldan er samankomin til að snæða dýrindis máltíð í glampandi sól. MYND ÚR EINKASAFNI Mæðgurnar Gréta, Ásthildur og Margrét í steikjandi hita fyrir vestan. MYND ÚR EINKASAFNI. Siglt úr Lónafirði. Systir Margrétar, Ásthildur, og eiginmaður hennar, Matthías, eiga glæsilegan sportbát en þau eru dugleg að bjóða vinum og vandamönnum með sér í siglingu. MYND ÚR EINKASAFNI Skemmtilegur sumarbústaður var byggður árið 1989 í landi Snæ- foksstaða við Vaðnes í Árnessýslu. Jörðin er 1,1 hektarar og tveir golfvellir eru stutt frá, þannig að þarna er allt til alls. Það sem vekur hins vegar strax athygli við landið er stjörnuat- hugunarstöðin sem húseigandi sá sig tilneyddan til að reisa á land- inu undir 12 tommu stjörnukíki, þar sem hann segir að erfitt sé orðið að sjá stjörnubjartan himin á höfuðborgarsvæðinu vegna ljósmengunar. Sumarbústaður- inn er til sölu hjá Eignarmiðlun, en athugunarstöðin fylgir með sé þess óskað. Sumarbústaður með stjörnu- athugunarstöð Það fara ekki allir hefðbundnar leiðir þegar þeir reisa sér hús á sumarbústaðarlandi sínu. Þessi skemmtilega stjörnuathugunarstöð er í landi Snæfoksstaða við Vaðnes í Árnessýslu. MYND ÚR EINKASAFNI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.