Fréttablaðið - 23.06.2006, Page 50

Fréttablaðið - 23.06.2006, Page 50
■■■■ { hús og garður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■14 „Mér fannst frábært að það skyldi vera í Grjótaþorpinu, meðal ann- ars þar sem svo stutt er í allt,“ segir Birgir, aðspurður um hvað hafi heillað hann við húsið og bætir við að þrátt fyrir staðsetn- ingu sé lítil hljóðmengun frá bænum. „Svo bauð íbúð í kjallara upp á leigumöguleika.“ Húsið er frá árinu 1903, en var flutt á núverandi stað og nýjan grunn 1994. „Lagnir, rafmagn, dren og klóak eru því ný,“ útskýrir Birgir. „Svo var búið að rífa niður milliveggi til að skapa opið rými og gifsklæða þegar ég keypti.“ Birgir hélt áfram þar sem fyrri eigendur létu staðar numið í end- urbótum. „Ég pússaði gólf og setti upp fataskápa, bað- og eldhúsinn- réttingar,“ útskýrir hann. „Þá var stiga á milli mið- og efri hæðar- innar skipt út fyrir stiga frá Agli Árnasyni. Húsið krafðist líka mik- illar vinnu utandyra. Skipt var um bárujárn, gengið frá gluggum og svalir smíðaðar.“ Birgir réðst að mestu leyti sjálfur í framkvæmdirnar inn- andyra, en fékk með sér iðnað- armann í það sem gera þurfti að utan. „Við lukum við innvolsið að mestu fyrsta árið, en sumarið 2005 kláruðum við það að utan,“ segir hann. Útkoman er einstak- lega flott. Birgir og Inga ákváðu nýlega að kaupa lóð í Garðabæ og því stendur Vesturgatan nú til sölu. Birgir segist mun sakna hússins þar sem honum hafi liðið einstak- lega vel í því. „Það er svo gott að geta verið svolítið afsíðis, en samt séð hvernig Fischersund iðar af lífi,“ segir hann. „Jafn góður staður er vandfundinn.“ Afsíðis en umkringt lífi Fyrir tveimur árum festi Birgir Kristmannsson, tölvunarfræðingur hjá Mekkanis hug- búnaðarstofu, kaup á gömlu, tveggja hæða húsi með kjallara, að Vesturgötu 5a í Reykjavík. Húsið hefur gengist undir töluverðar endurbætur í meðförum Birgis og sambýliskonu hans, Ingu Birnu Eiríksdóttur kennara. Útkoman er ótrúlega flott. Þetta glæsilega einbýlishús er nú til sölu en það var vandasamt verk að koma því í núverandi horf. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Birgir og Inga hafa átt ánægjulegan tíma í húsinu, ekki síst eftir að þau eignuðust dótturina Sölku. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Hundurinn Tryggur sést hér trítla frá svölunum þar sem tilvalið er að fá sér morgunkaffi eða grilla í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Undarlegum stiga var skipt út fyrir þennan fallega stiga frá Agli Árnasyni. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Á efri hæð hússins er góð svefnaðstaða, þar sem einstaklega þægileg stemning ríkir. Miklar endurbætur voru gerðar á húsnæðinu. Meðal annars var skipt um eldhúsinnréttingu með góðri útkomu. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.