Fréttablaðið - 23.06.2006, Page 62
23. júní 2006 FÖSTUDAGUR30
Tveir af fastapennum Frétta-
blaðsins, þeir Sverrir Jakobsson
og Ólafur Hannibalsson, auk
Björgvins Guðmundssonar, virð-
ast af skrifum sínum vera með
Framsóknarflokkinn á heilanum.
Fleiri mætti nefna en ég kýs að
láta það kyrrt liggja, a.m.k. í bili.
Þeir Björgvin og Ólafur hafa lifað
tímana tvenna og ættu því að
þekkja sögu Framsóknarflokks-
ins vel og Sverrir sem er sagn-
fræðingur ætti að þekkja 90 ára
sögu flokksins. Þrátt fyrir þennan
bakgrunn þremenninganna eru
skrif þeirra eins ófagleg og
ósmekkleg og pólitísk umræða
getur orðið. Þegar skrifin eru
skoðuð þá fer ekki á milli mála að
tilgangurinn er einn og hann er sá
að kasta rýrð á Framsóknarflokk-
inn og þess vandlega gætt að
hvergi sé minnst á afrekaskrána
sem sagnfræðingur og reynslu-
boltar í þjóðfélagsumræðu ættu
best að vita, vilji þeir láta taka sig
alvarlega.
Að kasta steini úr glerhúsi
Nýjasta grein Sverris sagnfræð-
ings er háðsglósa um ótímabært
andlát Framsóknarflokksins og
meinta yfirtöku eignarhaldsfé-
lagsins Exbé á réttindum og skyld-
um flokksins. Sennilega væri
greinin fyndin ef hún kæmi ann-
ars staðar frá en úr herbúðum
stjórnmálaflokks sem byggður er
á rústum Alþýðubandalagsins
sem varð bæði hugmyndafræði-
lega og fjárhagslega gjaldþrota.
Gjaldþrotið varð við hrun Berlín-
armúrsins, en brautryðjendur
flokksins voru bæði fjármagnaðir
og heilaþvegnir af kommúnista-
flokkum austantjaldsríkjanna.
Dylgjur um vafasama fjármála-
starfsemi frá sagnfræðingi, sem
virðist hafa stjórnmálainnsæi
sem aðeins nær aftur fyrir síð-
ustu sveitarstjórnarkosningar og
hefur valið sér stjórnmálahreyf-
ingu sem á sér vafasama sögu
nátengda einræðisríkjum austan-
tjaldsríkjanna og fjárhagslegu
hruni ættu ekki að vera svara
verðar. Hins vegar er svo komið
að það er ekki lengur hægt að sitja
þegjandi undir þessu, enda grjót-
kast úr glerhúsum aldrei verið
talið skynsamlegt.
Hækjan
Björgvin Guðmundsson sleppir
hækjunni og heldur fast um penn-
ann í síðasta pistli þegar hann
ávarpar Framsóknarflokkinn sem
hækju íhaldsins. Hann telur að
flokkurinn verði með öllu áhrifa-
laus í samstarfinu í borginni og
hlýtur þá að miða við reynslu
Alþýðuflokksins af samstarfinu
við Sjálfstæðisflokkinn bæði í Við-
reisnarstjórninni og í Viðeyjar-
stjórninni. Ekki er ég viss um að
Jón Baldvin og aðrir foringjar
Alþýðuflokksins deili þeirri skoð-
un með Björgvini.
Í sömu grein er hann svo að
velta því fyrir sér að ef Fram-
sóknarflokkurinn hefði ekki
tapað svona miklu fylgi þá hefði
Reykjavíkurlistinn haldið meiri-
hluta sínum. Hann saknar greini-
lega hækjunnar sem hann hefur
stuðst við í meirihlutasamstarfi í
Reykjavík sl. 12 ár. Í hans spor-
um væri skynsamlegra að tala
um hækjuna með meiri virðingu
en hann hefur ástundað í skrifum
sínum fram að þessu, því án
hennar er hann dæmdur í minni-
hluta nema að vera hækja sjálfur
samkvæmt hans eigin kenning-
um.
Don Kikote
Ólafur Hannibalsson er sérkapít-
uli út af fyrir sig en heilagt stríð
hans gegn Framsóknarflokknum
má líkja við baráttu Don Kíkóti
við vindmyllurnar þar sem Þjóð-
arhreyfingin er í hlutverki hins
dygga þjóns Sansjós. Ólafur hefur
gengið lengra en aðrir fjandmenn
Framsóknarflokksins sem hér
hefur verið fjallað um því hann
hefur kært Framsóknarflokkinn
fyrir meint kosningasvindl við
síðustu borgarstjórnarkosningar.
Þau skrif og sá málatilbúnaður
allur er það versta sem komið
hefur frá andstæðingum Fram-
sóknarflokksins síðan Ólafur heit-
inn Jóhannesson var bendlaður
við Geirfinnsmálið. Við framsókn-
armenn spyrjum að leikslokum í
því máli og ég vona svo sannar-
lega að Don Kíkóti fái svo þungt
högg af vindmyllunum í þeirri við-
ureign, að það sjái undir iljarnar á
Sansjó sem þó hefur fylgt hús-
bónda sínum í vonlausri baráttu
fram að þessu.
Of langt gengið
Það er ekki meiningin með þess-
um skrifum að meiða þessa pistla-
höfunda persónulega. Staðreyndin
er einfaldlega sú að þeir hafa með
skrifum sínum gengið of langt í
því sem kalla má ofstæki og þrá-
hyggju í garð eins stjórnmála-
flokks. Ef allt það sem hefur verið
sagt og skrifað í aðförinni að
Framsóknarflokknum er skoðað
og nafnið Framsóknarflokkurinn
tekið út og gyðingur sett í staðinn
þá blasir við hvað hér er á ferð-
inni.
Það er í lagi að skrifa beitt og
horfa gagnrýnum augum á samfé-
lagið en til þess að það sé mark-
tækt þá þurfa menn að gæta sann-
girni og reyna þá í leiðinni að hitta
ekki sjálfa sig fyrir.
Með Framsókn á heilanum
UMRÆÐAN
SKRIF UM FRAM-
SÓKNARFLOKKINN
ÓSKAR BERGSSON
VARABORGARFULLTRÚI
Það er í lagi að skrifa beitt og
horfa gagnrýnum augum á
samfélagið en til þess að það
sé marktækt þá þurfa menn að
gæta sanngirni og reyna þá í
leiðinni að hitta ekki sjálfa sig
fyrir.
Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks
og Framsóknar hefur nú tekið við
í Reykjavík. Íhaldið fékk bæði
borgarstjórann og forseta borgar-
stjórnar en það eru tvö aðal-
embætti borgarstjórnar. Fram-
sókn fær fundarstjóra borgarráðs!
Ljóst er að í þessu efni hefur
Framsókn samið af sér. Auðvitað
hefði Framsókn átt að fá forseta
borgarstjórnar úr því Sjálfstæðis-
flokkurinn fékk borgarstjórann.
Löngusker gleymd
Stærsta kosningaloforð Fram-
sóknar var að flytja ætti Reykja-
víkurflugvöll á Löngusker í
Skerjafirði. Segja má, að Fram-
sókn hafi keyrt mestalla kosn-
ingabaráttuna á þessu loforði.
Ekkert er minnst á Löngusker í
nýjum málefnasamningi meiri-
hlutans. Það loforð virðist gleymt.
Það eina sem er sagt er, að ákveða
eigi á kjörtímabilinu staðsetn-
ingu flugvallarins. Það er lítið
annað en R-listinn hafði ákveðið.
Annað stórt kosningaloforð
Framsóknar var, að öll ungmenni
ættu að fá 40 þúsund króna frí-
stundakort til þess að auðvelda
þeim að stunda íþróttir og aðrar
tómstundir. Þetta loforð virðist
einnig hafa dottið upp fyrir í óða-
goti Framsóknar við að komast
upp í hjá íhaldinu. Nú er aðeins
talað um að ræða eigi við íþrótta-
félögin um þetta mál og gefa út
frístundakort síðar en engin upp-
hæð er nefnd.
Skreyta sig með fjöðrum R-listans
Eitt stærsta málið í kosningunum
voru málefni aldraðra. Mjög er
loðið það sem nýi meirihlutinn
segist ætla að gera í þeim mála-
flokki. Það, sem brennur heitast á
öldruðum í Reykjavík, er skortur
á hjúkrunarrými. Varðandi þau
mál er lítið bitastætt að finna hjá
nýja meirihlutanum. Nýi borgar-
stjórinn minntist á hjúkrunar-
heimili, sem R-listinn hafði sett í
gang svo sem á Lýsisreitnum. En
ekki dugar að skreyta sig með
fjöðrum frá R-listanum. Fleira
verður að koma til. Nýi meirihlut-
inn talar einnig um að hefja undir-
búning að byggingu íbúða fyrir
aldraða. Það er gott svo langt sem
það nær en hjúkrunarheimilin eru
mikilvægari að mínu mati. Þar er
þörfin brýnust.
Framsókn svíkur kosningaloforð
Framsókn lofaði gjaldfrjálsum
leikskóla en það loforð verður
svikið. Í staðinn er talað um að
lækka leikskólagjöld um 25%! R-
listinn hafði þegar byrjað að lækka
leikskólagjöld og Samfylkingin og
Vinstri græn boðuðu gjaldfrjálsan
leikskóla. Miklu skiptir að halda
leikskólunum snurðulaust gang-
andi, tryggja starfsfólk og greiða
því mannsæmandi laun. Undir for-
ustu Steinunnar Valdísar, borgar-
stjóra R-listans, voru laun starfs-
fólks á leikskólum hækkuð og með
því tókst að tryggja rekstur leik-
skólanna en áður voru þeir við það
að stöðvast. Margir íhaldsmenn
gagnrýndu þessa ráðstöfun R-list-
ans.
Launaútgjöldin gagnrýnd
Sjálfstæðisflokkurinn er nú
byrjaður að hnýta í R-listann
fyrir fjármálastöðu borgarinnar
en ekki var minnst á þau mál í
kosningabaráttunni. Segir Sjálf-
stæðisflokkurinn, að nýir launa-
samningar hafi kostað meira en
talið var og sagt áður. Mjög er þó
óljóst það sem Sjálfstæðisflokk-
urinn segir í þessu efni. Það er
ekkert nýtt að nýir launasamn-
ingar kosti meira en áætlað er.
Bæði ríki og sveitarfélög hafa
fundið fyrir því. En ljóst er, að
nýi meirihlutinn er að búa Reyk-
víkinga undir að fallið verði frá
fleiri kosningaloforðum en þegar
er komið í ljós.
Þegar íhaldið missti meirihlut-
ann í Reykjavík 1978 var ástandið
í fjármálum borgarinnar svo
slæmt eftir meira en hálfrar aldar
valdatímabil Sjálfstæðisflokksins,
að ekki var unnt að borga út laun
borgarstarfsmanna nema með sér-
stökum ráðstöfunum.
Íhaldið fær Orkuveituna
Framsókn hefur afhent íhaldinu
forustu Orkuveitunnar fyrstu tvö
árin. Er það athyglisvert, þar eð
árásir íhaldsins á Framsókn
(Alfreð Þorsteinsson) vegna Orku-
veitunnar voru mjög hatrammar.
Var í því sambandi talað um óráð-
síu og ævintýrafjárfestingar. Nú
er sá, sem stóð fyrir árásunum á
Framsókn, gerður að formanni
Orkuveitunnar! Hefur hann þegar
gefið í skyn, að risarækjueldi
Orkuveitunnar verði slegið af. Er
ljóst, að borgarfulltrúi Framsókn-
ar lætur allt yfir sig ganga aðeins,
ef hann fær að tilheyra meiri-
hlutanum.
Kosningaloforðin gleymd!
UMRÆÐAN
BORGARSTJÓRN
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
FYRRVERANDI BORGARFULLTRÚI
Nýi borgarstjórinn minntist á
hjúkrunarheimili, sem R-list-
inn hafði sett í gang svo sem
á Lýsisreitnum. En ekki dugar
að skreyta sig með fjöðrum frá
R-listanum. Fleira verður að
koma til.
um helgina
������� �� ��
�����
������������� �
�� ���
��� ��������� ��
����
���������� �������
����
�
��
�
��
��
��
���
���
��
���
���
���
����
�����
����
���
��
�����
����
���
� ��
���
����
��
���
���
���
����
���
���
���
��
����
���
���
���
��
���
��
���
����
���
����
����
���
����
����
����
��������
���������� ��
���
��
���
��
� �����
�
� �����
������
�������
�������
���� �
������
��������
�����
�������
��������
����
�����
������
������
��� ���
������
�� ��� �
����� �
�����
������
��� ���
� �����
� �����
�� ��� �
������
� ���� ��
���
������
��� �� �
������
������
������
�� ����
������ �
��
�������
������
������
������
������
������
������
������
������ �
������
��� ����
����� ��
����� �
����� ��
������
� ���
������
������
������
�������
������
������
������
����
������
������
��� ��
�� ���
������
� �� ��
����
�����
�������
�
�������
����
�����
��� ���
��
������
������
�����
�������
�������
��
������
����
������
������
������
����
�����
�������
������
������
��
������
�����
����
����
����
����
����
����
����
����
����
����
����
�� ������������������������������������������������������������������
�
�����
�������
��������
REYNSLUSÖGUR // FRÉTTIR // KYNLÍF // HEILSA // HVERJIR VORU HVAR // INNLIT // VIÐTÖL // UPPSKRIFTIR // STJÖRNUR
Á leið í
Miss World
& leikur í
Erninum
�
�
������������
����� ����
������������� ���
�� ������������
��������������
������ ���������
��� �������������
� ����������������
��������������
����������������
������� ��������������������������
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�����������
���������������
�������������
����������������
��� �����
��
�����
�