Fréttablaðið - 23.06.2006, Síða 71

Fréttablaðið - 23.06.2006, Síða 71
FÖSTUDAGUR 23. júní 2006 39 Portúgal 4., 11.og 18. júlí, 1., 8.,15.og 22. ágúst. Marmaris 27. júní, 2. og 18. júlí. 8., 22., 25. og 29. ágúst. Mallorca 27. júní, 11., 18. og 25. júlí, 8., 15., 22. og 29. ágúst. Plúsferðir · Lágmúla 4 · 105 Reykjavík · Sími 535 2100 Sólarlottó Þú velur áfangastað og ferðadaga en tekur þátt í lottóinu um hvaða gistingu þú lendir á. Viku fyrir brottför staðfestum við á hvaða gististað þú ferð. Krít 26. júní, 10., 24. og 31. júlí 7. og 14. ágúst. 39.990kr. á mann miðað við 2 eða 4 í stúdíó eða íbúð. Enginn barnaafsláttur. Innifalið: flug, gisting í 7 nætur, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Netverð frá www.plusferdir.is ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - PL U 3 32 52 06 /2 00 6 Tónlistarmaðurinn KK lauk fyrir skömmu upptökum á nýrri plötu sem er væntan- leg í búðir í byrjun júlí. Tvö lög af plötunni, Hún er með allt og Ég er á förum, fara í spilun í útvarpi á næstunni. Um er að ræða hreinræktaða blús- plötu sem er öll sungin á íslensku. Var hún tekin upp að hluta til í Nashville og skartar m.a. tveimur erlendum blásurum, auk þekktum köppum á borð við Guðmund Pét- ursson, Þorleif Guðjónsson og Sig- urð Flosason. Lögin eru eftir gamla erlenda blúsara og ættu flestir aðdáendur KK að kannast við þau því hann hefur flutt mörg þeirra á tónleikum á ensku í gegn- um tíðina. „Þetta er búinn að vera draum- ur hjá mér lengi,“ segir KK. „Íslenskir tónlistarmenn eru með fjöldann allan af verkefnum í gangi í einu og þetta er eitt af þeim sem ég hef haft lengi. Ég var búinn að taka upp fjórar heilar blúsplöt- ur sem voru bara ekki nógu góðar. Maður skipuleggur oft hlutina en þeir ganga ekki og þá reynir maður bara aftur,“ segir hann. Bætir hann því við að platan sé einungis eitt af hliðarverkefnum sínum enda komi ný sólóplata út í haust með öðruvísi efni. Textarnir á plötunni eru eftir Braga Valdimar Skúlason, Baggalút. „Við fórum inn með það í huga að prófa þetta. Kiddi, gítar- leikari í Hjálmum sem er líka í Baggalúti, tók upp plötuna og ég held að hann hafi stungið upp á þessu. Bragi prófaði nokkra texta og það tókst svona rosalega vel. Það er ekki síst honum að þakka hversu vel hefur tekist til,“ segir KK, sem saknaði þess ekkert að semja ekki textana sjálfur. KK játar að platan, sem nefnist KK blús, sé ekki svo ólík fyrstu plötunni, Lucky One, sem hann gaf út hérlendis við miklar vin- sældir á sínum tíma. „Þessi lög eru í raun og veru grunnurinn að allri þessari tónlist sem ég hef verið að spila. Þau eru líka grunn- urinn að allri popptónlist í dag, Blues had a baby and they called it rock´n roll,“ segir hann í léttum dúr. KK og félagar halda tónleika á Nasa þann 30. júní til að hita upp fyrir plötuna og bíða væntanlega margir spenntir eftir því að heyra ekta KK blús loksins sunginn á íslensku. freyr@frettabladid.is Tókst í fimmtu tilraun KK Tónlistarmaðurinn KK gefur út plötuna KK blús í byrjun næsta mánaðar. „Það má eiginlega kalla þetta heimsfrumsýningu en myndin verður frumsýnd á sama tíma í New York, Berlín og í Reykjavík,“ segir Bjarni Einarsson, annar rekstrarstjóra búðarinnar Belleville á Laugaveginum. Umrædd mynd er videóverk eftir frumkvöðul hjólabrettamenning- arinnar, Mark „The gonz“ Gonzal- es, fyrir framleiðslufyrirtækið Krooked en hjólabrettin þeirra eru einmitt seld í búðinni. Í myndinni sýna hjólabretta- strákarnir Dan Drehobl, Wan Wastell og Bobby Worrest skemmtilega, hættulega og athygl- isverða hegðun, í orði og gjörðum. Myndin verður sýnd í bakgarðin- um á Belleville, Laugavegi 55 á laugardaginn kl. 20 og einnig verða sýndar nýjar stuttmyndir eftir Spike Jonze og Neckface. Videóverk í Belleville MARK GONZALES Frumkvöðull hjólabretta- menningarinnar og leikstjóri myndarinnar. Fyrsta einkasýning Valdimars Harðarsonar Steffensen verður opnuð á laugardag á veitingahús- inu Sólon. Verkin á sýningunni, sem nefn- ist Völur, eru tíu talsins og eru öll unnin með olíutússpenna á striga. Eru þau unnin undir áhrifum sem Valdimar varð fyrir á fjölmörg- um ferðum sínum meðfram ströndum Íslands. Valdimar, sem er fæddur 1971, útskrifaðist frá hönnunardeild Iðnskólans í Reykjavík árið 1998. Þaðan lá leiðin í fornámsdeild Myndlista- og handíðaskólans sem síðan breyttist í Listaháskóla Íslands. Þaðan útskrifaðist hann með B.A. gráðu frá myndlistar- deild með áherslu á grafíklist árið 2002. Sýning Valdimars er opin á opnunartímum Sólon til fimmtu- dagsins 3. ágúst. Fyrsta sýning Valdimars VALDIMAR Sýning Valdimars nefnist Völur og stendur yfir til 3. ágúst. VÖLUR Tíu verk eru á sýningunni og eru þau öll unnin með olíutússpenna á striga. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? JÚNÍ 20 21 22 23 24 25 26 Föstudagur ■ ■ TÓNLEIKAR  23.00 Hljómsveitin The Gang frá New York spilar ásamt Ælu og Benny Crespo’s Gang. Tónleikarnir hefjast klukkan 23.00 og er aðgangseyrir 500 krónur. ■ ■ OPNANIR  21.00 Yst glitrar nefnist sýning Heimis Björgúlfssonar sem opnar í Suðsuðvestur, Hafnargötu 22 í Keflavík, í kvöld klukkan 21.00. ■ ■ LISTAHÁTÍÐ  20.00 Jónsmessuhátíð verður haldin í Hellisgerði í Hafnarfirði í kvöld klukkan 20. Þar verður áhersla lögð á trúna og kraftinn sem fylgir Jónsmessunni. Meðal skemmtikrafta má nefna Ragnheiði Gröndal og Blússveit Þollýjar. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. Alveg brilljant skilnaður Einleikur Eddu Björgvinsdóttur um allt land. Sjallinn Akureyri 22. og 23. júní Miðasala: Penninn Glerártorgi Viðskiptavinir Landsbankans fá 500 króna afslátt af miðaverði N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU- SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT ... sem flig vantar í n‡ja húsnæ›i›
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.