Fréttablaðið - 23.06.2006, Page 72
23. júní 2006 FÖSTUDAGUR40
tonlist@frettabladid.is
> Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI
Bela: Hole and Corner
Muse: Black Holes and Revelations
Fræ: Eyðilegðu þig smá
Eberg: Voff Voff
Hot Chip: The Warning
>
B
EL
A
>
M
U
SE
> Plata vikunnar
NEIL YOUNG: Living With War
„Neil Young skilar af sér sinni
bestu plötu í 30 ár. Gamli hippinn
þorir að segja hug sinn og fyrir
vikið fáum við plötu sem hefur
áhrif og skiptir máli. Living With
War á án efa eftir að verða talin
til hans mikilvægustu verka.“
BÖS
Bandaríski upptökustjór-
inn Ronan Chris Murphy,
sem hefur m.a. starfað með
meðlimum Tool og hljóm-
sveitinni King Crimson, er
um þessar mundir að taka
upp fyrstu plötu íslensku
rokksveitarinnar Canora
hér á landi.
Þrír meðlimir Canora voru áður í
d.u.s.t. sem gaf út eina plötu árið
2002 en hætti ári síðar eftir að hafa
verið nálægt því að skrifa undir
útgáfusamning í Bandaríkjunum.
Hafði Dale Penner, upptökustjóri
Nickelback, meðal annars endur-
hljóðblandað plötu d.u.s.t fyrir
Bandaríkjamarkað en ekkert varð
af þeirri útgáfu á endanum.
Einstakur hljómur Canora
Ronan Chris Murphy segir að eitt-
hvað hafi verið um tæknileg
vandamál til að byrja með við upp-
tökurnar á plötu Canora en eftir
það hafi allt gengið eins og í sögu.
„Canora er mjög góð hljómsveit
og hefur einstakan hljóm. Þeir eru
að spila tónlist sem er vinsæl í dag
en hún er samt aðeins öðruvísi.
Þetta er þung tónlist með einstakri
melódíu,“ segir Ronan. „Við stefn-
um að því að gera flotta plötu.“
Gítarleikari Wilco næstur
Ronan hefur tekið upp nokkur
hundruð plötur, þar á meðal fimmt-
án með hljómsveitinni King
Crimson. Einnig tók hann upp hlið-
arverkefni tveggja meðlima Tool.
Næst á dagskrá eru síðan þrjú
verkefni í Bandaríkjunum, þar á
meðal upptökur á nýrri plötu gít-
arleikara hljómsveitarinnar
Wilco.
Til Íslands í fjórða sinn
Ronan er að koma hingað til lands
í fjórða sinn og líkar alltaf jafn
vel. „Þegar ég hef ferðast á milli
Evrópu og Bandaríkjanna hef ég
komið við á Íslandi til að hvíla
mig. Ég kom hingað þrisvar á
tíunda áratugnum og þekkti flest-
ar vinsælustu sveitirnar þá. Núna
er ég smám saman að kynnast því
sem er í gangi núna,“ segir hann.
„Það er svo merkilegt hve tónlist-
arsenan er stór á Íslandi miðað við
hversu landið er lítið.“
Kynntust í Texas
Albert Ástvaldsson, söngvari
Canora, er hæstánægður með þátt-
töku Ronans í upptökuferlinu.
„Við hittum hann á South By
Southwest-hátíðinni í Texas fyrir
þremur árum þegar við vorum í
d.u.s.t. Svo hef ég verið í sambandi
við hann og kíkti á upptökunám-
skeið til hans í janúar. Í kjölfarið
hafði ég samband við hann og bað
hann um að taka upp,“ segir
Albert, sem vonast til að platan
komi út í byrjun október.
Aðrir meðlimir Canora eru
trommuleikarinn Magnús Ást-
valdsson, sem er bróðir Alberts,
bassaleikarinn Bæring Logason
og Jakob Þór Guðmundsson, gítar-
leikari, sem kom inn í nýju sveit-
ina þegar David Dunham hætti
eftir South By Southwest-hátíð-
ina. freyr@frettabladid.is
Canora fær góða
aðstoð að utan
RONAN OG CANORA Ronan Chris Murphy tekur upp fyrstu plötu íslensku rokksveitarinnar
Canora í Ryk-Stúdíó. Frá vinstri: Magnús Ásvaldsson, Bæring Logason, Albert Ásvaldsson,
Jakob Þór Guðmundsson og Ronan Chris Murphy á mixernum.
1. MUSESUPERMASSIVE BLACK HOLE
2. HARD-FIBETTER DO BETTER
3. DR. MISTER & MR. HANDSOMEIS IT LOVE
4. ANGELS AND AIRWAVESTHE ADVENTURE
5. BLUE OCTOBERHATE ME
6. TRABANTTHE ONE
7. CHARLATANSBLACKENED BLUE EYES
8. WOLFMOTHERWOMAN
9. MAMMÚTÞORKELL
10. FRÆDRAMATÍSK RÓMANTÍK
X-LISTINN
TOPP TÍU LISTI X-INS 977
MUSE Hljómsveitin Muse er í efsta sæti X-
listans með lagið Supermassive Black Hole.
Upptökum er lokið á fjórðu plötu rokksveit-
arinnar Brain Police. Platan, sem nefnist
Beyond the Waistland, er væntanleg síðar í
sumar en útgáfudagur hefur ekki verið
ákveðinn. „Þetta er okkar þróaðasta og
vandaðasta plata hingað til,“ segir Jónbi
trommari. „Hún ber þess merki að við séum
búnir að þroskast dálítið mikið síðan við
gáfum út okkar fyrstu plötu.“
Platan var tekin upp og hljóð-
blönduð á aðeins nítján dögum
og voru upptökustjórar Sví-
arnir Chips K og Stefan
Boman, sem hafa m.a. unnið
með The Hellacopters. „Við
fluttum inn tvo drengi frá
Svíþjóð sem eru mjög upp-
teknir menn. Til að geta unnið
hana með þeim höfðum við
svona lítinn tíma en hann var
í rauninni alveg nógu mikill. Við æfðum
gríðarlega vel áður en við fórum í stúdíóið
og þetta heppnaðist bara mjög vel,“ segir
Jónbi, sem ber Svíunum vel söguna. „Þetta
er besta starfsumhverfi sem ég hef kynnst
á mínum tónlistarferli. Þeir voru mjög
afslappaðir og þægilegir í umgengni og þar
af leiðandi var andrúmsloftið mjög yfirveg-
að. Þetta gekk alveg eins og í sögu.“
Brain Police ætlar í tónleika-
ferð hér heima í ágúst en í
október fer sveitin í 20 daga
reisu um Þýskaland.
Einnig spilar hún hugs-
anlega í Póllandi og
Hollandi í leiðinni.
Fyrsta lagið af nýju
plötunni er síðan væntan-
legt í spilun í byrjun
næsta mánaðar. - fb
Tilbúin á nítján dögum
Bono, Nick Cave, Sting, Lou Reed,
Antony og Jarvis Cocker eru á
meðal þeirra sem eiga lög á vænt-
anlegri tvöfaldri safnplötu sem
nefnist Rogue´s Gallery: Pirate
Ballads, Sea Songs & Chanteys.
Gore Verbinski, leikstjóri fram-
haldsmyndarinnar Pirates of the
Caribbean: Dead Man´s Chest, og
aðalleikarinn Johnny Depp áttu
hugmyndina að gerð plötunnar.
„Ég heillaðist af hugmyndinni um
að heyra nýja tónlist sem tengdist
sjónum,“ sagði Verbinski. „Ég
hugsaði með mér hvernig þeir
listamenn sem ég hlusta á og ber
virðingu fyrir myndu útfæra
svona gamaldags hugmynd um lög
tengd sjónum.“ Verbinski fékk
hjálp frá Depp varðandi plötuna
og sér ekki eftir því. „Hann er
mikill tónlistarmaður. Ég hef allt-
af haldið því fram að Johnny sé
fyrst og fremst tónlistarmaður en
leikarastarfið sé einungis dag-
vinnan hans.“
Platan, sem hefur að geyma 40
lög, er væntanleg þann 22. ágúst.
Þekkt nöfn á safnplötu
BONO Söngvari U2 á eitt lag á safnplötunni
Rogue´s Gallery: Pirate Ballads, Sea Songs
& Chanteys.