Fréttablaðið - 23.06.2006, Síða 74
23. júní 2006 FÖSTUDAGUR
*Aðalvinningurinn verður dreginn út úr öllum innsendum SMS skeytum!
Sendu SMS BT HM
V á
1900 og þú gætir u
nnið!
Við sendum þér sp
urningu.
Þú svarar með því
að senda SMS
skeytið BT A, B eð
a C á númerið 1900
.
ATH!5. HVER VINNUR!. I !
Taktu
þátt!
Frumsýnd
5. júlí!
Frumsýnd
5. júlí!
275. 999
Auðvitað
er BT með
HM leik!
Aðal-
vinningur!
• 32” Medion LCD sjónvarp
• Sony heimabíó
• GSM símar
• PSP tölvur
• SONY MP3 1GB
• PANASONIC LUMIX FX9
• MEDION V8 X1600 + 19”skjár
• Gjafabréf á Tónlist.is
• Fullt af HM myndum
• PS2 tölvur
• Bíómiðar - The Benchwarmers
• Fullt af Pepsi og en meira af
DVD, CD´s, VHS, tölvuleikjum! Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r í
B
T
Sm
ár
al
in
d,
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rtu
k
om
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
Sumarið er tíminn sem maður breytir um fatastíl og lætur gallabuxurnar víkja fyrir kjól
og pilsi. Stígvélin víkja fyrir sandölum og opnum skóm en hvað er vinsælast í sumar-
tískunni? Við spurðum verslunarstjóra í helstu tískuverslunum landsins um hvað þeim
fyndist að ekki mætti vanta í fataskáp landans í sumar.
Ómissandi fyrir sumarið
Helena Jónsdóttir,
verslunarstýra í Spúútnik í
Kringlunni:
„Stuttbuxur eru að verða svaka-
lega vinsælar og til í öllum
stærðum og gerðum. Einnig eru
samfestingar skemmtilegir og
kjólar eru einkennandi fyrir þetta
sumarið. Þeir eru til í öllum litum
og nú í sumar eru þeir vinsælli
í styttri kantinum. Einnig finnst
mér stór sólgleraugu vera mikil-
vægur fylgihlutur og sundbolirnir
eru að koma sterkir inn. Bæði til
að nota í sundi og líka er hægt
að nota þá sem fallega toppa við
gallbuxur. Chanel-töskurnar hafa
verið gríðarlega vinsælar og eru
þær til litlar og stórar úr leðri og
með lakkáferð.“
Dagný Hermannsdótt-
ir, aðstoðarverslunarstjóri í
Gallerí Sautján í Kringlunni:
„Kvartbuxur eru alltaf klassískar
yfir sumartímann og svo verður
maður að eiga flottar gallabux-
ur bæði í ljósum lit og dökkum.
Það er svo gott úrval núna í galla-
buxnasniðum og allt er til, útvíð-
ar, niðurþröngar og beinar skálm-
ar. Síðir bolir sem hægt er að
nota við sokkabuxur og yfir buxur
eru líka mjög vinsælir og til bæði
einlitir og í fallegum munstrum.
Sumarlitirnir eru túrkísblátt, app-
elsínugult, sítrónugult og ljós-
bleikt. Hettuvesti og síðar hett-
urpeysur eru eiginlega ómissandi
fyrir útileguna og einnig eru
jakkapeysur sniðugar á svölum
sumardögum.“
Helga Aradóttir, verslunar-
stýra í Kronkron á Lauga-
veginum:
„Að mínu mati er algjörlega
ómissandi fyrir konur að eiga
flottan sumarkjól úr léttu efni.
Það er til svo mikið af fallegum
kjólum í hlýjum sumarlitum og
einnig í flottum munstrum. Það
sama gildir um buxurnar í sum-
ar, þær eru nú fáanlegar í alls
konar efnum og í skemmtilegum
litum og munstrum. Háir hælar
með opna tána og létt sumar-
kápa með belti í mittið er einnig
mjög gott að eiga í fataskápnum.
Þetta sumar er litríkt og konur
eiga ekki að vera hræddar við
að gleðjast með sumrinu í lita-
gleði og það sama gildir um karl-
menninna.“
ELLÝ STEINSDÓTTIR,
VERSLUNARSTJÓRI Í EVU
Á LAUGAVEGINUM:
“SKRAUTLEG OG SÆT SUM-
ARPILS ER ALGJÖRT “MUST”
AÐ EIGNAST Í SUMAR. GYLLT-
IR SKÓR ERU MJÖG VINSÆLIR
ÞETTA SUMARIÐ, BÆÐI STRIGA-
SKÓR OG OPNIR SANDALAR.
GULLIÐ ER MIKIÐ Í SUMAR ÞÁ
SÉRSTAKLEGA Í FYLGIHLUT-
UM OG SKARTI. HÁLSMEN
ERU SKART SUMARSINS OG
ÞVÍ FLEIRI ÞVÍ BETRA. KLASS-
ÍK SÓLGLERAUGU OG EINN
FLOTTUR KJÓLL ER LÍKA NAUÐ-
SYNLEGT Í FATASKÁPINN. ÉG
HEF LÍKA GAMAN AF ÞVÍ AÐ
SKREYTA VENJULEGA JAKKA
Helga María Alfreðsdótt-
ir, verslunarstjóri í Zöru í
Smáralind:
„Tískan er búin að einkennast
af tímabilinu kringum 1950 og
því eru blómakjólarnir búnir að
rjúka út eins og heitar lummur
hjá okkur. Niðurmjóar buxur í
öllum litum er nauðsynleg að
eiga fyrir sumarið og venjulegi
dragtarjakkinn hefur vikið fyrir
litlum nettum jakka með kvart-
ermum yfir kjóla. Dökkblár, gras-
grænn og eldrauður hafa aldrei
þessu vant verið litir sumarsins
og einnig allt sem er gyllt eða
glansandi. Stjörnustíllinn hefur
verið allsráðandi með tilheyrandi
glingri, stórum sólgleraugum og
klút um hálsinn eða í hárinu.“
Svanhildur Birgisdóttir,
verslunarstjóri Jack&Jones í
Smáralind:
„Strákarnir verða að eiga kvart-
buxur í sumar, helst úr gallaefni
og líka einar gallabuxur með
þröngum skálmum. Pólóbolir
eru að koma sterkir inn í sumar
sem og stuttermaskyrtur. Bleiki
liturinn er vinsælasti sumarlitur-
inn í ár og eru strákar á öllum
aldri að kaupa boli og skyrtur í
þessum lit. Köflóttar og þvegnar
langerma skyrtur og flottir striga-
skór er nauðsynlegt fyrir herra-
menn landsins að eiga í sumar.“
Stórstjörnurnar og nýbökuðu for-
eldrarnir Angelina Jolie og Brad
Pitt hafa verið mikið á síðum slúð-
urblaðanna undanfarið vegna
fæðingu dóttur þeirra í byrjun
mánaðarins. Nú virðist sem ham-
ingjan sé úti því Pitt mun vera
orðinn leiður á að Angelina eyði
öllum sínum tíma með börnunum
og fær hann litla athygli frá leik-
konunni fögru. Samkvæmt
sænska blaðinu Aftonbladet mun
Pitt hafa stormað út af heimili
þeirra og skilið Jolie eftir í tárum
eftir rifrildi. Angelina og Pitt eiga
nú þrjú börn, tvö þeirra eru ætt-
leidd og hafa þau gefið yfirlýs-
ingu þess efnis að þau muni ætt-
leiða fleiri börn.
Vandamál í paradís
BRAD PITT OG ANGELINA JOLIE Eru nú
komin með stóra fjölskyldu sem tekur sinn
toll og Pitt er ekki ánægður með þá litlu
athygli sem hann fær frá spúsu sinni.