Fréttablaðið - 23.06.2006, Page 77

Fréttablaðið - 23.06.2006, Page 77
9 . H V E R V I N N U R ! S E N D U S M S S K E Y T I Ð J A S A F Á N Ú M E R I Ð 1 9 0 0 O G Þ Ú G Æ T I R U N N I Ð M I Ð A F Y R I R T V O . V I N N I N G A R E R U • B Í Ó M I Ð A R F Y R I R T V O • D V D M Y N D I R • T Ö L V U L E I K I R V A R N I N G U R T E N G D U R M Y N D I N N I O G M A R G T F L E I R A F R U M S Ý N D 2 2 . J Ú N Í Vi nn in ga r v er Ð a af he nd ir hj á BT S m ár al in d. K óp av og i. M eÐ þ ví a Ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úa b b. 9 9 kr /s ke yt iÐ . Þriðja plata rokksveitarinnar Audioslave, Revelations, kemur út 5. september. Gítarleikarinn Tom Morello lýsir plötunni sem blöndu af Led Zeppelin og Earth, Wind and Fire. „Þetta er stór rokkplata með fönkuðum undirtóni,“ sagði Mor- ello. Á meðal laga á plötunni er Original Fire og Wide Awake sem fjallar um eftirköst fellibyljarins Katrínar. „Það er líklega pólitísk- asta lag Audioslave til þessa,“ sagði Morello. Upptökustjóri plötunnar var Brendan O´Brien sem hljóðbland- aði síðustu plötu Audioslave, Out of Exile, sem fór beint á topp Bill- board-listans í Bandaríkjunum. Hann hefur áður tekið upp plöturn- ar Evil Empire, The Battle of Los Angeles og Renegades með Rage Against the Machine, sem Morello lék eitt sinn með. ■ Revelations kemur í byrjun september AUDIOSLAVE Hljómsveitin Audioslave gefur út sína þriðju plötu þann 5. september. [UMFJÖLLUN] TÓNLIST Hljómsveitin Fræ hefur verið gíf- urlega vinsæl á ýmsum útvarps- stöðvum landsins að undanförnu sem er að mörgu leyti ekki mjög skrítið. Hér eru samankomnir afar hæfileikaríkir tónlistarmenn sem vita greinilega alveg hvað þeir eru að gera. Fyrst ber að nefna Palla, gítarleikara úr Maus, sem sér um að spila afar angur- væra gítartóna sem bera uppi fal- legar melódíur plötunnar. Allar strengjaútsetningar eru einnig flestar mjög fagmannlegar. Auk Palla skipa hljómsveitina þeir Heimir og Sadjei úr rappsveitinni Skyttunum frá Akureyri og svo skilar Mr. Silla algjörlega galla- lausu framlagi sem viðlaga- og bakraddasöngkona. Taktar plötunnar tóna vel við angurværar melódíurnar og þegar þeir síðan sameinast tilfinninga- næmum textum Heimis má segja að úr verði ótrúlega heilsteypt blanda af því sem kalla mætti emo-rapp/popp. Heimir fær mik- inn og stóran plús fyrir að þora virkilega að semja svona rosalega rómantíska og væmna texta. Ekki allir alvöru rapparar myndu þora að opna sig svona og Heimi tekst afar vel upp. Þetta getur þó varla fallið vel í kramið hjá öllum og margir eiga líklega eftir að láta þessu væmnu texta fara ískyggi- lega mikið í taugarnar á sér. Þeir fara hins vegar ekki í taugarnar á mér heldur þvert á móti. Lagið Dramatísk rómantík er til dæmis ljúfsár slagari sem framkallar mjög ákveðnar tilfinningar. Lögin og textarnir eru þó ekki gallalaus þó að platan renni ljúft í gegn og sé án stórra mistaka. Í raun má segja að það sé pínu galli hversu auðveldlega hún renni í gegn þar sem nokkur laganna eru kannski aðeins of lík. Textar Heim- is eru einnig stundum kannski einum of klisjukenndir þótt þeir fjalli að mörgu leyti um mikilvægi málefni. Lagið Freðinn fáviti er án efa besta dæmið um þetta. Lögin Að eilífu ég lofa og Endirinn ná heldur ekki að heilla mig neitt sér- staklega. Eyðileggðu þig smá er samt að mestu skotheld plata þar sem ekki er tekin mikil áhætta nema þá kannski í textasmíð og fléttan gengur vel upp. Tilfinningamikið og flott hiphop sem rennur átaka- laust í gegn og er þægileg að hlusta á. Steinþór Helgi Arnsteinsson Væmið hiphop af betri gerðinni FRÆ: EYÐILEGÐU ÞIG SMÁ NIÐURSTAÐA: Ein forvitnilegasta hiphop/popp plata sem komið hefur út lengi. Einkennist af ljúfsárum og grípandi laglínum sem falla vel að tilfinningþrungnum og væmnum textum sem sleppa þó að langmestu leyti við að vera klisjukenndir. Fagmannlega gerð og hljómar þægilega í heyrnatólunum. Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Mugison, er byrjaður að semja tónlist við kvikmyndina Mýrina sem Baltasar Kormákur leikstýrir og er byggð á samnefndri bók eftir Arnald Indriðason. Mugison nýtur stuðnings konu sinnar Rúnu Esra- dóttur við tónsmíðarnar en hún mun jafnframt koma að útsetn- ingu tónlistarinnar. „Rúna er mín hægri hönd og mun semja og útsetja plötuna með mér,“ segir Mugison. „Svo mun Biggi tækni- maður í Sundlauginni hjá Sigur Rós einnig hjálpa til en hann er hin hægri hönd mín.“ Mugison segir að búast megi við að tónlistin verði einhvers konar blanda af Derrick-þáttun- um þýsku og Agötu Christie- myndunum bresku. „Annars dýrk- aði ég Clouseau-myndirnar með Peters Sellers. Hann var alveg frábær og í tónlistinni er ég kannski dálítið eins og hann í rann- sóknarstarfinu, það er að ég hrasa um eitthvað sniðugt,“ segir Mugi- son. Mugison býst við að tónlistin við Mýrina verði tilbúin eftir tvo mánuði eða svo en þá mun hann hefjast handa við að semja efni á þriðju hljóðversskífu sína. Mugison byrjaður á Mýrinni MUGISON Er byrjaður að semja tónlist við kvikmyndina Mýrina. FRÉTTIR AF FÓLKI Britney Spears segir son sinn vera mjög hrifinn af því þegar hún æfir dansana sína fyrir framan hann. Sérstaklega á son- ur- inn að vera ánægð- ur þegar Britney æfir kynæsandi dansana sem hún notar á tónleikaferðalög- um. Sonur hennar, Sean Preston, er níu mánaða. „Hann lifnar allur við þegar ég dansa fyrir hann,“ segir Britney sem virðist lítið fyrir að beita hefðbundnum uppeldisaðferðum á sínu heimili. Jónsi og félagar í hljómsveitinni Í svörtum fötum spila á balli á Players í kvöld og Ingólfs- hvoli við Selfoss á laugardagskvöld. Rangt var farið með staðsetningar dansleikjanna í blaðinu í gær og er beðist velvirð- ingar á því.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.