Fréttablaðið - 23.06.2006, Síða 80
23. júní 2006 FÖSTUDAGUR48
HANDBOLTI Alfreð Gíslason, lands-
liðsþjálfari í handknattleik, hefur
komist að samkomulagi við
Gummersbach um að hann taki við
þýska úrvalsdeildarfélaginu strax
í sumar en hann átti upprunalega
ekki að taka við liðinu fyrr en sum-
arið 2007. Gummersbach mun ekki
standa í vegi fyrir því að hann geti
sinnt skyldum sínum sem lands-
liðsþjálfari en það var forsenda
fyrir því að samningar tækjust.
Forráðamenn Gummersbach eiga
nú í viðræðum við Velimir Klajic,
núverandi þjálfara liðsins, um
starfslokasamning en hann á eðli-
lega eitt ár eftir af samningi sínum
við félagið. Málið er unnið í fullri
sátt við HSÍ sem fylgist grannt
með gangi mála.
„Við erum meðvitaðir um stöð-
una á þessu máli og það er alveg
ljóst að við munum ekki standa í
vegi fyrir því að Alfreð taki við lið-
inu svo framarlega sem hagsmun-
um HSÍ sé borgið. Ef störf hans
fyrir okkur og Gummersbach rek-
ast ekki saman þá leggjum við
blessun okkar yfir þetta,“ sagði
Einar Þorvarðarson, framkvæmda-
stjóri HSÍ, en um leið og gengið
hefur verið frá starfslokasamn-
ingi við Klajic verður hægt að
semja við Alfreð og HSÍ.
„Ég er mjög sáttur við að það
hafi tekist að leysa málið farsæl-
lega og í sátt við HSÍ. Landsliðið
hefur alltaf forgang hjá mér og
þessi niðurstaða hefur engin áhrif
á störf mín með landsliðið og ég
verð við stjórnvölinn á HM í jan-
úar í næsta mánuði,“ sagði Alfreð
við Fréttablaðið í gær en hann er
kominn aftur til Þýskalands.
Alfreð var í stöðugum viðræðum
við HSÍ og Gummersbach um
framhaldið eftir að ljóst varð að
Ísland kæmist á HM.
Alfreð mun geta sinnt landsliðs-
þjálfarastarfinu vel ytra þar sem
flestir leikmanna landsliðsins leika
með liðum í þýsku úrvalsdeild-
inni.
„Ég nenni ekki að vökva garð-
inn í heilt ár í viðbót. Vonandi
klárast þetta mál með Klajic sem
fyrst svo ég geti byrjað að vinna,“
sagði Alfreð léttur á því en hann er
eðlilega farið að klæja í lófana
eftir að komast aftur á fullu í þjálf-
un en hann hefur tekið því frekar
rólega eftir að hann var rekinn frá
Magdeburg.
Mikil uppbygging er í gangi hjá
Gummersbach, margir nýir menn
að koma inn í liðið og eðlilegt að
framtíðarþjálfari félagsins vilji
vera með puttanna í uppbygging-
unni frá byrjun.
„Það bíður mín spennandi vinna
hjá Gummersbach og þetta verður
krefjandi og skemmtilegt verk-
efni,“ sagði Alfreð en hann verður
með þrjá íslenska landsliðsmenn í
herbúðum félagsins næsta vetur -
þá Guðjón Val Sigurðsson, Róbert
Gunnarsson og síðan Sverri
Björnsson sem félagið keypti frá
Fram fyrir skömmu.
Undirbúningstímabilið hjá
Gummersbach á að hefjast 20. júlí
næstkomandi en það finnst Alfreð
vera allt og seint og því aldrei að
vita nema leikmenn liðsins verði
kallaðir fyrr út fríinu en þeir áttu
von á.
henry@frettabladid.is
Alfreð og Gummersbach
hafa náð samkomulagi
Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari í handknattleik, mun að öllum líkindum taka
við þýska liðinu Gummersbach á næstu dögum. Hann mun þrátt fyrir það stýra
landsliðinu á HM í Þýskalandi í janúar en málið er unnið í sátt við HSÍ.
AFTUR Í ELDLÍNUNA Alfreð Gíslason verður aftur kominn á hliðarlínuna í þýska boltanum
ef að líkum lætur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Juventus, AC Milan, Lazio
og Fiorentina hafa öll verið ákærð
af ítalska knattspyrnusamband-
inu. Þetta eru liðin fjögur sem
voru til rannsóknar af aganefnd
sambandsins en málið teygir anga
sína víða.
Forráðamenn Juventus hafa
verið til rannsóknar frá því í vor
vegna skandalsins sem hefur
snúið öllu fótboltalífi á Ítalíu á
hvolf. Juventus er ásakað um að
hafa hagrætt úrslitum í leikjum
hjá sér, í samráði við Pierluigi
Pairetto sem útnefndi dómara á
leiki í Serie-A deildinni. Stjórn
Juventus, með Luciano Moggi í
broddi fylkingar, sagði af sér
vegna málsins en símtöl hans við
Pairetto voru birt í heild sinni í
ítölskum fjölmiðlum. Hlutur hinna
liðanna þriggja er alvarlegur, en
þó mun minna en Juventus.
Verðgildi Juventus hefur lækk-
að um 40 prósent frá 9. maí en
stjórnin sagði af sér 14. maí og er
klúbburinn nú talinn vera um 112
milljóna punda virði. Meira að
segja stjórnandi vinsælasta knatt-
spyrnusjónvarpsþáttar á Ítalíu
sagði af sér eftir að ásakanir komu
fram um að Moggi hefði beðið
hann um að fegra ímynd
Juventus.
Auk þess var Juventus ásakað
um skattsvik og fölsun á opinerum
gögnum en félagið á yfir höfði sér
hörðustu refsinguna. Hún gæti
verið allt frá því að dregin verði af
félaginu stig í besta falli fyrir þá,
til sviptunar titla og falls í Serie-B
eða jafnvel Serie-C deildina í
versta falli. Réttarhöldin hefjast
28. júní og ef áfrýjað verður, er
réttað milli 7. og 9. júlí. Dómur
verður kveðinn upp fyrir 20. júlí.
Juventus, AC Milan, Lazio og Fiorentina hafa öll verið ákærð af ítalska knattspyrnusambandinu:
Juventus dæmt niður í Serie-C deildina?
LUCIANO MOGGI Maðurinn sem hefur verið hvað mest í brennidepli í sambandi við skand-
alinn stóra. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
FÓTBOLTI Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hyggst danska
félagið Silkeborg fá Keflvíkinginn
Hólmar Örn Rúnarsson til sín í
sumar.
Hólmar hefur leikið vel með
liðinu það sem af er sumri en þjálf-
ari Silkeborg horfði á æfingu Kefl-
víkinga í síðustu viku. Hann var
hér í för með Herði Sveinssyni og
Bjarna Ólafi Eiríkssyni, leikmönn-
um Silkeborg, en Hörður lék áður
með Keflavík en Bjarni með Val.
Hólmar kannaðist ekki við
málið þegar Fréttablaðið hafði
samband við hann í gær, né Rúnar
Arnarson, formaður knattspyrnu-
deildar Keflavíkur og faðir
Hólmars, en kvaðst einnig hafa
heyrt af áhuganum.
SPRÆKUR Hólmar Örn hefur leikið vel í
sumar.
FÓTBOLTI Craig Bellamy skrifaði í
gær undir fjögurra ára samning
við félagið sem hann studdi í æsku,
Liverpool. Bellamy stytti fjöl-
skyldufrí sitt í Grikklandi til að
skrifa undir samninginn en hann
var markahæsti leikmaður Black-
burn á síðasta tímabili, og ein aðal
ástæða þess að liðið komst í UEFA
bikarkeppnina.
„Mér er alveg sama um að
stytta fríið mitt, þetta er ótrúlegt
stund fyrir mig. Ég gifti mig í síð-
asta mánuði, en þetta jafnast alveg
á við það. Konan mín er kannski
ekki ánægð með að ég segi þetta
en það er alveg satt,“ sagði Bella-
my sem gekkst undir læknisskoð-
un á miðvikudaginn og var ekki
lengi að samþykkja að taka á sig
launalækkun til að spila fyrir
Liverpool. - hþh
Craig Bellamy til Liverpool:
Þetta er ótrú-
legur heiður
BELLAMY Skoraði þrettán mörk í 27 leikj-
um í ensku úrvalsdeildinni í fyrra.
NORDICPHOTOS/AFP
Hólmar Örn Rúnarsson:
Undir smásjá
Silkeborg
FÓTBOLTI Svo gæti farið að Íslands-
meistarar FH mæti aftur Baku frá
Aserbaídsjan í fyrstu umferð for-
keppni meistaradeildar Evrópu en
dregið verður í fyrstu tvær
umferðir keppninnar í dag og í
fyrstu umferð UEFA-bikarkeppn-
innar.
Tuttugu og tvö lið eru í hattin-
um í fyrstu umferðinni og er lið-
unum skipt í tvo styrkleikaflokka.
FH er í sterkari hópnum og getur
mætt liðum víða að, allt frá Fær-
eyjum til Kazakhstan. Sjötíu lið
taka þátt í fyrstu umferð UEFA-
bikarkeppninnar og er liðunum
þar skipt í þrjú svæði sem þýðir
að ferðalög Vals og ÍA verða í
styttri kantinum. Eins og hjá FH
er liðunum skipt í tvo styrkleika-
flokka en bæði Valur og ÍA eru í
neðri flokknum. Árangur síðustu
ára ræður um styrkleikaröðun-
ina. - esá
Dregið í Evrópukeppnum:
Mætir FH aft-
ur Neftchi?
FÓTBOLTI Leikjaniðurröðun fyrir
komandi tímabil í ensku úrvals-
deildinni var tilkynnt í gær. Eng-
landsmeistarar Chelsea byrja á
heimavelli og taka á móti
Manchester City en það ætti að
kæta stjóra liðsins, Jose Mourin-
ho.
Fyrir skömmu spáði hann því
að Chelsea myndi byrja á útivelli
þar sem enska landsliðið spilar
leik í vikunni fyrir fyrstu umferð-
ina. Hefur hann oftar en ekki hald-
ið því fram að forráðamenn úrvals-
deildarinnar hafi horn í síðu
Chelsea og láti Chelsea iðulega
spila á útivelli eftir leiki í Evrópu-
keppnum og landsleikjahlé.
Enska úrvalsdeildin:
Chelsea byrjar
á heimavelli
FÓTBOLTI Það var þungt hljóðið í
Gísla Hjartarsyni, stjórnarmanni
ÍBV, þegar Fréttablaðið hafði sam-
band við hann í gær. Ástæðan er
sú að ákveðið hefur verið að fresta
byggingu knattspyrnuhúss í Vest-
mannaeyjum en framkvæmdir á
byggingu nýja hússins áttu að
hefjast 1. júlí og ráðgert var að
húsið yrði tilbúið um áramótin.
„Byggingin var samþykkt með
sjö atkvæðum gegn engu í bæjar-
stjórninni á sínum tíma, en með
nýrri stjórn breyttist það skyndi-
lega. Að byggja húsið var fellt
með fjórum atkvæðum gegn þrem-
ur og nú er búið að setja málið á
byrjunarreit. Þetta tefur líklega
byggingu á húsinu um ár,“ sagði
Gísli, mjög óhress með málið.
„Þetta er áfall fyrir íslenska
knattspyrnu og boltann í heild
sinni í Vestmannaeyjum,“ bætti
Gísli við en Vestmannaeyingar
ætluðu að byggja hús líkt og FH
hefur gert, ekki í fullri stærð, en
löglegt til að leika í yngri flokkun-
um með frábærri æfingaaðstöðu
fyrir meistaraflokkinn. - hþh
Knattspyrnuhús í Eyjum:
Byggingunni
slegið á frest
EKKERT HÚS Christopher Vorenkamp og
Jonah Long, leikmenn ÍBV, fá ekkert knatt-
spyrnuhús til að æfa sig í í vetur.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR