Fréttablaðið - 23.06.2006, Page 86

Fréttablaðið - 23.06.2006, Page 86
 23. júní 2006 FÖSTUDAGUR54 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2 betl 6 klaki 8 ýlfur 9 kóf 11 tölvu- verslun 12 teygjudýr 14 dá 16 hvað 17 samhljóman orða 18 keyra 20 skyldir 21 skemmast af frosti. LÓÐRÉTT 1 einnig 3 ung 4 land 5 fálm 7 sam- stilltir 10 fley 13 loftþrýstieining 15 skömm 16 merki 19 bor. LAUSN LÁRÉTT: 2 snap, 6 ís, 8 ýla, 9 kaf, 11 bt, 12 amaba, 14 trans, 16 ha, 17 rím, 18 aka, 20 aá, 21 kala. LÓÐRÉTT: 1 líka, 3 ný, 4 albanía, 5 pat, 7 samtaka, 10 far, 13 bar, 15 smán, 16 hak, 19 al. Nýr humar, grillpinnar sólþurrkaður saltfiskur opið alla laugardaga 11-14 ALLT SEM fiIG VANTAR ER Á VISIR.IS/ALLT n‡ vöru- & fljónustu- skrá á visir.is Fyrir nokkrum árum sveik ég sjálfa mig og aðra. Þá lenti ég í því að verða ofsalega hrifin af manni sem ég hafði þekkt í lengri tíma og var vinur annars manns sem ég hafði verið með. Við höfðum hist fyrir tilviljun, dottið í spjall og haft svona rosalega gaman af hvort öðru. Ég verð þó að viðurkenna að ég leit hann öðrum augum en áður og fannst hann nú þónokkuð spennandi. Ég var meðvituð frá byrjun um að þetta væri kannski ekki alveg rétt af mér og vonaði að enginn sæi til. Stuttu seinna hittumst við svo aftur og spjölluð- um þá enn lengur. Þá áttaði ég mig á því að ég var að verða skotin í „vininum“. Fljótlega eftir seinna samtalið fékk ég símtal þar sem hann spurði hvort ég vildi hitta sig um kvöldið. Í fyrstu sagði ég nei vegna þess að samviskan nagaði mig svo svakalega og ég hélt ég gæti ekki lifað með sjálfri mér segði ég já. Um leið og ég lagði tólið frá mér, áttaði ég mig á því að mig langaði mest af öllu að segja já við stefnumótinu. Ég sat uppí sófa heima og nagaði mig í handarbökin vegna þess að ég vissi ekki hvort ég var að neita mér um bjarta framtíð. Eftir smá umhugsun sagði ég við sjálfa mig að kannski væri það ekki svo hræðilegt ef ég hitti hann einu sinni því það myndi sennilega hjálpa mér að sjá hvort hann væri málið og hvort þetta væri þess virði til að lækka í áliti annarra. Ég stimplaði já-ið inn í símann og sendi sms- skilaboð því ég hafði það ekki í mér að segja það upphátt. Nokkrum mínútum síðar fékk ég svar tilbaka: frábært, hittumst á kaffihúsinu. Kaffihúsið umrædda er ofurlítið kaffihús hér í borg þar sem sjaldnast er nokkur. Mér þótti því við hæfi að fremja glæpinn þar. Stefnumótið fór vel og við kysstumst meira að segja undir lokin. Mér fannst ég eiga dauðarefsingu skilið og þyrfti nú að fara huldu höfði því ég væri alræmdasti glæpamaður borgarinnar. Í framhaldi af þessu kvöldi áttum við all- mörg stefnumót af sama toga og urðum bálskotin hvort í öðru. Það sem gekk á í höfðinu á mér er efni í þriggja binda skáldsögu því ég þvældist fram og aftur með hugsanir um hvað væri siðferðislega rangt og hvað ég ætti skilið að upplifa og finna. Mér fannst ég hrikalega ósvífin en á sama tíma gerði ég mér fyllilega grein fyrir því að það er afskaplega erfitt að finna sér mann á þessu landi sem enginn í kringum mann hefur einhver tengsl við. Erum við ekki öll skyld hvort eð er? En hvað sem öðru líður... Framhald í næstu viku. REYKJAVÍKURNÆTUR HARPA PÉTURSDÓTTIR LENTI Í HUGSANAFLÆKJU SEM ER EFNI Í ÞRIGGJA BINDA SKÁLDSÖGU Milli steins og sleggju FRÉTTIR AF FÓLKI Ásmundur Helgason, bróðir Gunnars leikara og Hallgríms rithöfundar og brautryðjandi Sudoku á Íslandi, hóf störf sem sölu- og markaðsfulltrúi hjá bókaforlaginu Bjarti í gær. Ásmundur er öllum hnútum kunnugur í mark- aðsmálum og starfaði meðal annars sem markaðsstjóri hjá Frétt ehf. og Ölgerðinni áður en hann fór að gefa út Sudoku-bækurnar, sem slógu í gegn svo um munaði. Annars hefur Bjartur blásið til „stórsóknar í markaðsmálum,“ eins og segir á heimasíðu for- lagsins, undir slagorðinu „Hin fullkomna sumar- lesning“, sem byggir að sögn Bjartsmanna á hávísindalegri auglýsingatækni markaðsfræð- anna. Ásmund- ur er því væntanlega réttur maður á réttum stað. HRÓSIÐ ...fær Brynja Benediksdóttir, höfundur og leikstjóri sýningar- innar Ferðir Guðríðar, sem hefur verið sýnd í yfir 15 löndum. Óvíst er hvað Steingrímur Sævarr Ólafsson tekur sér fyrir hendur nú þegar hann er hættur sem upplýsingafulltrúi for- sætisráðherraneytisins. Steingrímur er sem stendur í sumar- fríi á Spáni með fjölskyldu sinni og sagðist í samtali við Fréttablaðið ekki vera farinn að leiða hugann að því hvað taki við hjá sér. Íslenskir knattspyrnumenn eru margir hverjir að ganga í hnapphelduna nú í sumar. Jóhannes Karl Guðjóns- son knattspyrnumaður hjá AZ Alkmar gekk að eiga Jófríði Guðlaugsdóttur fyrr í þessum mánuði og sömu sögu er að segja af Gylfa Einarssyni knatt- spyrnumanni hjá Leeds sem gekk að eiga Helgu Lind fyrirsætu. Þá mun Garðar Gunnlaugs- son ganga að eiga Ásdísi Rán Gunnarsdóttur um næstu helgi, svo það er óhætt að segja að bylgja hjóna- bands gangi yfir íslenska knatt- spyrnumenn um þessar mundir. -bs/kh Bylting hefur orðið á blöndunar- tækjum í sumum sturtum Vestur- bæjarlaugarinnar. Í stað gömlu tækjanna þar sem sundlaugargest- ir þurftu að blanda saman heitu og köldu vatni eru nú komin tæki af gerðinni Mora með hitastilli. „Það var komin tími til að end- urnýja blöndunartækin enda eru þau orðin 65 ára gömul,“ segir Guðrún Arna Gylfadóttir, for- stöðumaður Vesturbæjarlaugar- innar. Skipt var um átta af 24 blöndunartækjum í karla og kvennaklefunum. „Það eru margir ánægðir með þessar breytingu hjá okkur. Gömlu tækin voru stíf og það gat reynst erfitt að stilla hitann. Þetta munar miklu sérstaklega gagnvart börn- um því það er mun hentugra fyrir þau að skrúfa frá einum krana,“ segir Guðrún Arna en bætir við að þó hafi einhverjar óánægjuraddir heyrst. „Það eru aðallega fasta- gestir til margra ára sem vilja ekki breytingar á lauginni. Ég hef útskýrt málið fyrir þeim og þeir reyna að sýna þessu skilning. Gömlu tækin eru ekki framleidd lengur og varahlutirnir eru ekki til.” -kh Bylting í Vesturbæjarlauginni NÝ BLÖNDUNARTÆKI Ester Finnsdóttir, sem hefur starfað í Vesturbæjarlauginni í 24 ár, stendur við nýju Mora-blöndunartækin. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN „Mér líst bara ljómandi vel á en þetta er enn að síast inn í mann. Þetta verður alla vega mikið ævin- týri,“ segir Magni Ásgeirsson söngvari sem hefur verið valinn til að taka þátt í bandaríska raun- veruleikaþættinum Rockstar: Supernova. Um 20 milljónir Banda- ríkjamanna horfðu að meðaltali á síðustu þáttaröð og það má því búast við því að tugmilljónir manna muni horfa á Magna reyna fyrir sér í þættinum. Magni verð- ur einn 15 söngvara sem freista þess að heilla meðlimi hljómsveit- arinnar Supernova í von um að verða söngvari sveitarinnar. Supernova skipa gömlu rokkkemp- urnar Tommy Lee úr Mötley Crüe, Gilby Clarke úr Guns N‘ Roses og Jason Newsted úr Metallica. Fjórir Íslendingar fóru út til Los Angeles í áheyrnarprufur fyrir þættina, auk Magna þau Aðalheiður Ólafsdóttir Idol- stjarna, Kristófer Jensson úr Lights on the Highway og Hreim- ur Heimisson úr Landi og sonum. Magni komst svo áfram í 18 manna úrtak og eyddi síðustu viku í við- tölum og upptökum fyrir upphafs- stef þáttanna úti í Los Angeles. „Þátturinn verður í gangi í 15 vikur. Maður veit svo ekkert hvernig þetta mun ganga, ég gæti verið þarna úti í 10 daga eða 15 vikur,“ segir Magni. Hann segir að markmiðið með þáttunum sé að finna söngvara í hljómsveit, finna þann sem passar best inn í hljóm- sveitina. „Þess vegna getur maður ekki verið fúll ef maður er kosinn út. Þetta er ekki eins og Idol-ið þar sem valinn er besti söngvarinn,“ segir Magni sem er þegar farinn að kynnast stórstjörnunum í hljómsveitinni: „Já, við heilsumst með nafni. Það er alltaf hressandi. Þetta eru mjög vingjarnlegir strákar.“ Magni og hinir söngvararnir hafa undanfarið dvalist í glæsi- villu í Hollywood-hæðunum sem verður heimili þeirra á meðan á tökum þáttanna stendur. „Þetta er mjög stórt og ég sé Hollywood- skiltið út um gluggann hjá mér. Þarna er ljómandi sundlaug sem var meðal annars notuð í Britney Spears-myndbandi,“ segir Magni og hlær. Hann fær laun fyrir að taka þátt í Rockstar, nóg til að borga reikningana eins og hann orðar það. Hann gerir sér vel grein fyrir því að Íslendingar munu fylgjast vel með Rockstar en þætt- irnir verða sýndir á Skjá einum og áhorfendur geta kosið sinn mann. „Íslendingar vilja auðvitað alltaf vinna. Maður verður orðinn þjóð- areign eins og handboltalandslið- ið.“ Fyrsti þáttur Rockstar verður sýndur á Skjá einum á miðnætti hinn 5. júlí. hdm@frettabladid.is MAGNI ÁSGEIRSSON: ÞARF AÐ SANNA SIG FYRIR MILLJÓNUM ÁHORFENDA ROCKSTAR Verður þjóðareign eins og handboltalandsliðið MAGNI ÁSGEIRSSON Tekur þátt í raunveruleikaþættinum Rockstar sem tugmilljónir áhorf- enda fylgjast með. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.