Fréttablaðið - 15.09.2006, Page 27
FÖSTUDAGUR 15. september 2006 3
Matarveislan mikla Food and Fun leggur
land undir fót og gleður matgæðinga í St.
Pétursborg næstu daga.
Dagana 13. til 17. september verður hátíðin
Food and Fun haldin í Rússlandi undir nafn-
inu Icelandic Food and Fun St. Petersburg.
Hátíðin fer fram í samvinnu við þrjá virtustu
og þekktustu veitingastaði Pétursborgar.
Íslendingar eru vel kunnugir þessari hátíð
en hún er haldin árlega í Reykjavík. Ár hvert
koma allt að þrjátíu heimsfrægir kokkar til
landsins og matreiða glæsilega rétti úr
íslensku hráefni á veitingahúsum á höfuð-
borgarsvæðinu.
Á síðasta ári héldu tólf íslenskir mat-
reiðslumenn til Washington í Bandaríkjunum
og kynntu íslenska eldamennsku. Nú ætla
Íslendingarnir að sleppa fram af sér beislinu
í rússneskum eldhúsum og hafa sér til full-
tingis fjóra góðvini frá Washington, þá
Robert Wiedmayer frá veitingastaðnum Mar-
cel‘s, Jeff Buben frá Vidalia, Gus Demillo frá
DC Coast og Ris Lacoste. Frá Noregi kemur
Jonas Lundgren yfirkokkur á Bagatelle í
Ósló og frá Finnlandi koma Timo Melto og
Matti Lempinen matreiðslumeistarar.
Íslensku kokkarnir eru þeir Eyþór Rúnars-
son hjá veitingahúsi Sigga Hall á Óðinsvéum,
Guðvarður Gíslason á Apótekinu, Hallgrím-
ur Sigurðsson, matreiðslumeistari á Vox og
Siggi Hall, en hann verður eins konar yfir-
kokkur þessarar hátíðar.
Þessir höfðingjar munu sýna listir sínar á
veitingastöðunum Rypa, Moskvu og Bellini
og einnig á Ambassador-hótelinu. - jóa
Food and Fun í Pétursborg
Frá opnun Food and Fun á Íslandi
síðastliðinn febrúar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Grænmetissnúðar
Uppskrift Ingibjargar Hafstað húsfreyju í
Vík í Skagafirði.
6 dl mjólk
2 msk. hunang
1/2 dl olía
1 tsk. salt
1 kg hveiti
1 bréf þurrger
4 sneiðar skinka
1 græn paprika
1 rauð paprika
1/2 blaðlaukur
Smá mexíkóostur eða annar ostur
Mjólkin, hunangið og saltið er yljað.
Þurrgerið sett út í og látið bíða smá stund.
Síðan er öllu blandað saman og degið
hnoðað létt. Látið lyfta sér í um hálftíma og
á meðan er grænmetið, skinkan og osturinn
skorið smátt. Síðan er deigið flatt út, smurt
með smá smjöri og góðmetinu dreift yfir.
Deigið rúllað upp og skorið í sneiðar sem
látnar eru á plötu. Gott er að pensla þær
létt með eggi hrærðu í mjólk. Breitt yfir
plötuna og snúðarnir látnir lyfta sér í um
20 mínútur á volgum stað áður en þeir eru
bakaðir við 200 gráðu hita þar til þeir eru
gullinbrúnir.
Heimabakaðir snúðar með grænmeti
eru hollir, saðsamir og lystugir.
Grilluð stórlúða
fyrir fjóra
800 gr stórlúða
sítrónupipar
salt
Stráið sítrónupipar yfir lúðuflökin og leggið
á grillið í þrjár til fjórar mínútur á hvora
hlið. Saltið þegar lúðan er tekin af grillinu.
SÓSA
4 grillaðar paprikur, rauðar
3 msk majónes
salt og pipar
Paprikurnar grillaðar, afhýddar og mauk-
aðar með töfrasprota og maukið sett út í
majónesið ásamt salti og pipar.
KARTÖFLUMÚS
400 gr kartöflur
1 dós fetaostur
2 grillaðar paprikur, rauðar
smjör og salt
Kartöflurnar soðnar, afhýddar og
maukaðar. Blandað með smjöri og salti
og smakkað til eftir smekk. Paprikum og
fetaosti bætt í.
uppskrift Sigurrósar }
*Gallup Október 2005
Mest
lesna tímaritið *