Fréttablaðið - 15.06.2007, Side 67

Fréttablaðið - 15.06.2007, Side 67
Kynntu þér málið á www.glitnir.is, í næsta útibúi eða hjá Þjónustuveri í síma 440 4000. GÓÐIR VIÐSKIPTAVINIR GÓÐIR PUNKTAR Írska rokksveitin Ash ætlar að hætta að gefa út plötur. Þess í stað mun hún gefa út smáskífulög á netinu. „Með tilkomu niðurhalsins hefur áherslan aukist á einstaka lög,“ sagði Tim Wheeler, for- sprakki Ash. „Það hjálpar ekki til að flestir virðast hafa gleymt hvernig á að gera góða plötu.“ Orðrómur var uppi um að Ash ætlaði að hætta eftir útgáfu vænt- anlegrar plötu sinnar Twilight of the Innocent en sú er ekki raun- in. „Þegar maður er bundinn því að gefa út plötur þarf að bíða í sex mánuði frá því að maður klárar hana og þangað til hún kemur út. Með því að hætta að gefa út plötur getum við tekið upp lag og gefið það út næsta dag ef okkur langar til,“ sagði hann. Netið í stað hljómplatna Alþjóðlega hljómsveitin [box] heldur tónleika á Gauki á Stöng mánudaginn 18. júní. Sveitin er hugarfóstur dönsku menningar- stofnunarinnar Inkling Film sem hafði það að markmiði að leiða saman fjóra kunna tónlistarmenn sem höfðu aldrei leikið saman áður, láta þá taka upp plötu og fara í stutta tónleikaferð um Evrópu. Endar sú ferð í Reykjavík. Hljóm- sveitina skipa Trevor Dunn frá Bandaríkjunum, Morgan Ågren frá Svíþjóð, Raoul Björkenheim frá Finnlandi og Ståle Storløkken frá Noregi. [box] spilar á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.