Fréttablaðið - 09.12.2007, Síða 8
8 9. desember 2007 SUNNUDAGUR
Kryddaðu eldhúsið
með heimilistækjum
frá Siemens.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Espressó-kaffivélar,
bjóðum upp á mikið úrval.
Tilvalin jólagjöf handa
heimilisfólkinu.
Heimilistæki, stór og smá,
ljós, símar, pottar og
pönnur.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
1. Hvar fundust nýlega leifar af
forsögulegu sæskrímsli?
2. Hvaða skip strandaði rétt
utan við Grindavíkurhöfn á
föstudagsmorgun?
3. Hvar fengu 10 ára drengir
Breezer að drekka á miðviku-
daginn?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 50
VEISTU SVARIÐ?
FÉLAGSMÁL Konur eru oftast beitt-
ar ofbeldi inni á heimili sínu en
körlum stafar mest hætta af
ókunnugum. Þetta kom fram á
málþingi mannréttindanefndar
Reykjavíkurborgar um hvernig
borgaryfirvöld gætu spornað við
ofbeldi gegn konum.
Á málþinginu töluðu fulltrúar
frá Reykjavíkurborg og helstu
grasrótarsamtökum, sem fjalla
um eða starfa með konum sem
beittar hafa verið ofbeldi.
Að sögn Eyrúnar B. Jónsdóttur,
umsjónarhjúkrunarfræðings
Neyðarmóttöku vegna nauðgun-
ar, eru starfsmenn bráðamóttöku
Landspítalans mjög á móti löng-
um opnunartíma skemmtistaða.
Þar séu flest brotin framin, þar
sem bæði gerandi og þolandi séu
ölvaðir.
Eyrún segir meirihluta þeirra
sem leiti til neyðarmóttökunnar
vera á aldrinum tólf til átján ára.
Því megi þó ekki gleyma að
flest brot verði innan veggja
heimilanna, en árið 2007 hafa níu-
tíu konur leitað til bráðamót-
tökunnar vegna ofbeldis núver-
andi eða fyrrverandi maka.
Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir
hélt erindi fyrir hönd Reykja-
víkurAkademíunnar. Hún sagði
aðeins líkamlegt ofbeldi vera
sýnilegt öllum. Nauðsynlegt væri
að vinna einnig gegn kerfis-
bundnum og menningarlegum
þáttum, þaðan sem líkamlegt
ofbeldi væri sprottið, með for-
varnastarfi í skólum og víðar.
Sigþrúður Guðmundsdóttir,
framkvæmdastýra Kvenna-
athvarfsins, segir ástæður sem
karlar gefi upp þegar þeir beiti
konur sínar ofbeldi iðulega vera
byggðar á staðalímyndum um
kynin á borð við að konur þeirra
hafi matinn ekki tilbúinn á rétt-
um tíma eða neiti þeim um kyn-
líf. Áður fyrr hafi stúlkum verið
kennt að verða við kröfum eigin-
manna sinna og reita þá ekki til
reiði, en nú þurfi að beita öðrum
aðferðum og efla jafnréttis-
fræðslu barna.
Sóley Tómasdóttir, formaður
mannréttindanefndarinnar, segir
frumkvæðið að vinnu gegn
ofbeldi gegn konum aldrei hafa
komið frá yfirvöldum.
„Áður stofnuðu kvennapólitísk
samtök á borð við Stígamót og
Kvennaathvarfið úrræði fyrir
þessar konur, sem yfirvöld hafa
síðan stutt fjárhagslega,“ segir
Sóley, en hugmyndir sem komu
fram á málþinginu verða notaðar
til þess að gera heildstæða
aðgerðaáætlun um hvernig megi
sporna við ofbeldi gegn konum.
eva@frettabladid.is
Hættulegast
að vera heima
Fagfólk sem starfar með konum sem beittar hafa
verið ofbeldi segir nauðsynlegt að efla jafnréttis-
fræðslu á öllum skólastigum. Níutíu konur hafa leit-
að til bráðamóttöku vegna heimilisofbeldis á árinu.
SÓLEY TÓMASDÓTTIR Ráðhúsið er skreytt myndum af 2.887 konum sem tákna þær
konur dvalið hafa í Kvennaathvarfinu síðan það var stofnað fyrir 25 árum.
BRUSSEL, AP Utanríkisráðherrar
NATO-ríkja ákváðu á fundi sínum
í Brussel á föstudag að bandalagið
héldi áfram úti sterku friðargæslu-
liði í Kosovo.
Meirihluti Kosovobúa virðist
staðráðinn í því að stíga frekari
skref í átt að fullu sjálfstæði frá
Serbíu eftir að alþjóðlegar samn-
ingaviðræður um þjóðaréttarlega
stöðu Kosovo fóru út um þúfur.
„NATO mun bregðast af festu
við hvers kyns tilraunum til að
ógna öryggi íbúa Kosovo,“ segir í
ályktun NATO-ráðherranna sem
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra stendur líka að.
Með ályktuninni senda NATO-
ráðherrarnir kosovo-albanska
meirihlutanum lítt dulda viðvörun
um að grípa ekki til þess að lýsa
yfir sjálfstæði eftir að samninga-
menn frá Rússlandi, Evrópusam-
bandinu og Bandaríkjunum hafa
viðurkennt að tilraunir til samn-
ingalausnar hafi strandað.
Ráðherrarnir ályktuðu einnig
um þörfina á skipun sérlegs erind-
reka til að samræma betur stjórn
friðargæsluverkefnis bandalags-
ins í Afganistan. - aa
RÁÐHERRAR Í BRUSSEL Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra á tali við
kollega sína. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Utanríkisráðherrafundur Atlantshafsbandalagsins:
Ályktað gegn asa í Kosovo
LÖGREGLUMÁL Ökumaður, sem
grunaður er um að hafa ekið
undir áhrifum fíkniefna, var
stöðvaður af lögreglunni á
Akureyri fyrir helgi. Við nánari
eftirgrennslan kom einnig í ljós
að ökumaðurinn hefur verið án
ökuleyfis um nokkurt skeið.
Maðurinn brást illa við
afskiptum lögreglu með því að
reyna að stinga af, fyrst á bílnum
og svo á tveimur jafnfljótum en
komst ekki langt. Sérstakt átak
gegn ölvunar- og fíkniefnaakstri
stendur nú yfir á Norðurlandi. Að
sögn lögreglunnar á Akureyri
hefur fjöldi ökumanna verið
stöðvaður síðustu daga. - þo
Ók próflaus og undir áhrifum:
Reyndi að
stinga af