Fréttablaðið - 09.12.2007, Síða 20

Fréttablaðið - 09.12.2007, Síða 20
20 9. desember 2007 SUNNUDAGUR Þ essi áhugi er í raun eldri en ég man eftir. Ég hef haft áhuga á flugvélum frá því ég allra fyrst man eftir mér,“ segir Baldur Sveinsson, 65 ára fyrrverandi framhaldsskólakennari, ljósmynd- ari og flugvélaáhugamaður. Baldur ólst upp í Reykjavík ásamt þremur systkinum sínum, en faðir hans hafði einkaflug- mannspróf og því var stutt að sækja flugvélaáhugann. „Þeir voru ófáir sunnudagsbíltúrarnir með pabba sem enduðu niðri á Reykjavíkurflugvelli. Hann hafði auðvitað meiri áhuga á vélunum út frá sjónarhorni flugmannsins en mér fannst þær bara svo spenn- andi,“ segir Baldur Byrjaði á því að mynda módel Baldur byrjaði snemma að hafa áhuga á flugvélamódelsmíði. „Um leið og þau fóru að berast þessi plastmódel af flugvélum, þá fór ég að leita eftir þeim. Það var svo kunningi pabba, Sverrir Jónsson flugmaður, sem kom oft með svoleiðis heim handa okkur bræðrunum frá útlöndum,“ segir Baldur. „Ég byrjaði að mála flug- vélamódelin mín öðruvísi en stóð í leiðbeiningum og reyndi þá oft að mála þær þannig að þær líkt- ust flugvélum sem ég hafði séð.“ Þegar Baldur var nítján ára keypti hann sér sína fyrstu myndavél, og þá var ekki aftur snúið. „Eftir að fékk myndavél- ina byrjaði ég að mynda módelin mín til gamans,“ segir Baldur. Það var svo árið 1963 á Flug- deginum í Reykjavík sem Bald- ur tók sína fyrstu „alvöru“ flug- vélamynd, eins og hann segir sjálfur. „Já, þetta var svona fyrsta alvöru flugvélamyndin mín. Myndin er af Neptune kaf- bátarleitarflugvél og síðan þá hef ég alltaf haldið mikið upp á þessa tegund af flugvélum,“ segir Baldur, en hann hefur hald- ið úti vefsíðu undanfarið þar sem gefur að líta hluta mynd- anna sem hann hefur tekið í gegnum tíðina. „Stuttu síðar, upp úr 1964, byrjaði ég að mynda flugvélar á Reykjavíkurflugvelli. Síðan komst ég inn á flugvöllinn á Keflavíkurflugvelli í gegnum sambönd sem pabbi hafði, og þar fékk ég að keyra um og taka myndir af herflugvélunum,“ segir Baldur. „Það hafði enginn áður fengið að gera, en þar með byrjaði ég að safna myndum af herflugvélum.“ Dreymdi um að verða orrustuflugmaður Það er óhjákvæmilegt að spyrja mann með jafn mikla flugvélabakt- eríu og Baldur, hvort hann hafi ekki dreymt um að fljúga flugvél- um sjálfur. „Jú, þegar ég var smá- strákur, en það var fljótt að fara. Ég sá ekki fram á að draumur minn myndi verða að veruleika, en vita- skuld kom ekkert annað til greina en að verða orrustuflugmaður og fljúga orrustuflugvélum, en hvað eiga eiginlega margir strákar svona draum?“ Nú eru flugvélamyndir Baldurs farnar að hlaupa á þúsundum. Hann hefur verið iðinn við að mynda flestar þær vélar sem hing- að til lands hafa komið, en hann hefur notið stuðnings við mynda- söfnunina. „Þeir hafa verið dugleg- ir að hringja í mig úr turninum hér og í Keflavík þegar hingað hafa komið flugvélar sem ekki hafa komið hingað áður,“ segir Baldur. Erfiðast að gera upp á milli mynd- anna Til að gefa sem flestum kost á að njóta myndanna ákvað Baldur að gefa út bók með flugvélamyndunum sínum. „Ég hef oft hugsað um að koma þessu myndasafni mínu út þannig að fleiri geti notið þess en ég. Það er jú líka ekki nema hálft gaman að eiga myndirnar einhvers staðar í kössum.“ Í bókinni er að finna um 320 stór- ar flugvélamyndir sem Baldur hefur tekið í gegnum tíðina, auk fjölda smærri mynda. Þar eru myndir af herflugvélum, farþega- flugvélum og einkaflugvélum sem annaðhvort hafa verið staðsettar hér eða hafa átt leið hér um. Mikil vinna fór í bókina, en að sögn Bald- urs var erfiðast að velja hvaða myndir skyldu fara í hana. „Ég fór í gegnum allar myndirnar mínar sem ég vissi að væru almenni- legar og þá komst ég fyrst að raun um hversu gríðarlega mikill fjöldi þetta er af myndum. Ég var fljót- lega búinn að velja hvaða myndir ég vildi sjá í bókinni, en þær voru hvorki meira né minna en um tvö þúsund talsins,“ segir Baldur. „Þá þurfti maður að fara að skera niður og það var kannski það erfiðasta við gerð þessarar bókar, að gera upp á milli barnanna minna. Það var alveg jafn erfitt og að gera upp á milli sinna eigin barna, því af hverju á maður að taka þessa mynd frekar en einhverja aðra, sem er jafn góð? Það fór töluverð vinna í þetta, því ég var fljótur að skrifa textann við hverja mynd eftir að ég hafði valið hvaða myndir ætti að nota.“ Ekki bara bók fyrir flugdellukalla Baldur segir bókina eiga erindi við fleiri en karla með brennandi áhuga á flugvélum. „Það er svo margt í henni, landslagið, bakgrunnurinn og myndir af því hvernig borgin hefur breyst, þetta er miklu meira en bók sem er bara fyrir flugdellu- kalla. Þetta er innsýn inn í það sem ég hef verið að gera undanfarin 43 ár,“ segir Baldur. Baldur hefur gert mikið af því í gegnum árin að mynda farþega- flugvélar að beiðni íslenskra flug- félaga og er fjöldi þeirra mynda að finna í bókinni. Bandaríska varnar- liðið falaðist einnig eftir starfs- kröftum Baldurs á meðan það var hér á landi og hefur Baldur meðal annars fengið að fljúga í f-15 orrustuþotu til að mynda slíkar vélar á flugi. Baldri er þó minnis- stæðast eitt sérstakt verkefni sem hann tók að sér fyrir varnarliðið. Endaði óvænt í Englandi „Ég flaug með tankvél varnarliðs- ins í haust til að taka myndir af her- æfingunni Norðurvíkingurinn. Ég ætlaði að mynda þegar orrustuþot- ur taka eldsneyti á flugi, en þegar ég var kominn á loft tók ég eftir því að glugginn sem ég ætlaði að mynda út um var löðrandi í glussa og því enginn möguleiki að mynda út um hann,“ segir Baldur. „Stuttu síðar komu upp þrjár litlar bilanir í vél- inni sem ég var um borð í og vegna þess að önnur biluð vél var stödd á Keflavíkurflugvelli var ákveðið að fljúga vélinni til Englands, svo ég endaði þar og þurfti að gista eina nótt. Síðan þegar fljúga átti til baka, gekk ég úr skugga um að glugginn á vélinni yrði þveginn. Það var gert og ég náði að taka nokkrar skýrar og góðar myndir af þotunum á leið- inni heim.“ Spurður um hvort Baldur ætli að gefa út fleiri bækur með flug- vélamyndunum sínum, svaraði hann: „Þetta er nóg í bili, en ég á svo sem til nóg af myndum í fleiri bækur. Eitt er víst, að safnið á bara eftir að halda áfram að stækka,“ segir Baldur og hlær, sem er hvergi nærri hættur að gera það sem honum finnst skemmtilegast. Ég sá ekki fram á að draumur minn myndi verða að veruleika, en vitaskuld kom ekk- ert annað til greina en að verða orrustu- flugmaður og fljúga orrustuflugvélum, en hvað eiga eiginlega margir strákar svo- leiðis draum? Ljósmyndir af flugvélum orðnar fleiri þúsund talsins Baldur Sveinsson fékk sem barn brennandi áhuga á flugvélum. Hann byrjaði ungur að ljósmynda flugvélar af öllum stærðum og gerðum. í nýútkominni bók Baldurs, sem ber heitið Flugvélar, gefur að líta brot af ævistarfi hans. Ægir Þór Eysteinsson blaða- maður settist niður með Baldri til að ræða bókina og flugvélaástríðuna. FYRSTA „ALVÖRU“ MYNDIN Þessi mynd er tekin á Flugdaginn 1963 í Reykjavík og er af bandarískri Neptune kafbátaleitarflugvél. Þetta er elsta myndin í bókinni og skipar sérstakan sess hjá Baldri, enda um uppáhaldsflugvélategundina hans að ræða. MYND/BALDUR SVEINSSON Fæddur: 25. janúar 1942 í Reykjavík. Foreldrar: Sveinn Ólafsson fram- kvæmdastjóri og Aðalheiður Pálína Guðmundsdóttir húsmóðir, þeim varð fjögurra barna auðið. Fyrstu árin: Baldur fæddist á Grett- isgötu í Reykjavík og bjó þar fyrstu árin. Þaðan fluttist hann á Hjallaveg þegar hann var fimm ára gamall. Þá lá leiðinn á Bústaðaveginn við tíu ára aldurinn og síðan í Garðabæinn þegar hann var átján ára. Þar bjó hann til tvítugs eða þar til hann gifti sig og flutti aftur til Reykjavíkur. Maki: Kristín Ingunn Jónsdóttir. Börn: Sveinn Baldursson tölvufræð- ingur, Árni Jón Baldursson og Sigríð- ur Björk Baldursdóttir leikkona. Menntun: Gagnfræðaskólapróf frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Stúd- entspróf frá Verzlunarskóla Íslands. Eitt ár í stærðfræðideild Mennta- skólans í Reykjavík. Kennsluréttindi frá Háskóla Íslands í stærðfræði, efnafræði og eðlisfræði. Störf: Starfaði sem stærðfræði- og tölvukennari við Verslunarskóla Íslands í 43 ár, eða þar til hann komst á eftirlaun vorið 2006. ➜ BALDUR SVEINSSON Í HNOTSKURN TVÆR NORSKAR F-16 ORRUSTUÞOTUR Þessa mynd tók Baldur á leið heim frá Eng- landi, eftir að hafa lent þar óvænt sökum bilunar í tankvél sem hann var farþegi í. Vélarnar tóku þátt í hernaðaræfingunni Norðurvíkingurinn hér á landi í sumar. MYND/BALDUR SVEINSSON FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA BALDUR SVEINSSON Mundar myndavélina á Reykjavíkurflugvelli, þar sem hann hefur fest marga flugvélina á filmu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.