Fréttablaðið - 09.12.2007, Side 92

Fréttablaðið - 09.12.2007, Side 92
MENNING 54 Börn eru vanræktur markhóp- ur í íslenskri kvikmyndagerð; á það minnti Ari Kristinsson í ræðu fyrir frumsýningu Dugg- holufólksins og benti á þá þversagnakenndu stöðu að barnamyndir fengju lægri styrki en aðrar myndir út af grillum um að þær séu ódýrari í framleiðslu og markaðs- vænni. Samt sem áður eru fimm ár frá því síðasta barna- myndin í fullri lengd kom út hér á landi ef ég man rétt, það er söngvamyndin Regína. Í hálfan áratug hafa íslensk börn semsagt ekki fengið eitt einasta tækifæri til að sjá í bíó mynd um önnur íslensk börn í íslenskum ævintýrum. Kalli er tólf ára tölvuséní, sem býr hjá móður sinni í Reykjavík; honum líður best fyrir framan tölvuskjáinn með lakkrísrör lafandi út um munn- vikið og gætir að gemsinn sé aldrei langt undan seilingar. Hann er hins vegar lagður í einelti af fantalegu stelpna- gengi í skólanum en raunir hans mæta litlum skilningi á skrifstofu skólastjórans. Móðir Kalla er í prófstressi og sendir hann til því pabba síns vestur til Súgandafjarðar þar sem hann á að verja jólunum, netlaus og í félagsskap stjúp- systur sinnar Ellenar – stelpu- skassi sem þykist vera skyggn en faðir hennar sálugur var ófreskur. Stjúpan er komin á steypirinn og hjónin verða að fara á sjúkrahús yfir til Ísa- fjarðar en krakkarnir verða að vera einir yfir nótt. Í millitíð- inni gerir hins vegar kafalds- hríð að vestfirskum hætti og börnin eru innilokuð í drauga- legu húsi í firði fullum af hafís, sem flytur jafnvel ísbirni milli úthafa. Kalli fær nóg af sel- skapnum við Ellen og ákveður að hypja sig aftur heim. Fyrst þarf hann bara að finna sam- band fyrir farsímann og hringja á leigubíl. Meintur banamaður Duggholufólksins, sem gekk fyrir björg tveimur öldum áður, setur hins vegar strik í reikninginn og Kalli á eftir að komast að því að í glímunni við veðurofsa, villi- dýr og drauga er Ellen betri hjálp en engin. Það mátti víst litlu muna að Dugg- holufólkið hefði verið gerð í Noregi eða Þýskalandi. Sem betur fer var ákveðið að gera myndina á Íslandi. Fáar – ef nokkrar – íslenskar barnamyndir sem gerðar hafa verið hingað til eru jafn vel til þess fallnar að kynna yngstu kynslóðina fyrir kynngi kvikmyndalistarinnar. Styrkur myndarinnar felst í því að Ari kemur fram við yngri áhorfendurna af virð- ingu en gætir þess líka að skemmtanagildið höfði til þeirra sem eldri eru. Útkoman er ein besta fjölskylduafþrey- ing sem í boði er á aðventunni. Myndin er stútfull af húmor, til dæmis þegar hún á það tæknilega hreðjatak sem æskufólk nú til dags hefur oft á foreldrum sínum (Kalli mútar mömmu sinni til að skutla sér í skólann gegn því að hann finni glósurnar sem hún glopraði í fartölvunni). Myndin snertir sannarlega á raunveruleika sem ófá börn – og foreldrar – þekkja, en kynn- ir þau líka fyrir framandi aðstæðum, sem þarf ekki að fara langt út fyrir borgar- mörkin til að finna. Vissulega er mikið um velheppnað glens en Ari hlífir áhorfendum ekki, er óhræddur við að búa til ógn- vænlegt andrúmsloft, þrungið reimleika sem hrikalegt umhverfi Súgandafjarðar magnar upp. Sá sem hér slær lykla gengst við því að hafa sigið niður í sætið í stöku atrið- um og að minnsta kosti einu sinni brugðið svo að hann hrökk af sessunni. Þá var líka gaman að sjá Ara kinka kolli til Hrafns vinar síns Gunn- laugssonar þegar fiskur er borinn á borð í Súganda. En þótt nokkrum ungum sálar- tetrum bregði endrum og sinn- um er svo búið um hnútana að allt fer vel að lokum og áhorf- endur ganga út glaðir í sinni. Myndin er fantavel gerð, sumar tökurnar stórglæsileg- ar og útlit og frágangur almennt til fyrirmyndar. Af leikurunum mæðir mest á krökkunum í aðalhlutverkun- um þremur, Bergþóri Þor- valdssyni, Þórdísi Huldu Árna- dóttur og Árna Beinteini Árnasyni. Þau standa sig öll prýðilega, sérstaklega Berg- þór í hlutverki Kalla. Myndin er auðvitað ekki gallalaus, atburðarásin hefði stundum þolað að vera knapp- ari, rödd draugsins var stund- um örlítið óskýr og í lokin voru sumir endar óleystir í lokin, eða að minnsta kosti ekki bundnir fast. Heildarútkoman er hins vegar svo vel heppnuð að það er erfitt að láta smá- smygli fara í taugarnar á sér. Myndin heldur rækilegum dampi út í gegn og hárréttu hlutfalli gamans og háska. Fyrir myndina lýsti Ari Krist- insson þeirri von sinni að á Íslandi yrði gerð barnamynd að minnsta kosti annað hvert ár. Duggholufólkið er kröftug- ur rökstuðningur fyrir því. Bergsteinn Sigurðsson KALDIR KRAKKAR Á HÁSKASLÓÐ Sigtið er komið út á mynd- diskum, tveir undir þætti, sá þriðji undir aukaefni. Þetta mun vera önnur serían af þessari sérstöku þáttaröð sem varð til með stuðningi Kvikmyndamiðstöðvar fyrir fulltingi þeirra Halldórs Gylfasonar, Friðriks Frið- rikssonar, og bræðranna Gunnars og Ragnars Hans- sona. Þeir kalla þetta eðal- útgáfu, sem má til sanns vegar færa. Sigtið er að mörgu leyti afar vel heppn- að pródúkt, bráðskemmtileg hugmynd sem þróast fram í vinnslunni og geymir glans- andi persónusköpun þessa leikhóps. Gaman er að velta fyrir sér þróun í gerð leikins efnis fyrir sjónvarpsmiðla sem átt hefur sér stað hér á und- anförnum tólf árum: þá var ástandið þannig að forráða- menn sjónvarpsstöðva höfðu enga trú á að íslenskt efni ætti sér rétt, jafnvel sjón- varpsstöð ríkisins var orðin hálffötluð í þessum efnum. Tilkoma Stöðvar 3 og síðar Skjás 1 breytti þessu. Þar höfðu menn þor til að leggja í innlenda dagskrárgerð af fullum krafti sem sveigði eldri rekstraraðila inn í aukna framleiðslu. Víst höfðu stök verkefni litið dagsins ljós og féllu mis- jafnlega í kramið hjá þeim sem komu fram opinber- lega: það þurfti þolgæði og þolinmæði til að standa af sér háðsglósur því vonir voru jafnan stórar og kröfur miklar og stutt í dóma. Umskipti urðu við eig- endabreytingar þegar Stöð 2 var komin af fótum fram öðru sinni. Þá var spýtt þar verulega í baukinn, hlutur innlends efnis lagfærður á hlut þess erlenda sem var í samkeppnislandslagi að sliga íslenskar sjónvarps- stöðvar. Reyndar máttu bæði Stöð 3 og Skjárinn lúta í gras áður en yfir lauk. En í íslenskri sjónvarpssögu voru þær mikilvægir hlekk- ir. Fóstbræður, Stelpurnar, jafnvel hin aldraða Spaug- stofa eru sketsaþættir. Nú má sjá fram að þeir skópu tiltrú á að hægt væri að gera meira: Sigtið og Næturvakt- in eru þróaðra efni með langdrægri persónusköpun, samfelldum þræði, sjón- varpsáhorfendur eru komn- ir út úr sitcom-rammanum sem Fornbókabúðin og Kallakaffi voru sett í. Enn á íslenskur sjónvarpsiðnaður eftir að ná tökum á því formi: jafnvel hinn mis- heppnaði bastarður Reykja- víkurnætur á sinn part í þessari þróunarvinnu. Það tekur tíma og margar til- raunir, æfingar og mistök, að ná tökum á frásagnar- formum sem þessum. erlendis hafa menn staðið í svona framleiðslu í hálfa öld fyrir sjónvarp og sóttu reynslu í kvikmyndaiðnað sem hefur þrifist í heila öld. Sigtið án Frímanns Gunn- arssonar ræðst ekki á garðinn sem hann er lægstur: það gerir sér mat úr ógeðfelldri höfuðpersónu sem Gunnar Hansson hefur skapað, hægri- sinnuðu snobb- gerpi, bjána sem komist hefur inn í sjónvarp og hrakist úr því aftur. Þessi gaur á sér bræður í Mal- volíó Shake- speare og Bastard Rick Mayall og Gunnar ljær honum líf á sér- kennilega reik- andi tempói, oft dirfskufullum dansi með tóm, dok, fals og yfirlætishátt. Persónan er í mörgum lögum og verður alltaf að vera gegnsæ í flónsku sinni og fyrirgangi. Flottur performans. Umhverfis Frímann eru nokkrar smærri persónur, auk smáhlutverka. Þeir þrír, Halldór, Gunnar og Friðrik, sýna meistaralega takta í leik í þessu safni, Gunnar alltaf sá sami en hinir tveir bregða sér í fjölda gerva og fara á kost- um: hin fámæltu hlut- verk Halldórs eru meitlaðri en hin smá- hlutverkin, en Gretar hans er saminn af djúpu innsæi með harm- ræn endi- mörk. Gerva- skápur Friðriks Friðrikssonar er hreint ótrúlega fjölbreyttur. Hér blómstrar hann sem listamaður. Þá verður að nefna til kven- stirnin: Helgu Brögu og Álfrúnu. Helga á beinni og hreinni braut í persónu sem fær ekki mikla þróunarmöguleika í meðför- um handritshöfunda. Ekki enn. Samband bókaútgef- andans og Gretars, hins þýlynda vinar stertimennis- ins Frímanns, er óunnið svið sem gaman væri að sjá þróað. Álfrún er aftur með skýran og glæsilegan sveig í byggingu sinni á Önnu. Það er ekki amalegt að eiga þá sköpun á ferilsskránni sinni. Hvað tekst þá ekki: takan er oft skekin, viljandi lík- lega, sem mér finnst ekki rétt. það er fátæktarbragur víða í fjöldaatriðum, jafnvel hinum fámennari. Íbúð Frí- manns hefði mátt vera í stúdíói. Hljóð gæti verið betra á stöku stað. Stíll á klippingu er stundum óhreinn, en það truflar mann samt ekki. Þessir þættir eru einfaldlega vel gerðir, frum- leg stúdía í heimsku hróks- ins, með mörgum merkileg- um stúdíum í ljóslifandi karakterum. Skemmtilegt stöff. Páll Baldvin Baldvinsson Sigtið án Frímanns Gunnarssonar SIGTIÐ ÁN FRÍMANNS GUNNARSSONAR Leikstjóri: Ragnar Hansson Gunnar Hans- son sem hið óþolandi smá- menni Frímann Gunnarsson fyrrum þátta- stjórnandi. 22 DUGGHOLUFÓLKIÐ Leikstjóri: Ari Kristinsson
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.