Fréttablaðið - 09.12.2007, Side 98

Fréttablaðið - 09.12.2007, Side 98
30 9. desember 2007 SUNNUDAGUR N orska hljómsveitin Mayhem er ein elsta og frægasta svartmálmshljóm- sveit sögunnar. Réttara væri að kalla hana alræmda frekar en fræga, þar sem hún er töluvert betur þekkt fyrir þá hræðilegu atburði sem gerðust utan hljóð- versins en tónlistina sem var tekin upp innan þess. Hjá Mayhem voru textar um dauða og djöfulinn ekki látalæti heldur fúlasta alvara og hljóm- sveitarmeðlimir máluðu sig ekki hvíta í framan til að fela andlit sín heldur til að líta út eins og lík. Í huga þeirra bjó djúpt og raun- verulegt hatur á kristinni trú og mikill áhugi á öllu sem dauðanum tengdist. Svartasti svartmálmur Saga Mayhem hófst þegar Øystein Aarseth gítarleikari, sem kallaði sig Euronymous, stofnaði hljóm- sveitina árið 1984 með bassaleik- aranum Jørn Stubberud, sem gekk undir nafninu Necrobutcher, og trommaranum Kjetil Man- heim. Stuttu síðar bættist söngv- arinn Sven Erik Kristiansen, eða Maniac, í hópinn. Algengt er að meðlimir svart- málmshljómsveita gangi undir gælunöfnum frekar en sínum eigin, og eru þau oft einhvers konar vísun í dauða eða ofbeldi. Mayhem spilaði mjög þunga og drungalega rokktónlist þar sem textarnir fjölluðu flestir um morð, kirkjubrennur, djöflatrú og gróft ofbeldi. Sveitin naut fljótt vin- sælda innan svartmálmssenunnar í Noregi sem var þá í fæðingu. Fyrsta smáskífa Mayhem, Deathcrush, kom út árið 1987 og seldist upp. Tveir hljómsveitar- meðlimir áttu þó eftir að deyja og sá þriðji fangelsaður áður en fyrsta plata sveitarinnar í fullri lengd kom út. Dauðinn kemur Ári eftir útgáfu fyrstu smáskíf- unnar urðu mannabreytingar í Mayhem. Manheim yfirgaf hljóm- sveitarlífið til að fá sér „alvöru vinnu“ og Maniac var lagður inn á geðdeild eftir misheppnaða sjálfs- morðstilraun. Í stað þeirra komu trommarinn Jan Axel Blomberg, eða Hellhammer, og söngvarinn Per Yngve Ohlin sem kallaði sig Dead. Eins og gælunafnið gefur til kynna var Dead heltekinn af dauð- anum og öllu sem honum tengdist. Hann var mjög þögull og þung- lyndislegur, talaði um fátt annað en dauðann og málaði sig hvítan í framan til að líta út eins og liðið lík. Sem dæmi um ást Dead á dauð- anum átti hann það til að grafa fötin sín í jörðu nokkrum vikum fyrir tónleika, til þess að ná fram raunverulegri rotnunarlykt og útliti á sviðinu. Þar skar hann sig síðan oft með hnífum, glerbrotum og öðru lauslegu á meðan á tón- leikum stóð. Svo langt gekk hann á einum tónleikum árið 1990 að hann var fluttur á slysadeild að tónleikunum loknum vegna blóð- missis. Við hljómsveitarmeðlimi ræddi Dead mikið um það hve mikið hann langaði til að yfirgefa þetta líf og taka dauðanum opnum örmum. Það kom því fáum á óvart Afsakið allt blóðið BLÓÐUG ÞRENNING Euronymous, Dead og Varg Vikernes stilla sér upp fyrir ljósmyndara. Áður en fyrsta breiðskífa sveitarinnar kom út hafði Dead (fyrir miðju) framið sjálfsmorð og Vikernes (til hægri) myrt Euronymous (til vinstri) með því að stinga hann tuttugu og þrisvar sinnum með hníf. Saga norsku hljóm- sveitarinnar Mayhem er blóði drifin. Áður en fyrsta breiðskífa sveit- arinnar kom út hafði söngvarinn framið sjálfsmorð, gítarleik- arinn verið myrtur og bassaleikarinn fang- elsaður fyrir morðið. Salvar Þór Sigurðarson kynnti sér feril einnar alræmdustu svart- málmshljómsveitar heims. Hér eru nokkur textabrot úr tveimur lögum Mayhem á ensku. Eins og sjá má var sungið um fátt annað en dauða, ofbeldi og djöfulinn. Deathcrush: Demonic laughter your cremation Your lungs gasp for air but are filled with blood A sudden crack as I crushed your skull The remind of your life flashes by A life that soon won’t be Smiling with axe in my hand Evil’s rotten hand you’ll see I come forward Deathcrush Pure Fucking Armageddon: Violent torture, Death has arrived, Armageddon, Terror and fright, Bleeding corpses, Rotting decay Anarchy, Violent torture, Antichrist, Lucifer, Son of satan Pure Fucking Armageddon Pure Fucking Armageddon! Euronymous (Øystein Aarseth) Gítarleikari Upphafsmaður Mayhem og aðaldrif- krafturinn. Spilaði óslitið með sveit- inni frá stofnun 1984 til dauðadags 1993. Var myrtur af bassaleikaranum Varg Vikernes. Dead (Per Yngve Ohlin) Söngvari Hugfanginn af dauðanum og öllu sem honum tengist. Spilaði með hljómsveitinni frá 1988 til dauða- dags 1991. Skar sig á púls og skaut sig í höfuðið með haglabyssu. Mynd af líki hans prýðir tónleikaplötuna Dawn of the Black Hearts. Necrobutcher (Jørn Stubberud) Bassaleikari Einn af stofnendum Mayhem ásamt Euronymous og Manheim. Lék með hljómsveitinni frá 1983 til 1991 þegar hann hætti vegna sjálfsmorðs Dead. Sneri aftur 1995 og spilar með sveit- inni enn í dag. Hellhammer (Jan Axel Blomberg) Trommari Án efa rólynd- asti maðurinn í May hem, og sá eini sem eftir stóð þegar hinir höfðu ýmist framið sjálfsmorð, verið myrtir eða fangels- aðir. Spilaði með hljómsveitinni frá 1988 þar til hún lagði upp laupana 1993. Endurreisti sveitina tveimur árum síðar og hefur spilað með henni til dagsins í dag. Varg Vikernes (*) Bassaleikari Ofbeldishneigður maður sem hataði kristna trú. Spilaði með Mayhem við upptökur á plötunni De Mysteriis Dom Sathanas árið 1993. Myrti gítarleikarann Euronymous sama ár og var dæmdur í 21 árs fangelsi. (*) Almennt ekki talinn hluti af hinni einu sönnu Mayhem (The True Mayhem) en hafður með vegna mikilvægis síns í sögu hljómsveitarinnar. ➜ HIN EINA SANNA MAYHEM þegar hann fannst árið 1991 látinn á gólfinu í plötubúðinni Helvete, sem var í eigu Euronymous, með skurði á úlnliðum og skotsár á höfðinu eftir haglabyssu. Í sjálfsmorðsbréfi sem fannst við hliðina á honum stóð: „Afsakið allt blóðið.“ Viðbrögð Euronymous, sem kom fyrstur að líki Dead, voru ekki að hringja á lögreglu eða sjúkrabíl heldur keypti hann ein- nota myndavél í næstu verslun og tók myndir af líkinu. Þær voru síðan notaðar á umslag plötunnar Dawn of the Black Hearts, sem kom út sama ár. Sagan segir að hann hafi að auki safnað saman höfuðkúpubrotum Dead og búið til hálsmen úr þeim, en sá orðrómur hefur ekki verið staðfestur. Vegna þess hve Dead var hug- fanginn af dauðanum var hann ekki syrgður heldur dauði hans upp hafinn. „Þetta er það besta sem Dead hefur nokkru sinni gert,“ sagði Euronymous stuttu eftir sjálfsmorðið, og átti með því við að honum hefði loksins tekist ætlunarverk sitt — að deyja. Tuttugu og þrjár hnífsstungur Dauði Dead fékk svo á Necrobut- cher að hann hætti í Mayhem og upptökum á fyrstu plötu þeirra í fullri lengd, De Mysteriis Dom Sathanas, var frestað. Eftir nokkra leit fengu þeir hinn ungverska söngvara Attila Csihar til að syngja á plötunni, og í stað Necro- butcher kom bassaleikarinn Varg Vikernes. Vikernes, sem var þekktur fyrir ofbeldishneigð og öfgakenndar skoðanir, hafði ekki verið lengi í hljómsveitinni þegar deilur upp- hófust milli hans og Euronymous. Þær snerust fyrst og fremst um peninga, en Euronymous hafði fengið um 300.000 krónur lánaðar hjá Vikernes vegna plötuútgáfu og neitað að greiða honum aftur. Mennirnir hnakkrifust oft vegna þessa, og líkaði almennt illa hvor við annan. Hinn 10. ágúst 1993 fór Vikernes heim til Euronymous í Ósló, ásamt félaga sínum Snorre Westvold, og stakk Euronymous tuttugu og þri- svar sinnum með hníf; tvisvar í höfuðið, fimm stungur í hálsinn og sextán í bakið. Að því loknu fór hann aftur til síns heima. Nokkrum dögum síðar var Vikernes handtekinn og ákærður fyrir morðið á Euronymous. Hann bar fyrir sig sjálfsvörn og sagði flest stungusárin hafa orðið þegar Euronymous datt á glerbrot. Dóm- urinn tók útskýringar Vikernes ekki trúanlegar og dæmdi hann til 21 árs fangelsisvistar. Hann situr í fangelsi í Tromsø í dag. Trommarinn Hellhammer var nú eini eftirstandandi meðlimur- inn í Mayhem, og lagði hljómsveit- ina niður stuttu eftir dauða Euron- ymous. Upptökum á fyrstu breiðskífu hljómsveitarinnar, De Mysteriis Dom Sathanas, var þá að mestu lokið og var hún form- lega tileinkuð Euronymous, stofn- anda hljómsveitarinnar. Um tíma var óvíst hvort platan kæmi út því fjölskylda Euronym- ous beitti sér gegn því að bassa- leikur Vikernes heyrðist á plöt- unni. Hellhammer fór ekki að beiðni þeirra og gaf plötuna út árið 1994 með óbreyttum bassa. De Mysteriis Dom Sathanas, þar sem morðinginn og fórnar- lambið spila saman, er ein allra frægasta svartmálmsplata sög- unnar í dag. Endurreisn Mayhem Hin eiginlega Mayhem, oftast kölluð „The True Mayhem“ af aðdáendum, var dáin og grafin í bókstaflegri merkingu. Þrátt fyrir það ákvað Hellhammer að endur- reisa sveitina tveimur árum eftir dauða Euronymous, og fékk til liðs við sig gömlu félagana Maniac og Necrobutcher auk gítarleikarans Rune Erickson, kallaður Blas- phemer. Þessi skipan entist fram til árs- ins 2004, þegar Maniac var rekinn úr hljómsveitinni og Attila Csihar var aftur ráðinn söngvari. Á þessu tímabili gaf hljómsveitin út tvær plötur í fullri lengd; Grand Dec- laration of War árið 2000 og Chim- era árið 2004. Þær hlutu blendnar viðtökur; hljómurinn þótti hafa fjarlægst rætur Mayhem of mikið. Í apríl á þessu ári kom út síðasta plata Mayhem til þessa, Ordo ad Chao. Hún fékk betri dóma en plöturnar tvær á undan, og komst í tólfta sæti norska hljómplötulist- ans. Sannir aðdáendur Mayhem hafa þó aldrei tekið þessar síðari útgáf- ur hljómsveitarinnar í sátt, enda vantar stofnandann Euronymous, kristnihatarann og morðingjann Varg Vikernes og síðast en ekki síst dauðadýrkandann Dead. ➜ BROT ÚR TEXTUM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.