Fréttablaðið - 09.12.2007, Qupperneq 106
38 9. desember 2007 SUNNUDAGUR
180 cm
100 cm
110 cm
Fegurðarsamkeppni Íslands hefur
staðið fyrir keppninni Herra Ísland
undanfarin tólf ár. Athygli vekur að
fríðustu piltar landsins fara lækk-
andi í hæð, og er ef til vill merki um
breyttar áherslur í mati þjóðarinnar á
karlmannlegri fegurð.
Þegar auglýst var eftir þátttakendum í
fyrstu keppnina árið 1996 var aðeins
óskað eftir köppum sem náðu 184 senti-
metrum. Eitthvað virðast reglurnar hafa
skolast til í ferlinu því sigurvegarinn í
þeirri keppni, Þór Jósefsson, var aðeins 180
sentimetra hár.
Fegurðarkóngar næstu ára voru þó
töluvert hærri í loftinu. Herra Ísland árið
1997, Reynir Logi Ólafsson, var 192 senti-
metrar á hæð líkt og fríðasti piltur ársins
2002, Sverrir Kári Karlsson. Á þessu sex
ára tímabili var meðalhæð sigurvegaranna
tæpir 190 sentimetrar. Upplýsingar um hæð
fegurðarkónganna eru fengnar frá þeim
sjálfum.
Í dag segir í reglum Fegurðarsamkeppni
Íslands að lágmarkshæð keppenda í Herra
Ísland sé 175 sentimetrar. Frá árinu 2003
hafa fegurðarkóngar landsins farið ört
lækkandi og meðalhæð sigurvegaranna
fallið um heila átta sentimetra. Nýkrýndur
handhafi titilsins, Ágúst Örn Guðmundsson,
er 180 sentimetrar á hæð líkt og þriðjungur
keppendanna í ár. Rúmur helmingur þeirra
fríðleikspilta hefði ekki fengið að keppa
hefði upphaflega krafan um 184 cm lág-
markshæð haldið sér í gegnum árin,
Gleymum ekki að margur er jú knár þótt
hann sé smár.
eygloa@frettabladid.is
Fegurðarkóngar styttast jafnt og þétt
HERRA ÍSLAND
2001 Ragnar
Ingason er 183
cm.
HERRA ÍSLAND 1999
Ægir Örn Valgeirsson
er 187 cm.
HERRA ÍSLAND
1996 Þór Jósefs-
son er 180 cm.
HERRA ÍSLAND
2003 Garðar B.
Gunnlaugsson er
183 cm.
HERRA ÍSLAND 2002
Sverrir Kári Karlsson er
192 cm.
HERRA ÍSLAND
2000 Björn Már
Sveinbjörnsson
er 185 cm.
HERRA ÍSLAND
2006 Kristinn
Darri Röðuls-
son er 184 cm.
HERRA ÍSLAND
1998 Andrés
Þór Björnsson
er 187 cm.
HERRA ÍSLAND
2005 Ólafur Geir
Jónsson er 182
cm.
Leikkonan Michelle Williams er í
lokaviðræðum um að taka að sér
hlutverk í nýjustu mynd Martins
Scorsese, Shutter
Island. Williams,
sem var tilnefnd
til Óskarsins fyrir
hlutverk sitt í
Broke back Mount-
ain, leikur látna
eiginkonu
Leonardo
DiCaprio í
myndinni, sem er
byggð á bók eftir
rithöfundinn
Dennis Lehane.
Með önnur
hluterk í Shutter
Island fara Mark
Ruffalo og Ben Kingsley. Myndin
fjallar um tvo liðsmenn í banda-
ríska sjóhernum sem ferðast til
Massachusetts til að rannsaka
hvarf sjúklings af geðsjúkrahúsi.
Í nýrri mynd
Scorsese
MICHELLE WILLI-
AMS Leikkonan
fer að öllum
líkindum með
hlutverk í nýjustu
mynd Martins
Scorsese.
> VISSIR ÞÚ?
Leikarinn vinsæli
Johnny Depp er
með undarlegan
smekk á hús-
gögnum. Í stofunni
sinni geymir hann
rafmagnsstól og
situr í honum
gína í fullri
stærð.
folk@frettabladid.is
HERRA ÍSLAND
1997 Reynir
Logi Ólafsson
er 192 cm.
HERRA ÍSLAND
2004 Páll Júlíus
Kristinsson er
180 cm.
HERRA ÍSLAND 2007
Ágúst Örn Guðmunds-
son er 180 cm.
190 cm
170 cm