Fréttablaðið - 21.02.2008, Side 12
12 21. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
ALÞINGI Kristján Möller sam-
gönguráðherra telur að tölvu-
póstur komi að nokkru leyti í
stað hefðbund-
ins bréfapósts
og spyr hvort
nauðsynlegt sé
að póstur sé
borinn út fimm
daga vikunnar
eins og lög
segja til um ef
sáralítið er
borið út á
annað borð.
Jón Bjarna-
son VG spurði
Kristján um afstöðu hans til
athugana Íslandspósts á að
fækka útburðardögum á völdum
stöðum á landinu. Sagði Jón góða
póstþjónustu skipta máli fyrir
samkeppnishæfni atvinnulífs og
búsetu um land allt.
Kristján kvaðst ætla að skoða
málið. - bþs
Samgönguráðherra á þingi:
Tölvupóstur í
stað bréfapósts
KRISTJÁN MÖLLER
AUSTURRÍKI, AP Mansal er nútíma-
útgáfa þrælahalds og við það verð-
ur ekki unað sagði háttsettur yfir-
maður hjá Sameinuðu þjóðunum á
þriggja daga ráðstefnu um mansal
sem stofnunin stóð fyrir í vikunni
í Vín í Austurríki og lauk á föstu-
daginn.
„Tvö hundruð árum eftir að
þrælasalan yfir Atlantshafið leið
undir lok ber okkur skylda til að
berjast gegn glæp sem á ekki að
eiga sér stað á 21. öldinni,“ sagði
Antonio Maria Costa, yfirmaður
stofnunar Sameinuðu þjóðanna
sem fjallar um eiturlyf og glæpi.
„Köllum þetta sínu rétta nafni:
Nútíma þrælahald.“
Talið er að 2,5 milljónir manna
séu í einhvers konar nauðungar-
vinnu í kjölfar mansals sem nái til
161 lands í öllum heimsálfum.
Flest fórnarlömbin eru á aldrinum
átján til 24 ára og áætlað er að 1,2
milljónir barna séu árlega fórnar-
lömb mansals samkvæmt tölum
Sameinuðu þjóðanna.
Erfitt er að segja um eiginlegar
tölur og er þetta mögulega bara
toppurinn á ísjakanum að því er
Costa sagði í samtali við fréttavef
breska ríkisútvarpsins. „Eins og
með alla aðra markaði ... þá er
framboð af fólki sem er gabbað,
þvingað eða leitt í gildru og eftir-
spurn hjá fólki sem er að kaupa
þessa vöru sem um ræðir. Og svo
eru það þeir sem tengja framboð
og eftirspurn – þeir sem stunda
mansalið.“
Sameinuðu þjóðirnar telja að
stjórnvöld víða standi ekki við
skuldbindingar um að taka á þess-
um vanda og var markmið ráð-
stefnunnar að hvetja til einbeitt-
ari aðgerða í baráttunni gegn
mansali.
Af 192 aðildarríkjum Samein-
uðu þjóðanna hafa 116 samþykkt
sáttmála gegn mansali frá 2005.
Sáttmálinn hefur þó ekki verið
færður í lög í sumum ríkjum.
Meðal ríkja sem ekki hafa enn
samþykkt sáttmálann eru ríki á
borð við Indland og Pakistan þar
sem mikið er um mansal sam-
kvæmt upplýsingum Sameinuðu
þjóðanna.
sdg@frettabladid.is
Þrælahald nútímans
Tvær og hálf milljón manns eru í einhvers konar nauðungarvinnu í kjölfar
mansals. Árlega eru 1,2 milljónir barna seld mansali. SÞ vill aðgerðir.
MANSAL Í MYND Vegfarendur í Vín geta virt fyrir sér sjö gáma sem hafa verið mynd-
skreyttir til að vekja athygli á þeim hörmungum sem fylgja mansali. NORDICPHOTOS/AFP
STRÆTISVAGN EYÐILAGÐUR Óeirða-
seggir í Naíróbí í Keníu hamast á flaki
strætisvagns sem kveikt hafði verið í.
Ekkert lát er á óeirðunum sem hófust
í kjölfar kosninganna í lok síðasta árs.
NORDICPHOTOS/AFP
Ekið á bíl við fjölbrautaskóla
Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu
um að ekið hefði verið á bíl við Fjöl-
brautaskóla Suðurlands um klukkan
hálf fjögur á mánudaginn. Sá sem
ók á bílinn stakk af frá vettvangi en
bíllinn skemmdist nokkuð.
LÖGREGLUFRÉTTIR
MENNTAMÁL Kristín Ingólfsdóttir,
rektor Háskóla Íslands, segir fyr-
irtæki og menntastofnanir geta
eflt samstarf sín á milli í greinum
sem eiga rætur hér á landi. Með
þessu tekur Kristín undir sjónar-
mið sem Lárus Welding, forstjóri
Glitnis, ljáði máls á í viðtali við
Fréttablaðið síðastliðinn laugar-
dag.
Þar sagði hann mögulegt að
skapa vettvang fyrir „dýnamíska
nýsköpun“ á sviði orkuiðnaðar
með samstarfi skóla og fyrir-
tækja. „Ég er sammála Lárusi,
slíkt samstarf er nauðsynlegt og
gerir báðum aðilum kleift að ná
öflugri árangri,“ segir Kristín.
„Innan Háskóla Íslands er gríðar-
lega mikil þekking á sviði orkuvís-
inda, jarðvísinda, umhverfisvís-
inda, verkfræði, hagfræði og á
fleiri sviðum. Samstarf við fyrir-
tæki á þessu sviði er nú þegar
fyrir hendi en við erum sífellt að
leita leiða til þess að efla slíkt
samstarf enn frekar,“ segir Krist-
ín.
Lárus vitnaði til hugmynda sem
Michael Porter, prófessor við Har-
vard-háskóla, talaði um í fyrir-
lestri á Hótel Nordica 2. október
2006. Þar sagði hann mögulega
vera hægt að byggja upp meiri
starfsemi í kringum atvinnuvegi
sem ættu rætur hér á landi. - mh
Rektor Háskóla Íslands segir að efla megi samstarf fyrirtækja og skóla:
Sóknarfæri á mörgum sviðum
LÁRUS WELD-
ING Hugað
verði betur að
atvinnuvegum
sem eiga rætur
hér.
KRISTÍN ING-
ÓLFSDÓTTIR
Hægt að efla
samstarfið.
!"
#
$
%
%
!
$
'
(
&
$
) *
+"
+
%
&
, !
%
%
*
$")
$
*
$
+
&
-
.
/
012
3 "%
/
(%
441
5111
/
,6
441
5101
/
777&'(&
8
(
9
3
:
&;
(
<
'
(
1
2
=
4
4
ÍRAK, AP Bandaríkjaher fullyrðir
að konurnar tvær, sem gerðu
sjálfsmorðssprengjuárás á
markaðstorgi í Bagdad í byrjun
febrúar, hafi ekki verið þroska-
heftar.
Íraskir embættismenn sögðu,
strax eftir árásina, að konurnar
tvær hefðu verið með Downs-
heilkenni. Atvikið vakti hörð
viðbrögð víða um heim, en þessi
fullyrðing vakti jafnframt
tortryggni margra.
Bandaríkjaher segir að
konurnar hafi báðar nýlega fengið
meðferð geðlækna vegna þung-
lyndis eða geðhvarfasjúkdóms, en
alls ekki verið þroskaheftar. - gb
Sprengjukonurnar í Bagdad:
Þær voru ekki
þroskaheftar
LÖGREGLUMÁL Annar piltanna sem
var í bíl sem skall harkalega á
húsi á Akranesi um miðjan dag á
mánudaginn var útskrifaður af
gjörgæsludeild daginn eftir.
Hinn pilturinn, sem er á
átjánda ári, liggur enn þungt
haldinn á gjörgæsludeild. Var
hvorugur piltanna í bílbelti þegar
þeir lentu í árekstrinum.
Talið er að slysið hafi orðið
þegar piltarnir voru að aka fram
úr öðrum bíl. Bíllinn, af gerðinni
BMW, er gjörónýtur og er húsið
einnig talsvert skemmt.
- ovd
Óku á húsvegg á Akranesi:
Annar enn á
gjörgæsludeild
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu handtók
nýlega mann sem brotist hafði
inn í íbúð og meðal annars stolið
þaðan greiðslukorti húsráðanda.
Hafði hann svo notað kortið til að
svíkja út vörur í verslunum.
Vill lögreglan, af þessu tilefni
og ýmsum sambærilegum, brýna
fyrir afgreiðslufólki í verslunum
að skoða vel myndir á bakhlið
greiðslukorta. Einnig að undir-
skriftir handhafa séu þær sömu
og á bakhlið kortanna. - ovd
Afgreiðslufólk athugi kortin:
Vörur teknar
út á stolin kort