Fréttablaðið - 21.02.2008, Page 20

Fréttablaðið - 21.02.2008, Page 20
20 21. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR 1998 2000 2002 2004 2006 nám, fróðleikur og vísindi 747 1.039 1.266 1.369 1.613 HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS Frú Vigdís Finnbogadóttir og nemendur úr Landakotsskóla opnuðu nýlega vefnámskeiðið www.englishgame.hi.is sem er ætlað byrjendum í enskunámi og gerir þeim kleift að bæta kunn- áttu sína á nýstárlegan og skemmtilegan hátt, að því er fram kemur í tilkynningu frá aðstand- endum. Nemendur hanna eigin leikpersónu sem leysir tungumálaþrautir í björgunarleiðangri til að frelsa þorpsbúa í Rauðuþakabæ. Enskri málfræði, málnotkun og orðaforða er fléttað inn í atburðarásina með ýmsum þrautum og verkefnum. ■ Nýtt vefnámskeið á ensku: Leysa þrautir við björgun Hrafnhildur Heba Júlí- usdóttir stundar nám við Kaospilot í Árósum í Danmörku, skapandi við- skiptaháskóla sem leggur áherslu á verkefnastjórnun, viðburðastjórnun og ferlis- hönnun fyrir stefnumótun fyrirtækja. Hrafnhildur er á öðru námi af þremur og stefnir á að útskrifast með diplómagráðu á næsta ári. „Ég frétti af náminu í gegnum vinkonu mína sem er nýútskrifuð frá Kaospilot. Ég heillaðist eiginlega strax af hugmyndinni að baki þessu námi, það er mjög lifandi og ég hafði ekki rekist á neitt sams konar á Íslandi.“ Hrafnhildur segist hafa hrifist strax af andrúmsloftinu í skólanum. „Það er engu líkt, hér eru bara um hundrað nemendur í einu og það gerir tengslin ansi sterk. Margir eru líka langt í burtu frá heimalandi sínu og bekk- urinn verður nánast eins og fjölskylda. Bekkjunum er skipt upp í lið og námið felur í sér ferðalög. Á öðru ári fara liðin til dæmis til annarra landa þar sem þau vinna að ýmsum verkefn- um. Lið Hrafnhildar valdi að fara til Sjanghæ, þar sem hún er núna og verður næstu þrjá mánuði. „Hugmyndin á bak við það er að fara með námið í annað umhverfi, aðlagast nýjum menningarheimi og öðruvísi verkefnavinnu. Liðsstjórinn okkar hefur góð sambönd í Kína og við ákváðum því að fara þangað. Við vinnum verkefni með nokkrum fyrirtækjum, tökum meðal annars þátt í að búa til alþjóð- lega markaðsherferð fyrir Shanghai Fashion Hub og vinnum hugmyndavinnu fyrir þýskt fyrirtæki sem gerir leikföng úr bambus. Hrafnhildur segir námið krefjandi, það komi henni sífellt á óvart og haldi henni á tánum. „Sem mér finnst frábært. Ég held að þetta eigi eftir að skila mér miklu, til dæmis góðum tökum á verkefnastjórnun. Að útskrift lokinni vonast ég til að komast í vinnu þar sem sköpunargleði mín fær að njóta sín til fulls.“ NEMANDINN: HRAFNHILDUR HEBA JÚLÍUSDÓTTIR Flakkar frá Árósum til Sjanghæ Kjarni málsins > Fjöldi grunnskólanema með erlent móðurmál. Ég man ekki eftir neinni kennslu- bók um blaðamennsku á íslensku. Það hefur verið sár skortur á því,“ segir Jónas Kristjánsson ritstjóri, sem hefur gefið út kennslubók í blaðamennsku á netinu. Jónas hefur kennt námskeið í blaðamennsku undanfarin tvö ár og bókin samanstendur af glósum sem hann samdi vegna fyrirlestra. „Þetta eru minnispunktar sem ég held að nýtist öllum í faginu, hvort sem þeir hafa starfað þar lengi eða eru að byrja. Blaðamennskan er ekki beinlínis akademískt fag með mikið af teóríum heldur byggist hún á reynslu. Þetta eru fyrst og fremst hagnýtar upplýsingar. Ég þekki ekki aðra tegund blaða- mennsku en hagnýta og efast um að hún sé til.“ Glósurnar spanna víðfemt svið, til dæmis ritstjórn, rannsóknir og nýmiðlun. Þá er miklu púðri varið í textastíl, sem Jónas telur að íslensk- ir blaðamenn þurfi helst að bæta sig í. „Margt annað er í sæmilegu standi í blaðamennsku á Íslandi, en einna lakastir eru blaðamenn í textastíl, eða ritstíl eins sumir kalla það.“ Bókina má nálgast ókeypis á heimasíðu Jónasar, jonas.is. Hann hefur ekki hugsað sér að gefa hana út í prentútgáfu. „Æ fleiri kennslubækur eru gefn- ar út á stafrænu formi; þannig eru þær aðgengilegri og auðveldari í uppfærslu en ég hef hugsað mér að uppfæra hana að minnsta kosti árlega.“ Jónas kveðst ekki heldur hafa íhugað að selja aðgang að bók- inni. „Ég er ekki í kapítalíska hag- kerfinu, ég er í gjafahagkerfinu. Vefbókin er þarna ef einhver vill nota hana.“ - bs Jónas Kristjánsson gefur út kennnslubók í blaðamennsku á netinu: Sár skortur á kennsluriti JÓNAS KRISTJÁNSSON Telur að ritstíl íslenskra blaðamanna sé einna helst ábótavant. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Skynörvunaraðstaða verður formlega opnuð í Öskjuhlíðarskóla á morgun, föstudag. Barnaspítali Hringsins veitti skólanum tveggja milljón króna styrk til að kaupa tæki og búnað. Tilgangurinn með aðstöðunni er að auka tilboð og gæði, meðal annars fyrir þá nemendur sem eiga við skyntruflanir að stríða og þá nemendur sem eru með skerta líkamsstarfsemi eða líkamsvitund. ■ Öskjuhlíðarskóli: Skynörvunaraðstaða opnuð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.