Fréttablaðið - 21.02.2008, Side 22
22 21. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
1998 2001 2004 2007
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
93 kr.
95 kr.
99 kr.
102 kr.
Næstum tuttugu þúsund króna verðmunur
er á flugi frá Íslandi til Færeyja og til baka
aftur, eftir því hvort farið er keypt hjá
íslensku eða færeysku flugfélagi. Farþegar
eru þrátt fyrir þetta að kaupa sér ferð með
sömu flugvélinni.
„Ég kaupi alltaf farið hjá Atlantic. Það er ekki ódýrt,
en það er ódýrara en með Flugfélaginu,“ segir Sunn-
eva Eysturstæn, blaðamaður í Færeyjum. Hún hefur
mikið ferðast milli eyjanna og Íslands undanfarin ár.
Sé flogið á mánudegi frá Reykjavík til Færeyja og
til baka aftur á föstudag, kostar farið báðar leiðir
tæpar 54 þúsund krónur með Flugfélagi Íslands.
Sama ferð með færeyska flugfélaginu Atlantic Air-
ways kostar hins vegar um 40 þúsund. Verð hvors
fargjalds um sig er með sköttum.
Enn meiri munur er á sömu ferð ef farið er í byrjun
apríl. Verðið á ferð Flugfélagsins er svipað, en verðið
hjá Færeyingum er umtalsvert lægra, eða ríflega 36
þúsund.Svipaður verðmunur er á ferðum í mars.
„Það er ástæða til að skoða þetta, en þetta er óvenju-
mikið heyrist mér,“ segir Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Íslands. Flugfélag Íslands
selur ferðirnar með vél færeyska félagsins.
Flugsætin eru sambærileg að flestu leyti. Ferðaá-
ætlunum má breyta og flugfélögin bjóða endur-
greiðslu, þurfi farþeginn að hætta við. Þá er það einn-
ig sambærilegt að því að um er að ræða sama sætið, í
sömu vél.
„Miðað við það hefði ég talið að verð á fargjöldun-
um væri sambærilegt. En þetta getur verið tilfall-
andi. Stundum erum við lægri og öfugt,“ segir Árni
Gunnarsson.
Töluvert er um ferðalög milli Íslands og Færeyja.
Árni segir að Flugfélagið selji í kringum þúsund sæti
á ári. Það sé mest að gera yfir sumartímann. „Til
dæmis í kringum Ólafsvökuna,“ segir Árni.
Það séu einkum Íslendingar sem kaupi ferðir með
Flugfélaginu, en einnig erlendir ferðamenn. Líkleg-
ast kaupi Færeyingar einkum ferðir í gegnum Atlant-
ic. ingimar@frettabladid.is
Mörg þúsund króna
munur á sama sætinu
HUGSI YFIR FARGJALDINU? Töluverður verðmunur er á
fargjaldinu til Færeyja eftir því hver selur það, þótt sætið sé í
sömu flugvélinni. Fréttablaðið/GVA
HEIMASÍÐUR FLUGFÉLAGANNA
Heimasíða Flugfélags Íslands flugfelag.is
Heimasíða Atlantic Airways atlanticairways.com
GÓÐ HÚSRÁÐ
HNETUSMJÖR, SÓDAVATN
OG SALT KOMA TIL GÓÐA
■ Ég held ég sé glötuð í húsráðunum
en ég er jú alltaf að heyra góð ráð
sem ég nota þó ekki,“ segir Sigrún Ósk
Kristjánsdóttir, ritstjóri Skessuhorns.
„Reyndar var ég með
útskriftarveislu um dag-
inn og vinkona mín sull-
aði rauðu pestói niður í
hvítan stól. Á stólinn var
þá skellt sódavatn og
salt sem síðan var látið liggja yfir nótt
og darraaaaaaaa!,“ segir Sigrún með
tilþrifum en lætur ekki þar við sitja
heldur bætir við öðru góðu húsráði.
„Svo er það hnetusmjör sem virkar
þegar maður fær tyggjó í hár, svo
setur maður auðvitað föt í frysti ef
tyggjó fer í þau.“
Hverjum dettur í hug
að tala um súkkulaði
sem hollustuvöru?
Von að spurt sé. Við
höfum borðað súkku-
laði okkur til gleði
og ánægju, kannski
stundum með smá
sektarkennd af því að súkkulaði er
orkumikið. En tengingin við hollustu
hefur ekki átt upp á pallborðið
hingað til.
Hvað hefur breyst?
Súkkulaði og innihaldsefni þess
hafa verið mikið rannsökuð síðustu
15 árin. Fólk tók fyrstu fréttum af
hollustu súkkulaðis með varúð.
Rannsóknir á matvælum og niður-
stöður þeirra hafa oft á tíðum verið
býsna misvísandi. En rannsóknir á
súkkulaðivörum benda allar til að
þær innihaldi fjölmörg efni sem hafi
jákvæð áhrif á líkama og sál.
Það er nokkur einföldun að tala
um súkkulaði í þessu samhengi.
Réttara er að tala um hollustuefni í
kakóbauninni og afurðum unnum úr
henni. Því meira sem er af kakóþurr-
efnum í vörunni því betra. Þess vegna
er 70% súkkulaði mun æskilegra, sé
sóst eftir hollustueiginleikum kakób-
aunarinnar, heldur en 33% súkkulaði
eins og algengt er í rjómasúkkulaði.
Nærri 300 mismunandi efni
Kakóbaunin er samsett úr hátt í þrjú-
hundruð efnum og efnasambönd-
um. Fyrir utan orkuefnin prótein,
fitu og kolvetni er einnig
svolítið af vítamín-
um og steinefnum í
kakóbauninni.
Innihaldsefni, sem
gera kakóbaunina
sérstaka, eru teó-
brómín, tryptófan,
fenýletýlamín sem
örva tauga- og heila-
stöðvar og svo fjölfenólar
sem eru mikið í umræðunni núna.
Fjölfenólar finnast í mögum fæðu-
tegundum en í fáum jafn mikið og
í súkkulaði. Rauðvín er til dæmis
hálfdrættingur á við súkkulaði en
um fjórðungur í grænu tei.
Virkni fjölfenóla
Fjölfenólar hafa margvíslega virkni
samkvæmt vísbendingum rann-
sókna. Þeir eru í fyrsta lagi öflug
andoxunarefni sem tefja hrörnun
líkamans. Einnig hafa þeir jákvæð
áhrif á starfsemi hjarta og æðakerfis
með því að víkka út æðar, minnka
samloðun blóðkorna og bæta þannig
blóðflæði líkamans, lækka blóðþrýst-
ing og álag á hjarta. Einnig benda
rannsóknir til að fjölfenólar dragi úr
nýmyndun blöðruhálskrabbameins
en frekari rannsókna er þörf í
þeim efnum. Fjölfenólar eru
einnig bætandi fyrir hugsun
og minni ef að líkum lætur.
Bresk rannsókn hefur sýnt
að rottur, sem var gefið
fjölfenólríkt fæði í 8 vikur,
bættu árangur sinn um 50% í
minnisprófunum umfram viðmiðun-
arhópinn. Í framhaldinu verða gerðar
hliðstæðar rannsóknir á mönnum.
Svolítið sérstakt er að súkkulaði
dregur úr hósta samkvæmt breskri
hóprannsókn. Hún leiddi í ljós að
theobrómín í súkkulaði er þriðjungi
öflugra við að slá á hósta en algengt
kódein lyf sem notað er til þess að
draga úr þrálátum hósta og hefur auk
þess engar aukaverkanir.
www.mni.is
MATUR & NÆRING RÚNAR INGIBJARTSSON MATVÆLAFRÆÐINGUR
Hollustuefni í súkkulaði
Útgjöldin
> Verðlag á fimm pylsubrauðum í febrúar hvers árs,
miðað við verðlag á öllu landinu.
„Verstu kaup ævi minnar voru bless-
aðar býflugnabuxurnar sem ég keypti
mér í verðlaun fyrir að klára sam-
ræmdu prófin árið 1986,“ segir Silja
Bára Ómarsdóttir, forstöðumaður
Alþjóðamálastofnunar Háskóla
Íslands og aðjúnkt í alþjóðasam-
skiptum við stjórnmálafræðiskor
Háskólans.
„Þetta voru semsagt gular
og svartar röndóttar buxur,
sem ég fékk í búð sem hét
Blondie eða Goldie og var á
Laugaveginum. Þær standa
langt upp úr öðrum slæmum
hlutum sem ég hef keypt. Ég
man samt hvað vinkona mín
var ægilega afbrýðisöm út af
þeim!“ segir Silja, sem óttast
að þessi tíska snúi aftur, ásamt með
neonlitunum.
Stjórnmálafræðingurinn telur
bestu kaupin vera tvær dragtir
sem hún fékk í Macy‘s í Banda-
ríkjunum.
„Þetta var á útsölu og ég náði að
kaupa mér tvær dragtir fyrir vinn-
una fyrir lítinn pening. Ég nota
þessar flíkur stundum, þótt þær
rokki af og til í stærðum,“ segir
Silja og minnir að lokum á
að á morgun [í dag] verður
haldinn í Háskóla Íslands
dagur ungra fræðimanna
í Evrópumálum. Þar
megi kynna sér glæný og
spennandi rannsóknar-
verkefni.
NEYTANDINN: SILJA BÁRA ÓMARSDÓTTIR STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR
Býflugnabuxurnar voru ansi slæm kaup