Fréttablaðið - 21.02.2008, Blaðsíða 34
[ ]
Alþjóðlegu samtökin The Art of
Living bjóða öndunarnámskeið
á Íslandi.
Mannrækt er í hávegum höfð hjá
samtökunum The Art of Living
sem voru stofnuð í Indlandi árið
1982. Lilja Steingrímsdóttir hjúkr-
unarfræðingur kynntist samtök-
unum fyrir tæplega fjórum árum í
Sviss.
„Ég var að ganga í gegnum
harða tíma, eins og gengur og ger-
ist í lífinu. Þá kom öndunarnám-
skeið samtakanna upp í hendurnar
á mér og hjálpaði mér mikið,“
segir Lilja og bætir við að fræðin
hafi varðveist í Indlandi í yfir
fimm þúsund ár. „Samtökin vinna
í sjálfboðastarf og tengjast engum
trúarbrögðum. Markmiðið er að
hlúa að mannlegum gildum og
allur ágóði rennur til skóla fyrir
munaðarlaus börn í þriðja heimin-
um,“ segir Lilja.
Á námskeiðinu er farið í gegn-
um slökun og þrenns konar önd-
unaræfingar. „Með æfingunum er
hægt að ná betri tökum á stressi
hversdagsleikans og auka andlega
og líkamlega vellíðan, sem meðal
annars stuðlar að betri svefni.
Æfingarnar henta öllum sem vilja
auka lífshamingjuna,“ segir Lilja
sem sjálf í kennaranámi hjá sam-
tökunum.
„Samtökin hafa strangar reglur
og þeir sem vilji kenna verða hafa
stundað þetta í 2 ár. Síðan er hægt
að sækja kennaranámskeið sem
ég er að taka núna,“ segir Lilja, en
fram undan eru námskeið á
Íslandi. „Við vorum með eitt nám-
skeið í fyrra og ætlum að bjóða
annað núna,“ segir Lilja. Nám-
skeiðið hefst 28. febrúar og varir
til 4. mars. Nánari upplýsingar
eru hjá Lilju í síma 692 8302 eða á
netfanginu:hjartanslist@yahoo.
com. rh@frettabladid.is
Mannleg gildi mikilvæg
Koddinn er mörgum kær og mikilvægt fyrir þá sem
finnst gott að sofa að eiga góðan kodda. Hægt er að fá
alls konar kodda og hver verður að finna út fyrir sig á
hvernig kodda hann hvílist best.
Lilja Steingrímsdóttir
kynntist öndunarjóga í
Sviss fyrir tæplega fjór-
um árum og býður nú
Íslendingum til leiks.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
Borðaðu
þig granna(n)
Nánari upplýsingar
Sími 865-8407
www.vigtarradgjafarnir.is
KIDS
Kids 2 in 1 Shampoo, Kids Bath & Shower,
Kids Conditioner, Kids Shampoo
Fæst í apótekum og verslunum um land allt.
Kids línan miðar að því að gera þvott skemmtilegan fyrir börn, líflegu
útliti og góðum ávaxtailm. Vörurnar eru sérstaklega þróaðar fyrir
viðkvæma húð og hár barna.
WWW.GAP.IS
4
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki