Fréttablaðið - 21.02.2008, Page 82
54 21. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI Skoska liðið Hearts hefur
enn ekki ráðið framtíðarstjóra en
sem kunnugt er þá hefur Guðjón
Þórðarson, þjálfari ÍA, verið á
meðal þeirra stjóra sem hafa verið
nefndir í starfið. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins frá Skotlandi
er Guðjón enn í myndinni.
Á meðal annarra stjóra sem
hafa verið nefndir í starfið eru
Raddy Antic, fyrrum þjálfari Bar-
celona, Real Madrid og Atletico
Madrid. Hann er aðeins einn af
tveimur þjálfurum í sögunni sem
hefur þjálfað bæði Real og Barce-
lona. Antic hefur ekkert þjálfað
síðan hann hætti með Celta Vigo
árið 2004.
Í engu sambandi við Hearts þessa
dagana
„Ég veit ekkert hvað verður og
er í raun ekkert að spá í það. Þetta
truflar mig ekki neitt og ég held
bara mínu striki með ÍA. Ég er í
engu sambandi við þá sem stend-
ur. Málið var að maður talaði við
mann og þannig var ég spurður
hvort ég hefði áhuga á þessu. Ég
svaraði því til að það þyrftu að
vera ákveðnir hlutir uppfylltir ef
ég ætti að hafa áhuga á þessu.
Þá var mér tjáð að til stæðu
breytingar og ákveðinn maður
hefði mikinn áhuga á að fá mig í
starfið. Það var reyndar ekki
Romanov sjálfur [eigandi Hearts]
en hann ræður þessu á endanum,“
sagði Guðjón við Fréttablaðið en
hann veit sem er að hann er ekki
enn úr myndinni.
„Það er í það minnsta ekki búið
að ráða. Ég er samt ekki að tapa
neinum svefni yfir þessu og hef
sagt að það þarf eitthvað meiri-
háttar aðlaðandi til að rífa mig
upp aftur og flytja út á nýjan leik.
Ég er alveg rólegur, er að pússa
golfkylfurnar mínar og ekki endi-
lega með það fyrir augum að spila
í Skotlandi,“ sagði Guðjón léttur.
Myndi taka Ross Jack með sér í
dæmið
„Þegar ég var spurður hvort ég
hefði áhuga á starfinu var einnig
spurt að því hvort ég væri klár
með eitthvað teymi. Ég játti því
enda myndi ég taka Ross Jack með
mér í þetta en hann er kunningi
minn frá Englandi. Hann er að
vinna fyrir skoska knattspyrnu-
sambandið, þekkir markaðinn og
landslagið vel,“ sagði Guðjón sem
er að undirbúa ÍA-liðið fyrir kom-
andi tímabil og lætur þetta mál
ekki trufla sig.
„Nei, ég er nákvæmlega ekkert
að spá í þessu þessa dagana enda
engin ástæða til. Ég veit nú samt
að þessi Romanov er algjörlega
óútreiknanlegur náungi,“ sagði
Guðjón Þórðarson að lokum.
henry@frettabladid.is
Ekki að hugsa um Hearts
Guðjón Þórðarson er ekkert að velta sér upp úr því hvort honum verði boðin
stjórastaðan hjá skoska liðinu Hearts eður ei. Hans nafn er enn inn í myndinni.
Guðjón er klár með aðstoðarmann fari svo að Hearts vilji ráða hann.
EKKERT AÐ SPÁ Í HEARTS Guðjón Þórðarson segist vera að pússa golfkylfurnar sínar
þessa dagana en þó ekki með það fyrir augum að spila í Skotlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HANDBOLTI Það verður skemmti-
legur tvíhöfði í N1-deild karla og
kvenna í Mýrinni í Garðabæ í
kvöld en Stjarnan og Fram mæt-
ast þá tvisvar í röð, fyrst kvenna-
liðin klukkan 18.00 og svo karlalið-
ið strax á eftir.
Kvennaleikurinn er lykilleikur í
baráttu beggja félaga um Íslands-
meistaratitilinn en Fram getur
náð sex stiga forskoti á toppnum
með sigri en Safamýrarstúlkurnar
hafa enn ekki tapað leik í vetur.
Liðin gerðu 21-21 jafntefli í fyrri
leiknum í Mýrinni en Fram vann
heimaleikinn með einu marki, 21-
20, í leik sem hafði miklar afleið-
ingar en Aðalsteinn Eyjólfsson,
þjálfari Stjörnunnar fékk tverggj
mánaða bann fyrir ummæli sína
um dómara leiksins.
Karlaliðin eru í 3. (Fram) og 4.
sæti en það er ekki langt í toppinn.
Liðin hafa mæst tvisvar sinnum í
deildinni í vetur og bæði skiptin
hafa útiliðin haft betur, Fram vann
28-31 í Mýrinni en Stjarnan vann
26-35 í Safanmýri tveimur vikum
eftir að Fram hafði slegið Stjörn-
una út úr bikarnum í tvífram-
lengdum leik á sama stað. - óój
Stjarnan og Fram í N1 deildum karla og kvenna:
Mætast tvisvar í röð
TÍU MÖRK Jóhann
Gunnar Einarsson var
heitur í fyrri leik Fram í
Mýrinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
KÖRFUBOLTI Jakob Sigurðsson náði
sínum besta stigaleik í vetur
þegar hann skoraði 23 stig í 75-89
tapi Univer KSE fyrir Marso-
Vagép í ungversku úrvalsdeild-
inni í körfubolta.
Jakob lék allar 40 mínúturnar í
leiknum og hitti úr 9 af 13 skotum
sínum auk þess að senda 3
stoðsendingar og taka 4 fráköst.
Jakob fékk 32 í framlagi fyrir
leikinn en hann var stigahæsti
leikmaður síns liðs.
Jakob hefur skorað 9,5 stig að
meðaltali í leik og hafði mest áður
skorað 13 stig í einum leik. - óój
Ungverski körfuboltinn:
Besti leikur Jak-
obs dugði ekki
BÆTTI SIG UM 10 STIG Jakob Sigurðson
náði sínum besta stigaleik.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Johan Cruyff er kominn
aftur til Ajax þar sem hann gerði
garðinn frægan sem leikmaður á
sjöunda og áttunda áratugnum og
var rekinn sem þjálfari árið 1988.
Cruyff mun hafa yfirumsjón
með að endurhanna skipulag
knattspyrnumála félagsins og er
ætlað að hjálpa Ajax við að
komast aftur í hóp besti liða í
Evrópu. Ajax er nú í 2. sæti
hollensku deildarinnar og datt út
úr UEFA-bikarnum í október sem
er versti árangur liðsins í Evrópu
í tvo áratugi.
Cruyff tók við starfinu í
kjölfarið á fundi þar sem slakur
árangur Ajax undanfarin tíu ár
var ræddur. - óój
Johan Cruyff snýr aftur heim:
Ætlar að hjálpa
Ajax á toppinn
FÓTBOLTI Lögreglan í Surrey á
Englandi lokaði æfingasvæði
Chelsea í gær eftir að umslag
með dularfullu dufti barst þangað
stílað á Avram Grant, knatt-
spyrnustjóra Chelsea. Í umslag-
inu fylgdi einnig bréf sem
innihélt svívirðingar og gyðinga-
hatur í garð Grants og konu hans
sem eru bæði frá Ísrael.
„Þegar þú opnar umslagið
muntu deyja hægum og kvalar-
fullum dauðdaga,“ sagði í bréfinu
samkvæmt heimildarmanni BBC
innan raða lögreglunnar í Surrey.
Grant var staddur í Grikklandi
þar sem Chelsea mætti Olympia-
kos í fyrrakvöld og var ekki
viðstaddur þegar bréfið barst á
æfingarsvæði Chelsea en
starfsmaður félagsins opnaði
bréfið sem lögreglan í Surrey
úrskurðaði svo að innihélt
meinlaust efni. - óþ
Avram Grant, Chelsea:
Var hótað lífláti
í fyrradag
HÓTAÐ Avram Grant fékk sent bréf þar
sem honum var hótað lífláti.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Valur getur tryggt sér
Reykjarvíkurmeistaratitilinn í
kvennaflokki í kvöld þegar þær
mæta KR í Egilshöllinni klukkan
21.00.
Valur hefur unnið fyrstu 4 leiki
sína með markatölunni 26-0 en
KR-liðið sem á leik inni hefur
unnið sína þrjá leiki með marka-
tölunni 16-0, þetta er því óopinber
úrslitaleikur mótsins.
KR hefur orðið Reykjavíkur-
meistari undanfarin tvö ár,
Vesturbæjarstúlkur unnu sams
konar leik 4-3 í fyrra og fyrir
tveimur árum vann KR þennan
óopinbera úrslitaleik félaganna 2-
1 og endaði þar með fimm ára
sigurgöngu Valsliðsins.
- óój
Reykjavíkurmót kvenna:
Missa KR-konur
titilinn til Vals?