Fréttablaðið - 22.02.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Er ekki kominn tími á
vorhreingerningu? Skráðu
smáauglýsinguna á visir.is
eða hringdu í síma 512 5000
og seldu gamla dótið með
lítilli fyrirhöfn.Allt sem þú þarft... ...alla daga
18.– 29. febrúar.
Verð frá 990 kr.
Kompudagar í
smáauglýsingunum
Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
22. febrúar 2008 — 52. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Rauða húsið á Eyrarbakka býður upp á glæsilegar þriggja og fimm rétta kvöldmáltíðir um helgina í tilefni hátíðar-innar Fóður og fjör sem haldin verður á landsbyggðinni í fyrsta skipti.
austurlamb.is er vefsíða þar sem hægt er að kaupa lambakjöt beint frá ákveðnum bóndabýlum á Austurlandi. Á síðunni má fá upplýsingar um býlin, finna upp-skriftir og lesa ummæli kaupenda.
Fermingartímabilið er fram undan og um að gera fyrir þá sem eru að ferma börnin sín í ár að fara að huga að veisluföngum ef bjóða á mörgum gestum.
Ragnheiður Harvey, dagskrár- og fjölmiðlafull-
trúi Norræna hússins, hefur mikinn áhuga á
og matargerð
er afar einfaldur í
Einfalt og seðjandi
Ragnheiður fer oft nýjar leiðir í matargerð sinni og notar mikið af grænmeti og ávöxtum í matargerð sína.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Síðustu sætinHeimsferðir bjóða frábær tilboð á síðustu sætunum á skíði í Austurríki
í febrúar og mars. Bjóðum vikuferðir 23. febrúar og 1. mars; frábær
sértilboð á flugsætum og frábær tilboð á flugi og gistingu. Þú bókar
tvö flugsæti en greiðir aðeins fyrir eitt. Tryggðu þér skíðafrí á besta
verðinu og bókaðu strax. Mjög takmarkað framboð flugsæta.
Verð Kr. 49.990Flug og gisting í vikuNetverð á Verð Kr 59 990
Verð Kr. 19.990Flugsæti með sköttum. 23. febrúar eða 1. mars. Netverð á mann.
SUÐURLAND
Nýr köfunarskóli stofn-
aður í Vestmannaeyjum
Sérblað um Suðurland
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Herratískan
2008
Allt sem þú
þarft að vita til
þess að vera
ekki púkalegur.
FYLGIR
FRÉTTABLAÐINU
Í DAG
FÖSTUDAGUR22. FEBRÚAR 2008
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
HERRATÍSKAN
eins og hún leggur sig
10 hlutir
Jóels
Pálssonar
ÞORVALDUR SKÚLASON
DÆMIR HÆÐINA
FÖSTUDAGUR
suðurland Á bólakaf í EyjumNýr köfunarskóli hefur starfsemi í Vestmanna-eyjum í vor. BLS. 6
FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
Gæði til framtíðar
RAGNHEIÐUR HARVEY
Hefur mikinn áhuga á
mat og matargerðarlist
matur
Í MIÐJU BLAÐSINS
Harðstjóri kveður
„Fyrsta áratuginn undir stjórn
Kastrós voru milli sjö og tíu þús-
und manns teknir af lífi af stjórn-
málaástæðum og um 30 þúsund
manns sendir í fangabúðir,“ skrifar
Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
Í DAG 22
Alfreð til aðstoðar
Alfreð Gíslason mun
verða HSÍ innan
handar í leit að
hæfum erlendum
landsliðsþjálfara.
ÍÞRÓTTIR 43
Gerir stuttmynd á Íslandi
Gael Garcia Bernal
nýtir Íslandsdvölina
til að gera stuttmynd
fyrir Sameinuðu
þjóðirnar.
FÓLK 46
STÖKU ÉL VESTAN TIL Í dag verða
vestan 5-10 m/s. Stöku él vestan
til en bjart með köflum eystra. Frost-
laust að deginum syðra, annars frost
0-7 stig, kaldast til landsins.
VEÐUR 4
-3 -5
-3
1
0
VEÐRIÐ Í DAG
ORKUMÁL Orkuveita Reykjavíkur
vill leggja áherslu á fjölbreytni í
hópi stórviðskiptavina fyrirtækis-
ins, segir Hjörleifur B. Kvaran,
forstjóri OR.
Fyrirtækið hefur
þegar samið um
orku til fyrirhug-
aðs álvers í
Helguvík.
„Við seljum ansi
mikið af orku til
álvera. Það er
áhugi hjá okkur að
skoða fleiri kosti,“
segir Hjörleifur.
Hann segir fjölmarga hafa lýst
áhuga á orku sem upphaflega hafi
verið ætluð í stækkun álvers Alcan
í Straumsvík. OR telji heppilegt að
hafa ekki „öll eggin í einni körfu“.
Áður hefur Landsvirkjun lýst
því yfir að fyrirtækið muni ekki
selja nýjum álverum á Suð-
vestur landi orku. - bj
OR vill fjölbreytni í orkusölu:
Ekki öll eggin
í einni körfu
HJÖRLEIFUR B.
KVARAN
SEXHUNDRUÐ ÞÚSUND PÁSKAEGG Þær Elín og Soffía hjá Nóa Siríusi eru nokkuð vanar handtökunum þegar kemur að því að
steypa páskaeggin enda eru framleidd um 600 þúsund páskaegg hjá Nóa Siríusi fyrir komandi páska. Eggin eru þegar farin að
streyma í verslanir enda aðeins þrjátíu dagar til páska. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI Kostnaður verslana
vegna kjarasamninga leggst
einna þyngst á matvöruverslanir
og eykur enn verðbólguþrýsting í
þeim geira. Laun hækka mest þar
sem þau hafa verið lægst, líkt og
í matvörugeiranum.
„Þessir kjarasamningar koma
mjög þungt niður á versluninni í
landinu og lenda líklega þyngst á
matvöruversluninni,“ segir Finn-
ur Árnason, forstjóri Haga, sem
reka Hagkaup, 10-11, Bónus og
fleiri verslanir. „Nærri lagi er að
kostnaðarauki okkar sé rúmlega
átta prósent, sem er allt annað en
gefið er í skyn í umræðum um
samningana,“ bætir hann við.
Á fundi með fulltrúum atvinnu-
greina innan vébanda Samtaka
verslunar og þjónustu síðdegis í
gær vakti Eysteinn Helgason,
framkvæmdastjóri Kaupáss, sem
meðal annars rekur Nóatún og
Krónuna, athygli á mismiklum
áhrifum samninganna á ólík fyr-
irtæki.
„Þetta leggst mun þyngra á
matvöruverslun en nemur þessu
tæplega fjögurra prósenta með-
altali sem upp er gefið,“ segir
Eysteinn og bætir við að það sé
ljóst að mikill verðbólguþrýst-
ingur sé í pípunum. „Það ber ekk-
ert fyrirtæki átta til tíu prósenta
launahækkun. Miklar hækkanir á
vöruverði eru yfirvofandi,“ segir
Eysteinn og bætir við að þeir sem
mestar kjarabætur fái hjá Kaup-
ási séu unglingar og erlendir
starfsmenn.
- óká
Kostnaðarauki vegna kjarasamninga í matvöruverslun nemur átta prósentum:
Leggst þungt á matvöruverslun
STJÓRNSÝSLA Nefnd forsætisráð-
herra sem kannaði starfsemi
Breiðavíkurheimilisins kemst að
þeirri niðurstöðu að skaðabóta-
skylda stjórnvalda hafi myndast
vegna þess tjóns sem drengir sem
vistaðir voru á heimilinu urðu fyrir.
Byggir nefndin þar á álitsgerð Við-
ars Más Matthíassonar, prófessors
í skaðabótarétti við Háskóla
Íslands. Niðurstöður nefndarinnar
renna enn frekari stoðum undir að
margt í starfsemi Breiðavíkur-
heimilisins hafi farið mjög miður.
Nefnd sem skipuð var af Geir H.
Haarde forsætisráðherra í apríl
2007 til að kanna starfsemi Breiða-
víkurheimilisins hefur skilað
skýrslu sinni til ráðherra og verður
hún kynnt í dag. Í skýrslunni, sem
Fréttablaðið hefur undir höndum,
kemst nefndin að þeirri niðurstöðu
að sannað sé að vistmenn hafi orðið
fyrir illri meðferð frá starfsmönn-
um og öðrum vistmönnum.
„Það er ljóst að fátt ef nokkuð
getur í reynd bætt þann skaða sem
margir vistmenn Breiðavíkur-
heimilisins urðu sýnilega fyrir
vegna dvalar sinnar,“ segir í skýrsl-
unni, sem er nákvæm úttekt á mál-
efnum Breiðavíkur á 359 síðum.
Nefndin leitaði til Viðars Más
Matthíassonar, prófessors í skaða-
bótarétti við Háskóla Íslands, til að
meta hvort skaðabótaskylda hins
opinbera gagnvart fyrrverandi
vistmönnum Breiðavíkur væri til
staðar. Viðar Már telur að stofnast
hafi skaðabótaskylda á því tjóni
sem einstaklingar sem vistaðir
voru á Breiðavík hafi orðið fyrir.
Nefndin tekur undir það viðhorf,
með nokkrum fyrirvörum. Leggur
nefndin því til að stjórnvöld leggi
mat á hvort og að hvaða marki verði
leitast við að rétta hlut þeirra sem
brotið var á með fjárgreiðslu í
formi skaðabóta. Er að mati
nefndarinnar talið rétt að líta til
Noregs um fyrirkomulag á greiðslu
slíkra bóta. Ríkinu er ekki skylt að
greiða bætur til vistmanna sem
dvöldu á Breiðavíkurheimilinu þar
sem slíkar kröfur eru fyrndar.
Niðurstaða nefndarinnar er að
hyggist íslenska ríkið greiða skaða-
bætur til vistmanna á Breiðavík
komi tvær leiðir til greina; annars
vegar að leysa úr hverju máli fyrir
sig á grundvelli krafna frá þeim
einstaklingum sem eiga í hlut eða
að sett verði lög sem heimila að
greiddar verði skaðabætur á
almennum grundvelli.
Af 158 einstaklingum sem dvöldu
á Breiðavíkurheimilinu eru 33
látnir og ellefu einstaklingum tókst
nefndarmönnum ekki að hafa uppi
á. Fordæmi eru fyrir því að ríkið
greiði skaðabætur þótt ekki sé um
skyldu til þess að ræða. - shá
Telur Breiðavíkurdrengi
eiga rétt á skaðabótum
Skaðabótaskylda myndaðist vegna tjóns sem drengir á Breiðavíkurheimilinu urðu fyrir. Þetta er mat
nefndar forsætisráðherra um starfsemi heimilisins, byggt á áliti sérfræðings í skaðabótarétti.
VESTMANNAEYJAR Bæjarstjórn
Vestmannaeyja lýsti á fundi sínum
í gærkvöldi yfir þungum áhyggjum
vegna stöðu mála í sjávarútvegi í
Vestmannaeyjum. Segir í bókun
fundarins að stöðvun loðnuveiða
muni þýða 3,8 milljarða tap fyrir
sjávarútveginn í Eyjum og bætist
það ofan á 3,6 milljarða tap vegna
niðurskurðar á þorskkvóta.
Bæjaryfirvöld leggja þunga
áherslu á að ríkisvaldið grípi
tafarlaust til aðgerða. Meðal þess
sem lagt er til er að styrkja
sjávarútveg með því að aflétta
íþyngjandi álögum, styrkja
fræðasvið sjávarútvegs og efla
hafrannsóknir. Einnig vilja
Eyjamenn að hvalveiðar verði
hafnar af auknum þunga.
- ovd / sjá síðu 2
Bæjarstjórn Vestmannaeyja:
Vill að ríkið
grípi til aðgerða