Fréttablaðið - 22.02.2008, Page 24

Fréttablaðið - 22.02.2008, Page 24
24 22. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR UMRÆÐAN Fiskveiðar Málefni tengd fiskveiðum og vinnslu hafa fjarlægst daglega umræðu okkar Íslendinga. Þessi þróun hefur gerst hratt á síðustu áratugum. Senni- lega hefur afli, spretta og veður verið forfeðrum okkar hugleikin sl. þúsund ár eða svo. Á mannamót- um í dag eru þeir sem ræða um sjó- menn eða bændur í þaula álitnir svolítið skrítnir. Aðrir hlutir þykja fínni umræðuefni svo sem bankar, peningar og viðskipti. Ég veit ekki hvort þessi þróun í samfélaginu sé ástæðan fyrir því að líffræðingarnir á Hafrann- sóknastofnun fóru að beita hag- fræði við fiskeldi. Hvað sem því líður þá stöndum við frammi fyrir því að hagfræði þeirra hefur skilað okkur hörmu- legum árangri í fiskeldi. Hagfræði Hafró gengur út á það að banna mönnum að veiða fisk. Þetta er orðið eins og 11. boðorðið í íslensku þjóðlífi. Meðan við höfðum ein- göngu 10 boðorð virkaði þetta vel. Þá sá náttúran um sig sjálf. Ef það var bræla var ekki farið á sjó, það er eins í dag. Ef netin voru hálftóm flutti flotinn sig til. Þegar menn gátu veitt þá veiddu þeir hvað þeir gátu. Samt var alltaf fiskur í haf- inu. Svo kom 11. boðorðið. Bannað að veiða fisk og sérstaklega ekki lít- inn ungan fisk. Hver er niðurstað- an? Vægast sagt hörmuleg. Það er ekki mikið af fiski í hafinu. Sá fisk- ur sem veiðist er horaður með magafylli af afkvæmum sínum. Fiskurinn er ekki bara horaður heldur mun minni en jafnaldrar hans voru þegar menn veiddu eins og þeir gátu. Þegar við sjáum fréttamyndir af manneskjum sem hafa lent í hungurs neyð, rýr, sljó og með þan- inn maga vegna eggjahvítuskorts, hvað gerum við þá? Sendum þeim mat, ekki satt? Nú, ef þessar mann- eskjur fá engan mat þá deyr stærsti hlutinn og þeir sem lifa af verða vel nærðir og sterkir. Ef mannát væri viðurkennd iðja hjá mannskepnunni þegar ekkert annað væri á boðstólum þá kæmi hungurs neyðin mun síður fram, ekki satt? Ég læt öðrum eftir að hártogast frekar með hagfræðikenningar Hafró, enda botnar enginn neitt í þeim. Meginniðurstaðan er sú að takmörkun veiða hefur ekki skilað þeim árangri sem vænst var. Það er ekki ásættanlegt að það sem við höfum haft úr býtum sé horaður, vanþroska fiskur fullur af sjálfum sér. Við ætlumst til betri árangurs þegar mestu mannvitsbrekkur landsins eiga í hlut. Borið saman við almennt hyggjuvit forfeðra okkar þá er árangurinn ansi rýr. Ég tel að í þessu máli sé brýn þörf á uppstokkun og endurskoðun allra málavaxta. Það er ekki ásættan legt að bæði þorskurinn og mannlíf úti á landi sé nánast að engu orðið. Í þúsund ár beittu for- feður okkar hyggjuvitinu í umgengni sinni við náttúruna en ekki hagfræði. Hagfræði á vel heima á öðrum sviðum mannlífs- ins. Að lokum tel ég nauðsynlegt að innleiða sjálfbæra þróun bæði í fiskveiðistjórnun og Hafrann- sóknastofnun ríkisins. Höfundur er læknir. 11. boðorðið og mannát GUNNAR S. ÁRMANNSSON A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið VELDU ÞAÐ BESTA! RÝMINGARSALA! NÚNA ER TÆKIFÆRIÐ! 700.00 0 AFSLÁ TTUR 500.00 0 AFSLÁ TTUR 400.00 0 AFSLÁ TTUR 90-100 % LÁN 300.00 0 AFSLÁ TTUR 80.000 15” SJÓNVARP MEÐ DVD, AÐ VERÐMÆTI KR. FYLGIR HVERJU HJÓLHÝSI Á ÚTSÖLUNNI! FYRSTA ALVÖRU ÚTSALAN Á NOTUÐUM HJÓLHÝSUM! Nú eigum við allt of mikið af notuðum hjólhýsum og húsbílum og þurfum þess vegna að losa pláss. Því bjóðum við 150-700.000 KR. AFSLÁTT AF ÖLLUM NOTUÐUM HJÓLHÝSUM sem við eigum á lager. Útsalan stendur yfir fram á miðvikudag -ef birgðir endast svo lengi! DRÍFÐU ÞIG OG GERÐU GEGGJUÐ KAUP! FYRSTIR KOMA - FYRSTIR FÁ! WWW.VIKURVERK.IS VÍKURHVARFI 6 SÍMI 557 7720 BARA Í 5 DAG A! ALLIR VAGNA R INNI VERIÐ VELKOMIN! OPIÐ LAUGARDAG KL. 12-16 SUNNUDAG KL. 13-17.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.