Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.02.2008, Qupperneq 78

Fréttablaðið - 22.02.2008, Qupperneq 78
46 22. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 HVAÐ VAR ÉG AÐ SPÁ? LÁRÉTT 2. bátur 6. frá 8. dvelja 9. pili 11. númer 12. rusl 14. veldis 16. utan 17. bókstafur 18. fát 20. í röð 21. fullnægja. LÓÐRÉTT 1. lengdareining 3. mun 4. taka í sinn hóp 5. samstæða 7. sviptur veru- leikaskyni 10. mánuður 13. gerast 15. skömm 16. upphrópun 19. eldsneyti. LAUSN LÁRÉTT: 2. skip, 6. af, 8. una, 9. rim, 11. nr, 12. drasl, 14. ríkis, 16. út, 17. emm, 18. fum, 20. aá, 21. fróa. LÓÐRÉTT: 1. yard, 3. ku, 4. innlima, 5. par, 7. firrtur, 10. maí, 13. ske, 15. smán, 16. úff, 19. mó. „Mér finnst fáránlegt að heyra talað um mislæg gatnamót og sjá stefnulausar stækkanir á gatnakerfinu meðan hagsmunir hjólreiðafólks gleymast algjör- lega.“ Magnús Bergsson, þáverandi formaður Íslenska fjallahjólaklúbbsins, í DV í júní 1994. „Það hefur bara ekkert breyst. Núna er eins og menn séu byrjaðir að tala um hjólreiðabrautir, en það er í rauninni full- seint, þar sem það er búið að byggja upp svona viðamikið akbrautakerfi. Ég hef ekki ennþá séð neina vitundarvakningu í verki,“ segir Magnús nú. Mexíkóski leikarinn Gael Garcia Bernal steig á svið Borgarleikhússins í gær en þá var Kommúnan frumsýnd að viðstöddum fjölda góðra gesta. Eins og kom fram í viðtali við leikarann í Fréttablaðinu sagðist Bernal kunna vel að meta þann næga tíma sem hann hefði haft hér á landi enda væri enginn að flýta sér í höfuðborginni. Bernal virðist hafa nýtt tím- ann vel því samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins undirbýr hann nú gerð stuttmyndar fyrir Sameinuðu þjóðirnar sem á að skarta íslenskum leikurum í aðalhlutverkum. Stuttmyndin mun að mestu leyti fjalla um menntun og hversu mikilvæg hún sé. Bernal hefur reyndar ekki látið sitt eftir liggja þegar kemur að mannúðarmálum en hann tók meðal annars að sér lestrarkennslu fyrir indíánaætt- bálk í Mexíkó aðeins fjórtán ára gamall. Bern- al ætti jafnframt að hafa nokkuð góð kynni af umbótum og öðru tengdu slíku enda hefur leikarinn tvívegis brugðið sér í líki byltingar- foringjans Che Guevera. - fgg Gael Garcia gerir stuttmynd á Íslandi ÖNNUM KAFINN Bernal hefur ekki bara legið í leti á meðan dvöl hans hér hefur staðið en hann undirbýr gerð stutt- myndar fyrir Sameinuðu þjóðirnar. „Þátttakan er mun minni en við bjuggumst við,“ segir Þorsteinn Þorsteinson, markaðsstjóri RÚV. En íslenska þjóðin hefur kosið Euro vision-lög fyrir tæpar átta milljónir íslenskra króna. Þessi upphæð á þó eftir að hækka tölu- vert þegar Euro vision-framlag Íslendinga verður valið annað kvöld en búist er við um hundrað þúsund atkvæð- um. Ekki er hins vegar hægt að kvarta undan áhorfinu því Laugardags- lögin mælast með tæp- lega sextíu prósent áhorf samkvæmt nýlegri könnun Capacent. Fólk virðist því horfa en láta símana í friði. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins hafa um fimm þúsund atkvæði borist að meðaltali í hverri undankeppni fyrir sig en Þorsteinn vildi hins vegar ekki tjá sig um þær tölur. Sextán keppniskvöld hefur þurft til að velja lögin átta sem keppa í Smára- lindinni um farseðilinn til Belgrad og ef spár ganga eftir má því fast- lega reikna með að þjóðin eyði tæplega tíu milljónum í símakosn- ingunni á laugardaginn. RÚV og Síminn skipta þeirri upphæð jafnt á milli sín; RÚV fær helminginn og Síminn hinn en hvert atkvæði kost- ar 99 krónur og er enginn kvóti á því hversu margir megi kjósa hverju sinni. Þessar tölur eru mun lægri í samanburði við Idol- keppnir Stöðvar 2 og X-Fact- or. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins bárust að meðaltali 60-80 þúsund atkvæði í undankeppnun- um Idol-keppnanna þriggja en þar var hins vegar yfirleitt kosið um fleiri atriði. Að meðaltali komu síðan 150 þúsund atkvæði þegar krýna átti poppstjörnu Íslands í Smáralindinni. Að sögn Þórhalls Gunnarssonar, dagskrárstjóra RÚV, verður loka- kvöldið allt hið glæsilegasta en hann vildi ekki gefa upp kostnað- inn við það. Hann sagðist enn- fremur ekki ætla að tjá sig um kostnaðinn við Laugardagslögin í heild en sagði allt vera samkvæmt kostnaðaráætlun. „Við höfum ekki verið vön að gefa upp kostnað við einstaka þætti og mér ber ekki skylda til þess,“ segir Þórhallur. Uppselt er á lokakvöldið í Smáralindinni að sögn Þórhalls en talið er að rúmlega fimm hundruð manns hafi greitt 1.800 krónur fyrir sætin, eða sem samsvarar tæpri milljón. Lagahöfundarnir átta fengu allir tíu miða til útdeil- ingar þannig að tæplega sex hundruð manns verða í Vetrar- garðinum þegar framlag Íslend- inga til Eurovision verður valið. freyrgigja@frettabladid.is ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON: MINNI ÞÁTTTAKA EN BÚIST VAR VIÐ Íslendingar eyða milljón- um í Eurovisionkosningar LOKAKVÖLD Á KOSTNAÐAR- ÁÆTLUN Þórhallur Gunnars- son segir að Euro vision- lokakvöldið sé hluti af heildarkostnaði og allt sé á áætlun. LÍKLEG Euroband Regínu Óskar og Friðriks Ómars og kraftakarlarnir í Merzedes Club þykja sigurstranglegust. Hjónin Linda Mjöll Þorsteinsdótt- ir og Össur Hafþórsson opna nýja lúxus-húðflúrsstofu á Frakkastíg á mánudag. Á stofunni, sem heitir Reykjavík Ink, munu eingöngu starfa erlendir listamenn. „Þeir sem hafa komið á tattúráðstefn- una sem við höfum staðið fyrir síðustu tvö ár eru æstir í að koma aftur, og við stefnum á að flytja inn nýja og nýja erlenda flúrara,“ segir Linda, en þriðja tattúhátíðin, undir nafninu Icelandic Tattoo Festival, fer fram í júní í ár. „Við erum bæði mikið áhugafólk um húðflúr og höfum sótt ráðstefnur um allan heim,“ útskýrir Linda, en eins og margan grunar eflaust eru þau bæði skreytt flúrum í bak og fyrir. „Ég er með á bakinu, hönd- unum, aftan á kálfunum… Maður- inn minn er eiginlega bara blek, þau eru orðin svo mörg að maður er hættur að telja,“ segir hún og hlær við. Þau Linda og Össur hafa látið flytja inn sérstakan tattústól, þann eina sinnar tegundar á landinu, og leggja áherslu á allan aðbúnað. Á stofunni verður því meðal annars að finna sjónvarp og Playstation- tölvu fyrir viðskiptavini. „Við ætlum að vera svona snobbstofan í tattúinu,“ segir Linda og slær á létta strengi. Það er þó ekki fjarri sannleikanum, því eins og Linda segir eru það ekki lengur bara pönkarar á unglingsaldri sem fá sér húðflúr. „Í dag eru þetta líka konur eins og ég, sem geng um bæinn á hælum með mína Gucci- tösku, og það myndi engan gruna að ég væri með öll þessi húðflúr. Það vantaði svona fínni stofu fyrir þennan markhóp,“ útskýrir hún. Í húsnæðinu verður einnig að finna verslun með föt frá merkinu Ed Hardy, sem Linda flytur inn. Húðflúrararnir og Íslandsvin- irnir Santana og Ms. Deborah opna stofuna á mánudag. Hún er til húsa á Frakkastíg 7. - sun Opna lúxushúðflúrsstofu í Reykjavík ÁHUGAFÓLK UM HÚÐFLÚR Þau Linda og Össur eru mikið áhugafólk um húðflúr og opna nú lúxusstofuna Reykjavík Ink. Með þeim á myndinni er dóttir þeirra, Írena. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Myndbandið við lag Eurobands- ins, This Is My Life, náði 22. sæti yfir vinsælustu myndbönd- in í Bretlandi á heimasíðunni Youtube. Æstur erlendur aðdáandi lagsins sótti demó-upp- töku af myspace-síðu Friðriks Ómars, skeytti saman við hana ljós- myndum af þeim Frið- riki og Regínu Ósk og bjó til myndband. Svo vinsælt var það að sjálf Amy Winehouse þurfti að lúta í lægra haldi fyrir Íslendingunum. Þrátt fyrir að rokkarinn Eiríkur Hauksson taki ekki þátt í Euro- vision í ár hefur hann í nógu að snúast því samkvæmt myspace- síðu hans er hann bókaður fram í miðjan ágúst. Í mars spilar hann í nokkrum einkasamkvæmum hér á landi en þegar líða tekur á sumarið bætast við tónlistarhátíðir í Noregi, Svíþjóð og Ungverjalandi. Auk þess kemur hann fram í finnskum sjónvarps- þætti í maí, þannig að eftirspurnin eftir Eiríki hefur vafa- lítið aldrei verið meiri. Ekki eru það aðeins unglömbin sem nema ný lönd og standa í útrás. Þannig heyrist nú frá Forlaginu að frábær bók Thors Vilhjálmssonar, Grámosinn glóir, sé komin út á Spáni. Grámosinn glóir heitir nú Arde el musgo gris en hún kemur út í ritröðinni Letras Nórdicas. - fb/jbg FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1. Thelma Björk Jónsdóttir. 2. Avram Grant. 3. Hussein.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.