Fréttablaðið - 04.04.2008, Side 2

Fréttablaðið - 04.04.2008, Side 2
2 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR Páll, eru þeir ekki ábyggilega allir að sunnan? „Við öflum fanga víða.“ Fyrstu fangarnir verða sendir í nýuppgert Akureyrarfangelsi innan tíðar. Páll Winkel er forstjóri Fangelsismálastofnunar. STJÓRNMÁL Íslensk stjórnvöld hafa ekki ákveðið hvort þau sniðgangi Ólympíuleikana í Kína. Angela Merkel Þýskalandskanslari og fleiri þjóðarleiðtogar ætla ekki að sækja leikana í mótmælaskyni við ástand mannréttindamála í Kína. „Mér finnst ekki tímabært að kveða upp úr um það,“ svaraði Geir Fréttablaðinu í gær. „Ólympíu leikarnir snúast ekki um pólitík og ég tel varhugavert að blanda saman íþróttakappleikjum og stjórnmálum.“ Menntamálaráðherrar Íslands hafa sótt Ólympíuleika, síðast Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í Aþenu 2004. - bþs Geir H. Haarde um ÓL í Kína: Leikarnir snúast ekki um pólitík noatun.is LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ Grísahnakki í beikonmarineringu Þú sparar 600 kr. 1.298kr.kg. Ljúffengt og gott LÖGREGLUMÁL Eðlilegt er að almennt ríki jafnvægi við ákvörðun fjárveitinga um stóra útgjaldaþætti ríkisins, svo sem öryggis- og löggæslumál annars vegar og heilbrigðis- og menntamál hins vegar. Þetta segir Björn Bjarnason dóms- og kirkjumála- ráðherra. Hann bendir jafnframt á að fjárveitingar ársins 2008 hafi verið ákveðnar í fjárlögum til allra þessara málaflokka. Nú sé litið til árs 2009. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæð- inu, telur nauðsynlegt að til komi auknar fjárveitingar til öryggis- og löggæslumála í landinu. Ella sé sá árangur sem náðst hafi í hættu. Hann telur jafnframt nauðsynlegt að þessi þáttur fái fjárveitingar til jafns við mennta- og heilbrigðismál. Formaður fjárlaganefndar Alþingis hefur boðað að lögreglustjóri og fulltrúi dómsmálaráðuneytis verði kallaðir á fund nefndarinnar til að fara yfir málið. Ráðherra segir að af hálfu dóms- og kirkjumála- ráðuneytisins verði áfram staðið á bak við gott starf lögreglu og hún efld eins og kostur er. „Ég fagna því, að hjá borgaryfirvöldum virðist meiri áhugi en áður á því að taka á hinum skipulags- legu og félagslegu þáttum, sem skipta ekki síður máli í baráttu við ofbeldi en löggæsla og refsingar,“ segir ráðherra. - jss Björn Bjarnson dómsmálaráðherra um fjárveitingar til löggæslu í landinu: Vill jafnvægi við ákvörðun fjárveitinga til stórra þátta LÖGREGLUMENN VIÐ STÖRF Dómsmálaráðherra segir lögregl- una verða eflda áfram eins og kostur er. KÍNA, AP Kínversk stjórnvöld hyggjast rétta yfir þátttakendum í uppþotum í Lhasa og opna Tíbet á ný fyrir ferðamönnum í maímán- uði. Með þessu vill Kínastjórn leggja að baki hið alþjóðlega upp- nám sem uppþot Tíbeta og við- brögð kínverskra yfirvalda við þeim hefur valdið, með góðum fyrirvara áður en Ólympíuleik- arnir hefjast í Peking í ágúst. Önnur héruð þar sem Tíbetar eru fjölmennir munu hins vegar vera áfram lokuð fyrir ferðamönn- um. Þannig meinaði til að mynda lögregla í Setsúan-héraði útlend- ingum aðgang í gær. Einn lög- reglufulltrúi sagði að eitt tiltekið svæði, þar sem búddamunkar og óbreyttir Tíbetar efndu til víð- tækra mótmæla í síðasta mánuði, yrði lokað fyrir útlendingum fram yfir Ólympíuleikana. Í opinberum áróðri stjórnvalda er Dalai Lama og útlagastjórn hans enn kennt um upptök uppþot- anna sem hófust í Lhasa 14. mars. Í stranglega ritskoðuðum frétta- flutningi kínverskra fjölmiðla af gangi mála í Tíbet er fullyrt að ástandið sé að færast í samt horf. Hu Jia, einn þekktasti kínverski baráttumaðurinn fyrir auknum lýðréttindum, var í gær dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir undirróðursstarfsemi. Stjórnvöld beita því teygjanlega lagaákvæði óspart gegn andófsmönnum. - aa SPENNA Frá Tíbetabænum Xiahe í Gansu-héraði í Vestur-Kína. Þótt opna eigi Tíbet sjálft fyrir ferðafólki verða ýmis héruð Tíbeta áfram lokuð útlendingum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Kínastjórn hyggst opna Tíbet aftur fyrir ferðamönnum í maí: Réttað yfir uppþotsmönnum Létust í slysi á Auðkúluheiði Mennirnir sem fundust látnir í skothúsi á Auðkúlu- heiði í gær hétu Flosi Ólafsson og Einar Guðlaugs- son. Einar var fæddur árið 1920. Hann var búsettur að Húna- braut 30 á Blönduósi. Einar lætur eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin börn. Flosi var fæddur 1956. Hann var til heimilis að Jónsgeisla 1 í Reykjavík. Flosi lætur eftir sig sambýlis konu og tvo uppkomna syni. FLOSI ÓLAFSSON FRÆÐI Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, telur brot Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar prófessors, þar sem hann var dæmdur í Hæstarétti fyrir brot á höfundarlögum, áfall fyrir skólann sem hafi rýrt traust hans. Hún átelur vinnubrögð Hannesar en háskólinn telur sig ekki hafa lagalegt svigrúm til að áminna Hannes. Áminning hefði réttlætt brottrekstur við endurtekið brot. Kristín hefur ritað bréf til Hannesar þar sem fram kemur að hún telji að staðfesting Hæstaréttar á að við ritun fyrsta bindis af ævisögu Halldórs Kiljan Laxness hafi Hannes brotið gegn höfundarrétti skáldsins sé áfall fyrir Háskóla Íslands. Vinnubrögð Hannesar hafi verið „ósæmileg og ósamræmanleg þeim kröfum sem Háskóli Íslands geri til akadem- ískra starfsmanna sinna“. Háskólinn telur sig þó ekki hafa lagalegt svigrúm til að veita Hannesi áminningu „með tilsvar- andi réttaráhrifum“. Er þar átt við að áminning hefði réttlætt uppsögn við endurtekið brot gegn lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Háskólinn telur þó brot Hannesar verðskulda áminningu, og ber þar fyrir sig álit lögfræðinga innan sem utan skólans. Ástæðan fyrir því að skólinn telur sig ekki geta áminnt Hannes er hversu langur tími er liðinn frá því að brotið átti sér stað. Er þá til þess tekið að siðanefnd skólans ákvað að fresta meðferð málsins á sínum tíma á meðan fjallað væri um það fyrir dómi. Hannes Hólmsteinn segir það ekki hafa verið ásetning sinn að brjóta lög. „Ég ætla að gefa fyrsta bindið út aftur í ljósi dómsins og gagnrýni sem bókin hefur fengið. Mistök eru til að læra af þeim en ekki afneita þeim. Mér finnst mjög miður ef ég hef rýrt traust skólans og mun vinna að því að endurvinna það.“ Spurður hvort honum finnist eðlilegt að hann sitji áfram sem prófessor við skólann í ljósi dómsins og ávirðinga rektors segir Hannes að það sé annarra að meta það. „En það er augljóst að sumum öðrum finnst það ekki eðlilegt. Þá er spurningin sú hvort það sé vegna þess að þeir leggja á mig hatur eða þeir hinir sömu haldnir pólitísku ofstæki og þetta komi dómnum ekkert við.“ Guðný Halldórsdóttir, dóttir skáldsins, segir niðurstöðu rektors „kómíska“. „Þetta er fordæmisgef- andi fyrir skólann; sérstaklega fyrir nemendur. Skólann setur niður og trúverðugleiki hans hefur borið hnekki.“ Ekki náðist samband við rektor við vinnslu fréttarinnar. svavar@frettabladid.is Áfall fyrir Háskólann sem rýrir traust hans Brot Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar gegn höfundarrétti Halldórs Laxness er áfall fyrir Háskóla Íslands, að mati rektors. Hún telur traust skólans hafa beð- ið hnekki. Hannes mun gefa bókina út aftur og taka tillit til gagnrýni á hana. KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR HÁSKÓLI ÍSLANDS Í bréfi rektors til fjölskyldu Halldórs Laxness harmar hún að starfandi prófessor við skólann skuli hafa brotið gegn höfundarrétti skáldsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hannes Hólmsteinn var dæmdur í Hæstarétti 13. mars til að greiða Auði Sveinsdóttur, ekkju Halldórs Kiljan Laxness, 1,5 milljónir króna í skaðabætur, vegna brota á 56. grein höfundar- laga. Þótti Hannes hafa brotið gegn höfundarlögum 101 sinni við ritun bókarinn- ar Halldór, sem samsvaraði rúmlega 210 blaðsíðum úr verkum skáldsins. ÚR DÓMI HÆSTARÉTTAR HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON VIÐSKIPTI Álag á skuldabréfa- útgáfu stóru viðskiptabankanna lækkar enn í tilboðum miðlara á millabankamörkuðum. Í fyrra- dag varð metlækkun á einum degi. Miðað við kjörin sem í boði voru hjá Credit Suisse við lok viðskipta í gær höfðu Kaupþing og Glitnir lækkað um 75 punkta (0,75 prósentustig) frá deginum áður og Landsbankinn um 100 punkta. Álagið var því 875 punktar á skuldabréf Glitnis, 850 punktar á Kaupþing og 675 punktar á bréf Landsbankans. Skuldatryggingarálag er viðbót í prósentustigum ofan á millibankavexti og endurspeglar mat á hættu tengdri rekstri banka. - óká Skuldatryggingarálag: Kjör bankanna smábatna enn LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suðurnesjum lagði í fyrrakvöld hald á 117 kannabisplöntur við húsleit í húsi á Suðurnesjum. Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn og yfirheyrður í tengslum við málið. Plönturnar voru í skúr við hliðina á húsinu, þar sem maðurinn hafði komið sér upp öllum tækjum og tólum til ræktunarinnar. Plönturnar voru í blóma og tilbúnar til niðurskurð- ar og vinnslu. Þær hefðu gefið umtalsvert magn fíkniefna. Maðurinn sem um ræðir hefur gerst brotlegur við fíkniefnalög- gjöfina áður. Rannsókn málsins stendur enn, en hún mun vera vel á veg komin. - jss Lögreglan á Suðurnesjum: Tók 117 kanna- bisplöntur KANNABISPLÖNTUR Kannabisræktunin var í blóma. Ölvaðir utan vegar Þrír karlmenn gistu fangageymslur lögreglunnar á Selfossi eftir að lög- regla kom að þeim dauðadrukknum í bíl sem hafnað hafði utan vegar um hádegisbil í gær. Mennirnir gátu ekki sagt hvor þeirra hefði ekið bílnum. LÖGREGLUFRÉTTIR Helga RE sjósett Nýtt skip fyrir Ingimund hf. í Reykjavík var sjósett í Ching Fu-skipasmíða- stöðinni á Taívan í gær, að því er fram kemur í nýjustu Fiskifréttum. Skipið mun fá nafnið Helga RE og koma í stað skips með sama nafni sem útgerðin seldi til Skinneyjar-Þinganess árið 2005 og heitir nú Steinunn SF. SJÁVARÚTVEGUR SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.