Fréttablaðið - 04.04.2008, Side 22

Fréttablaðið - 04.04.2008, Side 22
22 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Mislæg gatnamót Kannanir sýna að flestir borgarbúar vilja mislæg gatnamót á mótum Miklu- brautar og Kringlumýrar- brautar. Borgaryfirvöld hafa kynnt útfærslu á mislægum gatnamótum á tveimur hæðum, en íbúa- samtök hafa lýst því yfir að þau vilji mislæg gatnamót neðanjarðar. Gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar var breytt árið 2005, þau voru breikkuð og beygjuljós fyrir allar stefnur tekin í notkun. Þeim sem reglu- lega eiga leið um Miklubrautina dylst þó ekki að þótt ástandið á þessum gatnamótum sé mun betra en áður hefur vandamálið í raun færst til, oft ekki lengra en á næstu gatnamót. Borgaryfirvöld hafa kynnt viðamiklar framkvæmdir á Miklubraut og Kringlumýrar- braut sem ætlað er að bregðast við stóraukinni umferð. Hugmyndin er ekki fastmótuð, en hún verður kynnt íbúum á opnum borgarafundi á næstunni. Áætlað er að gera þriggja hæða mislæg gatnamót á mótum Miklu- brautar og Kringlumýrarbrautar. Kringlumýrarbraut verður grafin niður um allt að tíu metra og verð- ur í lokuðum stokki, sem ná mun suður fyrir Listabraut. Miklabraut verður grafin niður á um fjögurra metra dýpi og verð- ur í lokuðum stokki milli Stakka- hlíðar og Lönguhlíðar, og hægt að lengja stokkinn að Rauðarárstíg. Efst verður hringtorg, 2,5 metr- um yfir núverandi hæð lands. Kostnaður við gatnamótin er sagður verða 12,2 milljarðar króna. Samkvæmt upplýsingum frá Íbúasamtökum 3. hverfis er þó talið að hann verði um fjórtán milljarðar. Áætlanir borgaryfirvalda gera ráð fyrir því að mat á umhverfisáhrifum verði unnið í ár og fram á næsta ár, en undir- búningur og hönnun fari fram á árunum 2009-2011. Framkvæmd- ir við fyrsta áfanga, breytingar á Kringlu mýrar braut og gatna- mót við Miklubraut, gætu hafist á næsta ári. Verklok á síðasta áfanga gætu verið árið 2014. Markmiðin með framkvæmd- unum eru að bæta umferðarflæði um svæðið og minnka tafir. Þær eiga að bæta umferðaröryggi og samgöngur gangandi og hjólandi vegfarenda. Þá eiga framkvæmd- irnar að minnka hávaða og meng- un frá umferðinni. Áform borgar verði endurskoðuð Íbúasamtök 3. hverfis hafa mót- mælt fyrirhuguðum framkvæmd- um. Forsvarsmaður samtakanna hefur meðal annars óskað eftir því að þær verði endurskoðaðar frá grunni með hagsmuni íbúa að leiðarljósi. Íbúasamtökin benda á að meðalhraði á Miklubraut við Stakkahlíð milli klukkan 7 og 19 á daginn er 59 kílómetrar á klukku- stund, rétt við hámarkshraða brautarinnar. Því sé spurning hversu hratt þurfi að komast í gegnum íbúðahverfið. Einnig er bent á að framkvæmd- ir á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar árið 2005 hafi fækkað alvarlegum slysum. Þá hafi dregið verulega úr kostn- aði vegna minni óhappa. Slysa- kostnaður á gatnamótunum á síð- asta ári hafi verið tæp þrettán prósent af því sem hann hafi verið árið 2002. Gangandi taka á sig krók Íbúasamtökin segja einnig frá- leitt að samgöngur gangandi og hjólandi batni. Þeir þurfi að fara upp á göngubrýr eða niður í undir- göng til að komast yfir flókin gatnamótin. Þá þurfi þeir sem leið eigi meðfram Kringlumýrarbraut að taka á sig nokkurn krók til austurs eða vesturs til að halda leið sinni áfram. Verkfræðingar á vegum borgar- yfirvalda halda því fram að íbúar muni eftir breytingarnar finna minna fyrir hljóðmengun og loft- mengun. Þessu eru íbúarnir ósam- mála, og segja forsendur útreikn- inga borgarinnar ekki standast. Til að mynda sé hvorki reiknað með bleytu og nagladekkjum, sem auki hávaða frá umferðinni umtalsvert, né aukinni umferð. Tekist á um útfærsluna EFTIR Gatnamótin eins og þau gætu litið út eftir framkvæmdir, séð frá norðaustri. Hringtorgið efst á þriggja hæða mislægum gatnamótum verður í um 2,5 metra hæð. FYRIR Gatnamótin eins og þau líta út í dag, séð frá göngustíg norðaustan við gatnamótin. EFTIR Gatnamótin eins og þau gætu litið út eftir framkvæmdir. Miklabrautin yrði um fjórum metrum undir núverandi yfirborði og Kringlumýrarbraut allt að tíu metrum undir yfirborðinu. FYRIR Gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar eins og þau eru í dag, séð frá Húsi verslunarinnar, suðaustan við gatnamótin. FRÉTTASKÝRING BRJÁNN JÓNASSON brjann@frettabladid.is BRETLAND, AP Metstraumur inn- flytjenda til Bretlands hefur fært bresku hagkerfi lítinn sem engan efnahagslegan ávinning. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skýrslu sem unnin var fyrir lávarðadeild breska þingsins. Þessi niðurstaða er þvert á það sem talsmenn bresku ríkis- stjórnarinnar hafa haldið fram. Viðbrögð Gordons Brown for- sætisráðherra við skýrslunni voru reyndar þau að ítreka þá fullyrðingu að breskt efnahagslíf hefði notið góðs af innstreymi fólks til landsins undanfarinn áratug. Efnahagsmálanefnd lávarða- deildarinnar kallaði eftir því að nýjar hömlur verði settar við þeim fjölda fólks sem hleypt er inn í landið árlega. Nettóaðflutn- ingur fólks til Bretlands, það er aðfluttir umfram brottflutta, hefur vaxið úr innan við 100.000 manns á fyrstu árum tíunda ára- tugarins í yfir 300.000 árið 2006, að því er greint er frá í skýrsl- unni. Skýrslan hefur hleypt af stað á ný umræðu um kosti og galla þess að halda landinu opnu fyrir straumi innflytjenda frá ríkjun- um í Mið- og Austur-Evrópu sem gengu í Evrópusambandið árið 2004, fyrst og fremst Póllandi. - aa DEILT UM ÁVINNING Rúmenar í biðröð eftir áritun til að flytjast til Bretlands. Mikill straumur fólks hefur legið frá nýju ESB-ríkjunum til Bretlands síðustu ár. NORDICPHOTOS/AFP Ný skýrsla lávarðadeildar breska þingsins um áhrif innflytjendastraums: Enginn hagrænn ávinningur af metstraumi innflytjenda

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.