Fréttablaðið - 04.04.2008, Síða 29

Fréttablaðið - 04.04.2008, Síða 29
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Egill Einarsson þúsundþjalasmiður er snjall þegar kemur að því að elda góðan mat. Þegar Egill bragðar á rétti sem honum líkar er hann óhræddur að spyrjast fyrir um innihald og aðferð. Uppáhaldið hans Egils er saltfiskréttur sem hann bragðaði fyrst hjá félaga sínum og hvetur hann alla til að prófa. „Saltfiskrétturinn er alveg frábær og hentar vel hvar og hvenær sem er. Það er auðvelt að matreiða hann og bara skemmtilegt. Hingað til hefur rétturinn hlotið mikið lof og veldur gestum mínum í matarboðum aldrei vonbrigðum,“ segir Egill. Það sem þarf eru 800 grömm af saltfiski, roð- og beinhreinsuðum, einn og hálfur bufflaukur, ein gulrót, tvær matskeiðar af steinselju og tómatsósu, fjórir desilítrar af rjóma, fjórir hvítlauksgeirar, tvær matskeiðar sojasósa og smjör sem brætt er á pönnu. „Aðferðin er ekki erfið og ættu allir að geta spreytt sig á þessu án vandræða. Byrjið á að skera saltfiskin í þunna strimla. Síðan er smjörið brætt á pönnu og laukurinn steiktur upp úr því. Þegar laukurinn er orðinn mjúkur skal bæta gulrótunum við en þær þarf að skera í litla bita og láta malla. Eftir það er fiskur- inn settur út í og látinn liggja í smá stund og svo er rjómanum bætt við og svo hvítlauknum og tómatsós- unni. Þegar þetta er farið að þykkna er steinseljunni og sojasósunni bætt út í,“ útskýrir Egill og heldur áfram: „Þetta er réttur sem allir ættu að geta látið renna ljúflega ofan í maga. Það sakar ekki að bjóða upp á gott ískalt hvítvín með réttinum og skála milli bita.“ mikael@frettabladid.is Saltfiskur í rjómasósu Saltfisk er afar auðvelt að matreiða og möguleikarnir eru nánast endalausir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Matreiðslunám- skeið á Ítalíu eru spennandi kostur fyrir þá sem hafa áhuga á ítalskri matargerð. Á vefsíðunum, www.theitaliancook- ingschool.com, www. taste-italia.com, www. cookitaly.com og www. italiangourmet.com má finna upplýsingar um námskeið í boði. Mango Lassi er indverskur drykkur sem er svolítið eins og mangóhristingur. Í drykkinn þarf aðeins 2,5 dl hreina jógúrt, 1 1/3 dl mjólk, 200 g mangó og 4 tsk. sykur sem sett er í bland- ara, hellt í glös og borið fram kalt. Náttúrulækninga- félagið stendur fyrir tveimur matreiðslunámskeið- um í Hússtjórnarskólanum á Sólvallagötu, laugardaginn 5. apríl og sunnudaginn 6. apríl frá kl. 11.00 til 18.00. Námskeiðin bera yfirskrift- ina Grænt og gómsætt, holl- ustan í fyrirrúmi og skráning er í síma 552-8191. Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207 Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is H rin gb ro t 6.290 kr. 4ra rétta tilboð og nýr A la Carte · Léttreiktur lax með granateplum og wasabi sósu · · Tom Yum súpa með grilluðum tígrisrækjum · · Kryddlegin dádýralund með seljurótarsósu · · Banana- og súkkulaðifrauð með vanillusósu · Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf! Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn með sérvöldu víni með hverjum rétti: 9.680 kr.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.