Fréttablaðið - 04.04.2008, Síða 34

Fréttablaðið - 04.04.2008, Síða 34
Útgáfufélag 365 prentmiðlar Ritstjóri Marta María Jónasdóttir martamaria@365.is Bergþóra Magnúsdóttir bergthora@365.is Forsíðumynd Stefán Karlsson Útlitshönnun Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Guðný Gunnlaugsdóttir gunnyg@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24 105 Reykjavík, sími 512 5000 FÖSTUDAGUR fréttir Veitingastaðurinn Óliver opnar aftur í dag eftir breytingar og er kominn aftur í hendurnar á Arnari Þór Gíslasyni og félaga hans sem opnuðu staðinn á sínum tíma. „Það er mjög gott að vera kominn aftur heim. Það er eiginlega eins og Óliver hafi farið í átta mánuða frí og sé kominn endurnærður til baka. Við ætlum að hefja Óliver upp á ákveðið plan og hann verður bara betri og sterkari en nokkru sinni áður,“ segir Arnar Þór, einn af eigendum staðarins. Nú er búið að hressa upp á útlitið á staðnum, mála í dekkri litum, setja ný húsgögn en ein mesta breytingin verður að eldhúsið verður opið til eitt á næturnar. Arnar segir að þetta sé liður í því að vera í takt við tímann. „Fólk er að fara í leikhús, á tónleika og fleiri viðburði sem eru oft og tíðum búnir rétt fyrir miðnætti. Þá hefur verið erfitt að fá að borða,“ segir Arnar og tekur það fram að á nýja matseðl- inum á Óliver séu hundrað réttir, frá Asíu, Indlandi og einnig tapasréttir. Þá er boðið upp á tuttugu tegundir af hamborgur- um og aragrúa af heilsuréttum. „Allir réttirnir eru á innan við 2.000 krónur og því má segja að þetta sé hálfgerður kreppu- matseðill,“ segir Arnar og bætir því við að það sé alltaf frítt inn þótt þeir verði með tónleika og aðra viðburði. Þegar hann er spurður út í tónlistina vill hann lítið segja. Fólk verði bara að koma og upplifa stemninguna. - mmj ÓLIVER OPNAR AFTUR EFTIR BREYTINGAR Eldhúsið opið fram yfir miðnætti Það er mikill öldugangur í kringum at- hafnakonuna Lilju Pálmadóttur en Páll Ragnarsson, tannlæknir á Sauðárkróki, segist eiga einn fjórða af jörð henn- ar Hofi á Höfðaströnd sem er um 400 hektarar. Jörðin hefur verið töluvert í umræðunni en Lilja fluttist búferlum í sveitina fyrir nokkrum árum til að fá frið frá miðborgarerlinum og til að sinna hestamennskunni en hún hefur verið í námi við háskólann á Hólum í Hjaltadal. Nú segist Páll vera með veð- bókarvottorð í höndunum sem sanni það að hann eigi einn fjórða af jörð- inni. Margir myndu halda að Páll væri að falast eftir peningum en svo er ekki þar sem hann neitar að selja Lilju þenn- an fjórðung og málið því komið í alger- an rembihnút. Þegar Föstudagur hafði samband við Pál vildi hann ekkert tjá sig um málið. Slegist um Hof á Höfðaströnd FO S TU D A G U R /S TE FÁ N S pútnikhjónin Jón Arnar Guðbrandsson og Ingibjörg Þorvaldsdóttir oft kennd við Habitat hafa verið iðin við að skipta um húsnæði síðustu árin. Þau komust í fréttirnar í fyrra þegar þau seldu glæsivillu sína að Eikarási í Garðabæ en hana keyptu þau þegar þau voru í miðju kafi að gera upp hús í Smáíbúðahverfinu. Þegar þau seldu Eikar- ásinn keyptu þau annað hús í hverfinu að Furu- ási sem nú er komið á sölu. Jón Arnar segir að þau hafi keypt húsið til að búa í því meðan þau væru að byggja draumahúsið að Tjarnar- brekku á Álftanesi. Nú er það hús, sem er tilbú- ið til innréttinga, komið á sölu. „Við erum allt- af að kaupa og selja,“ segir Jón Arnar þegar hann er spurður út í þetta. Hann segir að þau hafi í millitíðinni fundið annað hús sem þau langi meira í. „Við erum þó ekki búin að kaupa neitt. Núna er kaupendamarkaður þannig að maður kaupir ekkert fyrr en maður er búinn að selja. Við þurfum að fara að finna okkur framtíðarhús- næði og ákveða hvar við ætlum að búa því í maí mun enn einn strák- urinn koma í heiminn og þá er betra að vera búinn að taka stórar ákvarðanir,“ segir hann og hlær. Þegar hann er spurð- ur að því hvort það sé farið að kreppa að segir hann svo ekki vera. Þetta sé fyrst og fremst áhugamál hjá þeim að skipta um húsnæði. Þessa dagana vinna þau hörðum höndum að því að flytja Habitat-verslun- ina í Holtagarða. „Það er allt á suðupunkti og mikil stemn- ing og ekki mikið sofið þessa dag- ana,“ segir Jón Arnar en versl- unin á að opna formlega um miðjan apríl og því naumur tími til stefnu. martamaria@365.is Ingibjörg og Jón Arnar eru með tvær villur á sölu á tæplega 200 milljónir Leita að framtíðarhúsnæði Tjarnarbrekka 12 á Álftanesi er föl fyrir 70 milljónir en það er tæplega 300 fermetrar. Húsið er tilbúið til inn- réttinga en þegar þau byggðu það var það algerlega draumahúsið. Nú eru þau búin að finna annað hús sem þeim líst best á. Fu er „Í kvöld bregð ég mér í hlutverk tólf ára stelpu í leikritinu Engisprettur sem sýnt er í Þjóð- leikhúsinu en í sýningunni fer ég meðal annars í táskó og dansa það sem ég kalla Svanasúludansinn. Á laugardagskvöld ætla ég að sjá verk Hugleiks Dagssonar, Baðstofuna, og kíkja í innflutningspartí til vinar míns. Ég mun síðan alveg pott- þétt fara í Vesturbæjarlaugina en hún er í miklu uppáhaldi hjá mér sérstaklega þegar að sólin tekur að skína.“ HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA UM HELGINA? Þóra Karitas Árnadóttir leikkona ARNARNESIÐ Í HÆSTU HÆÐUM Eftir að sjónvarpsþáttaröðin Hæðin fór í loftið nú á dögunum hefur eftirspurnin eftir íbúðum á Arnarnes- hæðinni rokið upp úr öllu valdi. Áður en þáttaröðin hóf göngu sína var eftirspurnin eftir húsnæði á þessu svæði lítil en svo virðist sem vera sem „Hæðin“ hafi lyft hverfinu upp í hæstu hæðir. Það er nú mál manna að verð á fasteignum þar muni rjúka upp úr öllu valdi og hverfið verða hið nýja Skuggahverfi. SLAPPAR AF Á TAÍLANDI Ragnar Magnússon sem komst í fréttirnar þegar kviknaði í bílaflota hans í vogunum hefur ekki áhyggjur af lífinu en hann dvelur þessa dag- ana í Taílandi þar sem hann lætur fara vel um sig. Hann neyddist til að láta fyrri eigendur ólivers hafa stað- inn til baka þegar hann gat ekki borgað lokagreiðluna. Ekki fylgir sögunni hvað Ragnar ætlar að dvelja lengi í Taílandi en sögusagn- ir herma að hann sé þó ekki flutt- ur búferlum til Austurlanda. Jón Arnar og Ingibjörg Furuás 6 í Garðabæ er falt fyrir 100 milljónir en það er 310 fermetrar. FR É TT A B LA Ð IÐ /S TE FÁ N 2 • FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.