Fréttablaðið - 04.04.2008, Síða 46
● fréttablaðið ● ráðstefnur og hvataferðir 4. APRÍL 2008 FÖSTUDAGUR6
Á ráðstefnum og fundum er oft mikið upplýsinga-
flæði og því getur verið gott að hafa meðferðis
tæki, tól og hluti sem hjálpa til við að halda utan um
það mikilvægasta. Far- og lófatölvur af ýmsu tagi
hafa notið vinsælda en þær geta geymt mikið magn
upplýsinga, hvort sem um er að ræða hljóðupptökur,
glósur, minnispunkta eða annað. Skrifblokkin stendur
þó líka fyrir sínu og ýmsar lausnir eru til sem halda utan
um og skipuleggja dreifibréf og pappírsgögn af ýmsu
tagi.
Aðalatriðin á
einum stað
MacBook Air er
þynnsta fartölvan
á markaðnum. Hún
er 1,94 sentímetrar
þar sem hún er
þykkust. Hún vegur
aðeins 1,36 kíló og
hentar því einstak-
lega vel á ferða-
lögum. Tölvan er
sérstaklega hljóðlát
og kemst hæglega
fyrir í handfar-
angrinum. Fæst
í Apple-búð-
inni. Verð
frá 219.990
krónum.
iPod touch
heldur
meðal annars utan
um upptökur og
minnispunkta. Með
því að nota VNotes-
forrit og hljóðnema
má breyta iPod í
upptökutæki. Þá er
hægt að hlusta á
fyrirlestra og fundi
í iTunes í tölvunni
eða beint úr
iPodinum sjálfum.
Eins er hægt að
setja inn skriflega
minnispunkta og
aðrar upplýs-
ingar. Verð frá
36.900 kr. í
Apple-búðinni.
Tölvutaska með roði.
Taskan hentar vel fyrir 15,4 tommu
tölvur eða minni. Hún getur einnig nýst sem
veski eða skjalataska. Gott pláss er fyrir skjöl
og rafmagnssnúru en auk þess eru vasar úr roði
fyrir peningaveski, síma, nafnspjöld og penna.
Hönnuður: Fjóla María Ágústsdóttir. Fæst í
Apple-búðinni á 45.900 krónur.
Áherslu-
pennar með
merkiflipum
til að merkja
mikilvægar
síður. Ætti að
tryggja að
aðalatrið-
unum verði
haldið til
haga. Fæst
í Eymunds-
son á 360
krónur.
Upplýsingaflæði er oft mikið á fundum og ráðstefnum og því gott að hafa meðferðis
tæki og tól til að halda utan um það helsta.
Skipulagsmappa með skrifblokk og hólfum fyrir blöð, penna,
nafnspjöld og fleira. Tilvalin til að halda utan um minnis-
punkta, dreifibréf og aðrar upplýsingar.
Fyrir skipulags-
óða. Merkipíl-
ur til að setja
inn í bækur
og bæklinga
á mikilvæg-
um stöðum.
Fæst í
Eymunds-
son. Verð
300
krónur.