Fréttablaðið - 04.04.2008, Qupperneq 63
FÖSTUDAGUR 4. apríl 2008
Knattspyrnufélagið Víkingur verður hundrað ára í þessum mánuði.
Félagið var stofnað í kjallaranum að Túngötu 12 í Reykjavík hinn 21.
apríl árið 1908, á heimili Emils Thoroddsen. Á fyrsta fundinn mættu 32
drengir á aldrinum átta til tólf ára.
Aðalhvatamenn félagsins og fyrsta stjórnin samanstóð af fyrirliða
hópsins og formanni Axeli Andréssyni 12 ára, Emil Thoroddsen 9 ára
sem var ritari og Davíð Jóhannessyni 11 ára en hann var gjaldkeri. Fé-
lagið var stofnað fyrir ánægjuna að spila fótbolta og til að fjármagna
kaup á bolta. Fyrsti gjaldkerinn særði smáaura upp úr vösum félags-
manna, þar til hafðist að mestu fyrir fyrsta boltanum. Egill Jacobsen
kaupmaður er talinn hafa hjálpaði upp á restina.
Árið 1914 vann Víkingur KR 2-1 í fyrsta opinbera kappleik félagsins
á íþróttamóti Ungmennafélags Íslands. Verðlaunaskjalið er varðveitt
í fundarstofu félagsins í Víkinni. Knattspyrnulið Víkings tapaði ekki
kappleik frá stofnun 21. apríl 1908 til 16. júní 1918.
Víkingur tók fyrst þátt í Íslandsmóti karla í knattspyrnu árið 1918 og
vann Val 5-0. Félagið vann svo sitt fyrsta Íslandsmót árið 1920 og svo
aftur árin 1924,1981, 1982 og 1991.
Fyrstu fjörutíu árin í sögu Víkings var félagið upp á náð ann-
arra komið með alla félagsaðstöðu. Félagið átti hvorki völl né fundar-
aðstöðu. Það var ekki fyrr en árið 1946 sem Víkingur fékk fyrst sitt
eigið húsnæði þegar það tók á leigu fyrrverandi Camp Tripoli á Gríms-
staðarholti við Suðurgötu í Reykjavík undir félagsheimili. Þetta var
stór braggi og hafði áður þjónað sem kvikmyndahús sem Bretar reistu
á tímum seinni heimstyrjaldar.
Þór Símon Ragnarsson, formaður aðalstjórnar Knattspyrnufélags-
ins Víkings, segir að ýmislegt eigi að gera til þess að halda upp á þessi
stóru tímamót. Fjölskylduhátíð verður haldin í Víkinni 1. maí, en fé-
lagsheimili Víkings í Fossvogsdal ber það nafn. „Við munum gera
okkur sýnileg með ýmsum hætti í hverfinu frá 21. apríl, en það er af-
mælisdagurinn,“ segir Þór og bætir við að 3. maí verði sérstakur
hátíðar fundur vegna afmælisins og hátíðarskemmtun með kvöldverði
þann dag.
Félagið hefur vaxið og dafnað á þessum hundrað árum að sögn Þórs
og í dag eru íþróttaiðkendur um 600-800 talsins. Þó ber félagaskráin
um fjögur þúsund manns. Fótboltinn er fjölmennasta greinin hjá Vík-
ingi en félagið hefur í boði margvíslegar íþróttir til iðkunar.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér uppákomur í kringum þetta
stórafmæli félagsins er bent á að kíkja á heimasíðuna www.vikingur.is
klara@frettabladid.is
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ VÍKINGUR:
HUNDRAÐ ÁR FRÁ STOFNUN
Stofnendur voru
níu til tólf ára
STOFNAÐ TIL AÐ FJÁRMAGNA BOLTAKAUP Þór Símon Ragnarsson, formaður
Knattspyrnufélagsins Víkings, hefur í mörgu að snúast í tengslum við afmælishátíð
félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
AFMÆLI
AKI KAURISMÄKI
KVIKMYNDALEIK-
STJÓRI 51 ÁRA.
ROBERT DOWNEY JR.
LEIKARI 43 ÁRA.
MAGNÚS ODDS-
SON FYRRVERANDI
FERÐAMÁLASTJÓRI
61 ÁRS.
TÓMAS A. TÓMASSON
VEITINGAMAÐUR 59
ÁRA.