Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.04.2008, Qupperneq 68

Fréttablaðið - 04.04.2008, Qupperneq 68
 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR 30. mars - uppselt 3. april 4. april 10. april 11. april 17. april 18. april 23. april 24. april FÖSTUD. 4. APRÍL KL. 20 OG LAUG. 5. APRÍL KL. 16 OG KL. 20 SÖKNUÐUR - TÓNLEIKAR Í MINNINGU VILHJÁLMS VILHJÁLMSSONAR. UPPSELT! SUNNUD. 6. APRÍL KL. 20 TÍBRÁ: SÖNGTÓNLEIKAR MARGRÉT HRAFNSDÓTTIR OG HRÖNN ÞRÁINSDÓTTIR. FRUMRAUN Í TÍBRÁ! ÞRIÐJUD. 8. APRÍL KL. 20 SÖNGUR, FIÐLA, PÍANÓ BRAGI BERGÞÓRSSON, ELFA RÚN OG KRISTINN ÖRN KRISTINSSON. TÓNSNILLINGAR MORGUNDAGSINS! MIÐVIKUD. 9. APRÍL KL. 20 KLARINETT OG PÍANÓ VÍÐIR SMÁRI PETERSEN. BURTFARARPRÓF FRÁ TR! FIMMTUD. 10. APRÍL KL. 20 SÖNGTÓNLEIKAR HÖRN HRAFNSDÓTTIR OG ANTONÍA HEVESI. Bráðfyndið og ágengt gamanleikrit Engisprettur e. Biljana Srbljanovic sýn. fös. 4/4 örfá sæti laus Vígaguðinn e. Yasminu Reza sýn. sun. 6/4 Baðstofan e. Hugleik Dagsson Sýningum að ljúka sýn. fös. 4/4 Skoppa og Skrítla í söng-leik e. Hrefnu Hallgrímsdóttur Uppselt á fyrstu tíu sýningarnar! „Þau eru frábær, öll fjögur… Þetta er hörkugóð sýning...!“ Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is „Þetta var ekki hefðbundin kvöldvaka.“ Elísabet Brekkan, FBL, 13/2. *****PBB FBL, 29/3 Sá ljóti e. Marius von Mayenburg Frumsýn. lau. 5/4 uppselt Hárbeitt verk í hrárri sýningu Þjóðleikhúsið Á öllum sviðum lífsins Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga. Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir annað kvöld á Litla sviði Borgarleikhúss- ins nýtt danskt leikverk: Gítarleikarana eftir Line Knutzon í leikstjórn Hilmis Snæs Guðnasonar. Þegar er uppselt á fyrstu fimm sýningar verksins. Verkið, sem mætti kalla hlýlegan gamanleik með lifandi tónlist, fjallar um fjórar manneskjur sem koma saman til að votta nýlátnum trúbador virðingu sína. Trúbadorinn John Hansen er fallinn frá. Andlát hans er svip- legt og kemur brauðrist þar nokk- uð við sögu. Hansen hefur um árabil verið virtur tónlistarmaður í Danmörku, sent frá sér fjölda laga sem hafa öðlast miklar vin- sældir, eins og Hvar er kveikjar- inn minn, Ríka svínið skal láta lífið I og Ríka svínið skal láta lífið II, Átta kaldir öllarar, Ég er með krabba, Sokkinn í skuld og fleiri stórfín lög sem aðdáendur hans kunna afturábak og áfram. Hans er því sárt saknað. Að lokinni jarðarför Hansens hittast fjórir aðdáendur fyrir utan hús hins látna til að æfa saman minningar- dagskrá með lögum eftir hann. Æfingin fer á annan veg en til stóð en það kemur þó ekki í veg fyrir að trúbadorarnir fjórir láti slag standa. „Line Knutzon hefur einstakt lag á að gæða hversdagslegar samræður persóna sinna fínlegri kímni, en varpa um leið fram til- vistarlegum spurningum með einfaldleika sínum,“ segir í frétta- tilkynningu Leikfélagsins. Knutzon er talin eitt merkileg- asta og frumlegasta leikskáld Dana á okkar tímum. Skemmst er að minnast uppsetningar LR á verki hennar Fyrst er að fæðast fyrir nokkrum árum. Þá eru leikararnir í sviðsetn- ingu Hilmis ekki af verri endan- um: Jóhann Sigurðarson og Hanna María Karlsdóttir hafa verið í fremstu línu leikara síns aldurs- hóps um árabil, en hér reynir á kunna sönghæfileika þeirra. Hall- dór Gylfason þekkja allir en færri kannast við Aðalbjörg Þóru Árna- dóttur en hún hefur verið iðin á sviðum Borgarleikhússins í vetur. Hún tók þátt í uppsetningu á verki Anthony Neilson, Lík í óskilum, á Litla sviðinu fyrr í vetur auk þess sem hún túlkar Lóru í ævintýrinu vinsæla um spýtustrákinn Gosa í leikgerð Karls Ágústs Úlfssonar. Hljóð sér Guðmundur H. Viðars- son um, leikgervi gerir Elín Gísla- dóttir, Halldór Örn Óskarsson lýsir leikmynd Helgu I. Stefáns- dóttur sem sér einnig um bún- inga, en þýðandi er Sigurður Hró- arsson. Nýja tónlist og texta vann Björn Jörundur Friðbjörnsson að ósk leikstjórans. - pbb Gömlu lög John Hansen LEIKLIST Fríður hópur í góðum gervum. MYND/LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR/SIGFÚS Í gær var frumsýnt nýtt íslensk leikrit í Kúlunni, leikhússal Þjóð- leikhússins, fyrir börn á öllum aldri. Reyndar eru aðalpersónur verksins gamlir kunningjar barna og foreldra. Skoppa og Skrýtla hafa verið á ferðinni reglulega um nokkurra ára skeið, en þær snúa nú aftur í nýrri leik- sýningu. Leiksýning þeim helguð naut mikilla vinsælda á síðasta ári í Þjóðleikhúsinu og var tilnefnd til Grímuverðlauna sem besta barnasýning ársins. Þær stöllur Hrefna Hallgrímsdóttir og Linda Ásgeirsdóttir fóru víðar með sýn- inguna: Evrópa, Ameríka og Afr- íka nutu heimsókna þeirra. Time Out í New York valdi gestasýn- ingu þeirra eina athyglisverðustu barnasýningu ársins þar í borg. Í sýningunni, sem frumsýnd var í gær, fá þær Skoppa og Skrýtla liðsauka en sex ungir dansarar slást í hópinn sem fer víða um lönd og höf. Þær eru aldrei kyrrar. Verða margar per- sónur á vegi þeirra en sýningin er ætluð ungum áhorfendum og hugsuð sem kennsla í því að í leikhúsi getur allt gerst. Þórhallur Sigurðsson setur verkið á svið en höfundurinn er Hrefna Hallgrímsdóttir, búninga gerir Katrín Þorvaldsdóttir og tónlist er eftir Hall Ingólfsson. Sýningar verða áfram í Kúlunni en fara örugglega á kreik fyrst þær stöllur ráða ferðinni. - pbb Skellibjöllur fara á kreik LEIKLIST Skoppa og Skrýtla í góðum gír.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.