Fréttablaðið - 04.04.2008, Qupperneq 75
FÖSTUDAGUR 4. apríl 2008 43
49 DAGAR TIL STEFNU
Bretar trúa ekki á lagið sitt
Eins og vanalega eru fréttir af
„veðbönkunum“ fastur liður í
umfjölluninni um Eurovision.
Bretar veðja um allt milli himins
og jarðar, þar á meðal úrslit
söngvakeppninnar. Fulltrúi
þeirra í ár, sorptæknirinn Andy
Abraham sem syngur léttpopp-
aða sálarlagið „Even If“ og er
þekktastur fyrir að hafa lent í
öðru sæti í X-factor árið 2005, er
ekki talinn eiga mikla möguleika,
því í augnablikinu eru líkurnar á
að hann sigri aðeins 1 á móti 66.
Bretar telja mun líklegra að
breska lagið fari illa út úr þessu.
Líkurnar eru 1 á móti 6 að það fái
ekkert stig og 4 á móti 6 að það
reki lestina.
Samkvæmt nýjustu tölum veð-
banka sigrar rússneski hjarta-
knúsarinn Dima Bilan, en fulltrú-
ar Serba, Íra, Armena og
Úkraínu manna komu næstir.
Ísland er fyrir ofan meðallag með
vinningshlutfallið 1 á móti 33, en
neðst komast þjóðir í 1 á móti 150.
Við þurfum annars engar
áhyggjur að hafa af þessu því í
ljósi sögunnar vitum við að þess-
ir veðbankar hafa oftast rangt
fyrir sér.
BRETAR HALDA AÐ HANN EIGI ENGAN
SÉNS Andy Abraham fær lítinn stuðn-
ing landa sinna.
Led ekki í
tónleikaferð
SLASH
Slash,
gítarleikari
Velvet
Revol-
ver og
fyrrverandi
liðsmað-
ur Guns
N´Roses, er
góður vinur
Jimmys
Page.
Talið er að rapparinnn Jay-Z fái í
sinn hlut um ellefu milljarða
króna ef samningur hans við
tónleikahaldarann Live Nation
verður að veruleika. Samningur-
inn felur í sér að fyrirtækið
annast allt sem viðkemur tónlist
rapparans næstu tíu árin. Talið er
að Jay-Z fái tæpa tvo milljarða í
fyrirframgreiðslu, auk um 750
milljóna fyrir fram fyrir hverja
af að minnsta kosti næstu þremur
plötum og um tveggja milljarða
vegna væntanlegra tónleikaferða.
Live Nation mun leggja fjóra
milljarða í fyrirtæki rapparans,
Roc Nation, sem mun hafa undir
sínum hatti plötuútgáfu og fleiri
verkefni. „Ég er orðinn Rolling
Stones hip-hopsins,“ sagði Jay-Z í
viðtali við The Times. Hann ætlar
sér að yfirgefa plötufyrirtækið
Def Jam vegna samningsins en
þarf þó að ljúka við eina plötu til
að uppfylla samning sinn þar.
Hann var forstjóri fyrirtækisins í
þrjú ár þar til í desember
síðastliðnum.
Jay-Z með
risasamning
JAY-Z Rapparinn Jay-Z ætlar að skrifa
undir milljarða samning við Live Nation.
Comme des Garçons verður
næsta stóra nafn úr tískuheim-
inum til þess að vinna með risan-
um H&M. Fyrirtækið fylgir
þannig í fótspor Karls Lager-
feld, Stellu McCartney, Viktors
& Rolfs og Robertos Cavalli, sem
öll hafa hannað línu fyrir tísku-
húsið, eins og poppstjörnurnar
Madonna og Kylie Minogue hafa
einnig gert.
Comme des Garçons þykir þó
vera nokkuð framúrstefnulegra
merki en flest ofannefndra og
því gæti orðið forvitnilegt að sjá
hvernig því tekst að framleiða
flíkur sem henta viðskiptavin-
um H&M. Rei Kawakubo, eig-
andi og stofnandi Comme des
Garçons, segir samstarfið fela í
sér heilmikla áskorun. „Ég hef
alltaf haft áhuga á jafnvæginu á
milli sköpunarinnar og viðskipt-
anna. Þetta er vandamál, þó að
sköpunin hafi alltaf verið í fyrsta
sæti hjá mér. Það er mikil áskor-
un að vinna með H&M, þar sem
það býður upp á möguleika til að
takast á við þetta vandamál og
reyna að leysa það,“ segir hún.
Lína Comme des Garcons
fyrir H&M kemur fyrst í versl-
anir í Tókýó, en áætlað er að það
verði í nóvember næstkomandi.
Comme des Gar-
çons með H&M
Slash, gítarleikari Velvet
Revolver, segir ólíklegt að
hljómsveitin Led Zeppelin ætli
í tónleikaferð um heiminn.
„Það lítur ekki út fyrir að
tónleikaferðin verði að
veruleika á næstunni,“ sagði
Slash, sem er góður vinur
Jimmys Page, gítarleikara
Zeppelin.
Bætti hann því við að
fregnir um að Velvet Revolver
ætlaði að hita upp fyrir
Zeppelin ættu ekki við rök að
styðjast. Slash sagðist einnig
hafa verið frekar pirraður
eftir að hann missti af
endurkomutónleikum Zeppelin
í London í desember í fyrra
vegna tónleika sinna í Ástralíu.
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
,,Ég skemmti mér konunglega á myndinni”
Ásgeir Jónsson - DV
Stefán Birgir Stefánsson - SBS.is
sem óhætt er að skella gæðastimpilinn á.”
,,Góð framleiðsla með topp
leikurum í öllum hlutverkum
Sæbjörn Valdimarsson - Morgunblaðið
,,Pétur Jóhann í
toppformi
í aðalhlutverkinu í bland við bráðskemmtilega
toppleikara og furðufugla...”
,,Myndin er sannarlega
þess virði að fólk
flykkist á hana.”
Páll Baldvin Baldvinsson - Fréttablaðið
Sigurjón M. Egilsson - Mannlíf
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS