Fréttablaðið - 04.04.2008, Side 80
48 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
sport@fretta-
Sturla Ásgeirsson er á sínu fjórða tímabili með Århus GF í dönsku
deildinni í handbolta en er að hugsa sér til hreyfings næsta
sumar.
„Ég kom til Århus GF eftir tímabilið 2003-2004 hjá ÍR og
gerði þá tveggja ára samning sem ég framlengdi svo um tvö
ár og sá samningur er að renna út næsta sumar. Mér hefur
liðið mjög vel hjá félaginu til þessa og bætt mig mikið sem
handboltamaður en mér finnst bara vera kominn tími til
þess að breyta aðeins um umhverfi og reyna að ná
aðeins lengra í handboltanum,“ sagði Sturla,
sem myndi helst vilja vera áfram í
Danmörku en útilokar ekki neitt í
þeim efnum.
„Það eru nokkrar fyrirspurnir um
mig búnar að berast og ég er með
umboðsmann sem er að vinna í
þeim málum. Ég væri alveg til í að vera
áfram í Danmörku eða á Norður löndunum en Þýskaland
heillar líka og þar er besta umgjörðin, bestu leikmenn-
irnir og mesta stemningin og áhorfendurnir,“ sagði Sturla,
sem stefnir á að klára tímabilið í Danmörku með stæl.
„Það eru tveir leikir eftir í deildinni og svo hefst úrslita-
keppnin. Það væri óneitanlega gaman að kveðja félagið
með titli og ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur
til þess að svo verði,“ sagði Sturla, sem var á dögunum
valinn í fyrsta æfingahóp Guðmundar Guðmundssonar,
nýráðins landsliðsþjálfara.
„Það er náttúrlega mikill heiður og frábært að fá
tækifæri til þess að sanna sig á þeim vettvangi og
vonandi kemst maður eitthvað lengra þar enda
gríðarlega spennandi verkefni fram undan á þeim
bænum,“ sagði Sturla, sem viðurkennir að hugur-
inn leiti stundum heim til Íslands.
„Ég hugsa að maður endi ferilinn með ÍR þegar
maður hættir þessu brölti erlendis. Það er alla
vega stefnan hjá nokkrum gömlum ÍR-ingum að
taka síðustu árin í boltanum í Breiðholtinu og það
væri náttúrlega draumurinn,“ sagði Sturla að lokum.
HANDKNATTLEIKSKAPPINN STURLA ÁSGEIRSSON: LÍKLEGA Á FÖRUM FRÁ ÅRHUS GF EFTIR FJÖGUR FARSÆL ÁR
Vill reyna að ná enn lengra í handboltanum
FÓTBOLTI Hinn nítján ára gamli
Arnór Smárason hefur verið fasta-
maður í leikmannahópi Heeren-
veen undanfarið og er við það að
framlengja samning sinn við hol-
lenska félagið til ársins 2011.
Skagamaðurinn efnilegi hefur
hægt og rólega unnið sig upp hjá
Heerenveen síðan hann kom til
Hollands árið 2004 en hann skrif-
aði undir atvinnumannasamning
við félagið í júlí í fyrra. Arnór
hefur síðan þá verið lykilmaður
með varaliði Heerenveen þar sem
hann gegnir fyrirliðastöðu og
hefur skorað grimmt og er mark-
hæsti leikmaður liðsins á þessari
leiktíð. Upp á síðkastið hefur hann
svo verið í leikmannahópi aðal-
liðsins og komið einu sinni við
sögu í leik með aðalliðinu í vetur.
„Ég er mjög sáttur með gang
mála hjá Heerenveen og lít á það
sem stóran plús að fá tækifæri
með aðalliði á þessu tímabili. Ég
hef tekið miklum framförum síðan
ég kom til félagsins á sínum tíma
og finn það að ég er enn að bæta
minn leik,“ sagði Arnór, sem von-
ast til þess að fá frekari tækifæri
með aðalliðinu á lokasprettinum í
deildinni.
Tilbúinn ef kallið kemur
„Heerenveen er sem stendur í
fimmta sæti hollensku deildarinn-
ar en liðin sem lenda í 2-5. sæti
fari í umspil um eitt sæti í undan-
keppni Meistaradeildarinnar
næsta haust og það er því að miklu
að keppa þegar þrjár umferðir eru
eftir í deildinni. Ég vonast náttúr-
lega alltaf til þess að fá að spila en
verð að vera þolinmóður og tilbú-
inn ef kallið kemur. Heerenveen
er einmitt þekkt fyrir að gefa
ungum leikmönnum snemma tæki-
færi með aðalliðinu og það eru
margir ungir og efnilegir leik-
menn hjá félaginu núna sem hafa
vakið verðskuldaða athygli fyrir
spilamennsku sína. Michael
Bradley og Miralem Sulejmani
eru til að mynda báðir í kringum
tvítugt og eru frábærir leikmenn
en Sulejmani var orðaður við Chel-
sea á dögunum. Það man í raun
enginn lengur eftir markahrókn-
um Afonso Alves sem var marka-
hæstur á síðustu leiktíð og yfirgaf
félagið í janúar og fór til Middles-
brough í ensku úrvalsdeildinni,“
sagði Arnór, sem er augljóslega
spenntur fyrir framtíð sinni hjá
félaginu.
„Það er frábært að finna það að
forráðamenn félagsins virðast
hafa trú á mér og ætla mér fram-
tíð hjá félaginu. Það stóð til að þeir
myndu nýta sér klausu í samningi
mínum um framlengingu um eitt
ár en nú vilja þeir brjóta það upp
og hafa boðið mér nýjan þriggja
ára samning til ársins 2011. Ég er
ekki búinn að skrifa undir neitt og
er að fara yfir þetta þessa dagana
en samkomulag er búið að nást um
öll stærstu atriðin,“ sagði Arnór
ánægður. omar@frettabladid.is
Er stöðugt að bæta mig
Arnór Smárason mun að öllu óbreyttu skrifa undir nýjan samning við Heeren-
veen sem gildir til ársins 2011 og er spenntur fyrir framtíð sinni hjá félaginu.
EFNILEGUR Arnór Smárason hefur vakið verðskuldaða athygli hjá Heerenveen og er
við það að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við félagið. Á myndinni er hann í
leik með U-21 árs landsliði Íslands á móti Belgíu. NORDIC PHOTOS/AFP
> Kristján valinn besti þjálfarinn
Kristján Andrésson hefur verið valinn þjálfari ársins í
sænsku úrvalsdeildinni í handbolta en hann náði mjög
góðum árangri með Guif í vetur þrátt fyrir að liðið hafi
misst marga lykilmenn fyrir tímabillið. Kristján var yngsti
þjálfari deildarinnar og undir hans stjórn komst Guif inn
í úrslitakeppnina eftir að hafa verið spáð falli. Þriggja
manna dómnefnd af handboltaspekingum völdu Kristján
besta þjálfarann og hann fær verð-
launin afhent á sérstakri upp-
skeruhátið sænsku deildarinnar
1. maí næstkomandi.
KÖRFUBOLTI Keflavíkurkonur geta
tryggt sér Íslandsmeistaratitil-
inn í þrettánda sinn þegar liðið
fær KR í heimsókn í Toyota-höll-
ina í Keflavík klukkan 19.15 í kvöld.
Keflavík hefur unnið alla 17 heimaleiki
vetrarins og síðustu þrettán leiki sína í
deild og úrslitakeppni og geta náð sögu-
legum áfanga með sigri í kvöld. Þá yrðu
þær fyrsta kvennaliðið til þess að klára
úrslitakeppni 6-0 síðan keppnisfyrirkomu-
laginu var breytt.
Kesha Watson hjá Keflavík er með besta
framlagið úr fyrstu tveimur leikjunum en hún
hefur skorað 21,5 stig, tekið 9,0 fráköst og
gefið 9,0 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Keflvíkingurinn Pálína Gunnlaugsdóttir
getur orðið Íslandsmeistari þriðja árið í röð en
hún vann titilinn með Haukum síðustu tvö ár.
Pálína átti sannkallaðan stórleik í síðasta leik
þar sem hún tók af skarið í sókninni og spilaði
stærsta hlutverkið í að halda Hildi Sigurðar-
dóttur í tuttugu prósenta skotnýtingu og þvinga
hana til þess að tapa átta boltum.
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir er fyrirliði Kefla-
víkur og hún hefur farið fyrir bekk Keflavíkurliðsins
sem á mikinn þátt í að liðið hefur unnið tvo fyrstu
leikina. Keflavík hefur fengið 47 stig af bekknum á
móti aðeins 4 stigum hjá KR og Ingibjörg Elva
hefur skorað 29 af þessum stigum. Hún er með 14,5
stig að meðaltali á aðeins 25,5 mínútum auk þess
sem hún hefur nýtt 61,1 prósent skota sinna og
tekið 5,0 fráköst í leik.
KR-ingurinn Candace Futrell hefur verið
atkvæðamikil og sem dæmi tekið 60 skot á þeim
79 mínútum sem hún hefur spilað. Hún hefur
aftur á móti aðeins hitt úr 35,6 prósentum
tveggja stiga skota og farið illa með mörg góð
færi inni í teig. Félagi hennar, Sigrún Ámunda-
dóttir, hefur haldið uppteknum hætti frá því í
tveimur síðustu leikjunum á móti Grindavík,
hún er með 13,0 stig og 12,5 fráköst að meðaltali í
fyrstu tveimur leikjunum.
- óój
Keflavíkurkonur geta orðið Íslandsmeistarar í þrettánda sinn vinni þær KR í kvöld:
Fullkomna þær úrslitakeppnina?
29 STIG AF BEKKNUM Ingibjörg Elva Vil-
bergsdóttir hefur leikið vel í fyrstu tveimur
leikjunum á móti KR. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
FÓTBOLTI Meiðsli Nemanja
Vidic sem hann hlaut í leik
gegn Roma í átta liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu á
þriðjudag reyndust ekki jafn
alveg og haldið var í fyrstu.
„Eftir skoðun á hnénu komu
engin alvarleg meiðsli í ljós og
hann ætti að vera leikfær eftir
tvær til þrjár vikur,“ sagði
talsmaður United. - óþ
Talsmaður Man. Utd:
Meiðsli Vidic
ekki alvarleg
SÁRÞJÁÐUR Vidic steig illa til jarðar
eftir einvígi. NORDIC PHOTOS/GETTY
Föstudagur 4. apríl: 19:00 - 22:00 Frjálsar íþróttir
Salur B (Frjálsíþróttahöll)
Laugardagur 5. apríl: 09:30 FARARSTJÓRAFUNDUR
Salur A (Laugardalshöll)
Laugardagur 5. apríl: 10:00 – 16:00 Borðtennis opnir og lokaðir fl okkar
ÍFR hús
Laugardagur 5. apríl: 10:00 - 20:00 Undanúrslit í boccia, úrslit rennu- og
BC fl okkur
Salur A (Laugardalshöll)
Laugardagur 5. apríl: 13:00 - 13:30 Mótssetning
Salur A (Laugardalshöll)
Laugardagur 5. apríl: 14:00 Lyftingar
Salur 1 (Laugardalshöll)
Laugardagur 5. apríl: 16:00 - 18:00 Bogfi mi fyrri hluti
ÍFR hús
Sunnudagur 6. apríl: 11:00 - 15:00 Úrslit í boccia
Salur A (Laugardalshöll)
Sunnudagur 6. apríl: 13:00 - 16:00 Bogfi mi seinni hluti
ÍFR hús
Íslandsmót ÍF
4. – 6. apríl 2008
- Boccia - Bogfi mi - Borðtennis - Frjálsar íþróttir - Lyftingar -
OPIÐ HÚS
HJÁ SVFR
Föstudaginn 4. apríl
FRÓÐLEIKUR OG SKEMMTUN- HÚSIÐ OPNAR KL. 20.00
Dagskrá:
::: Veiðistaðalýsing frá Leirvogsá – Viðar Jónsson
::: Jökla, Fögruhlíðará og Kaldá – Þröstur Elliðason
::: Risarnir í Rússlandi – Yokonga – Valli veiðimaður
::: Árshátið SVFR 2008 – kynning á veiðiferð ársins
::: Myndagetraun
::: Happahylurinn – stútfullur í boði Ellingsen