Fréttablaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 82
50 4. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
FÓTBOLTI Enska knattspyrnusam-
bandið hefur bætt við tveim
leikjum og 15 þúsund punda sekt
ofan á eins leiks bann sem Javier
Mascherano fékk er hann var
rekinn af velli í stórleiknum gegn
Manchester United um páskana.
Hann hefur þegar tekið út einn
leik af banninu, gegn Everton, og
verður ekki með gegn Arsenal um
næstu helgi, sem og gegn
Blackburn viku síðar.
Mascherano fór mikinn eftir að
hann fékk rauða spjaldið og
neitaði að yfirgefa völlinn. Hann
linnti ekki látum fyrr en stjóri
Liverpool, Rafa Benitez, talaði
um fyrir honum.
Það var ekki bara enska
knattspyrnusambandið sem
refsaði Mascherano fyrir hegðun
sína því Liverpool sektaði hann
um tveggja vikna laun. - hbg
Javier Mascherano:
Fékk þriggja
leikja bann
JAVIER MASCHERANO Verður í fríi næstu
vikur. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Iceland Express-deild karla:
KR-ÍR 74-93
Stig KR: Avi Fogel 25, Joshua Helm 21 (11 frák.),
Brynjar Þór Björnsson 9, JJ Sola 8, Helgi Már
Magnússon 4, Skarphéðinn Ingason 3, Darri
Hilmarsson 3, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 1.
Stig ÍR: Hreggviður Magnússon 29, Tahirou Sani
19 (11 frák.), Nate Brown 13 (8 frák., 6 stoðs.),
Sveinbjörn Claessen 13, Eiríkur Önundarson 11,
Ólafur Jón Sigurðsson 8.
Grindavík-Skallagrímur 93-78
Stig Grindavíkur: Þorleifur Ólafsson 32, Páll
Axel Vilbergsson 23, Helgi Jónas Guðfinsson 12,
Jamaal Williams 10, Adama Darboe 9 (9 stoðs.),
Páll Kristinsson 4, Igor Beljanski 3.
Stig Skallagríms: Darrel Flake 25 (14 frák.),
Milojica Zekovic 23, Allan Fall 11, Florian Miftari
8, Axel Kárason 5, Pálmi Sævarsson 3, Pétur
Sigurðsson 2, Sigurður Þórarinsson 1.
N1-deild kvenna:
Fram-Fylkir 31-20
UEFA-bikarinn:
B. Leverkusen-Zenit St. Petersburg 1-4
Kiessling - Arshavin, Pogrebnyak, Anyukov,
Denisov.
Bayern Munchen-Getafe 1-1
Toni - Contra.
Fiorentina-PSV Eindhoven 1-1
Mutu - Koevermans.
Rangers-Sporting Lissabon 0-0
ÚRSLIT
HANDBOLTI Framstúlkur stigu enn
eitt skrefið í átt að Íslandsmeist-
aratitlinum í gær með öruggum
sigri á Fylki, 31-20, í Safamýri.
Fram er eftir sigurinn komið
með ansi marga putta á bikarinn.
Liðið hefur fimm stiga forystu á
toppnum og á aðeins eftir að spila
þrjá leiki í deildinni.
Fram er með 37 stig eftir 21
leik en Valur kemur næst með 32
stig eftir 20 leiki. Stjarnan er
síðan með 31 stig eftir 19 leiki.
- hbg
N1-deild kvenna:
Fimm stiga for-
ysta hjá Fram
NÁLGAST TITILINN Karen Knútsdóttir og
félagar í Fram stigu enn eitt skrefið að
titlinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Það var gríðarleg
spenna í Röstinni í kvöld er
Grindavík mætti Skallagrími í
oddaviðureign úrslitakeppni Ice-
land Express-deildar karla.
Grindavík var mun sterkari aðil-
inn í leiknum og sigraði 93-78 og
mætir Snæfelli í undanúrslitum.
Grindavík byrjaði leikinn mun
betur en Skallagrímur og virkuðu
gestirnir mjög taugaveiklaðir.
Mörg skot fóru í súginn hjá Skalla-
grími á meðan allt virtist ganga
upp hjá Grindavík. Staðan eftir
fyrsta leikhluta var 29-15. Annar
leikhluti var allt annar af hálfu
Skallagríms. Leikmenn liðsins öðl-
uðust mun meira sjálfstraust og
gerðu þá hluti sem var lagt upp
með frá upphafi. Grindvíkingar
voru þó ekkert á því að hleypa
Sköllunum of nálægt sér.
Staðan í hálfleik var 45-31 fyrir
Grindavík og annar leikhluti
hnífjafn enda fór hann 16-16.
Grindvíkingar byrjuðu seinni
hálfleik með flugeldasýningu og
voru komnir með 53-33 forskot
eftir aðeins rúmlega tvær mínút-
ur og tóku Skallarnir umsvifalaust
leikhlé. Leikhléð gerði ekkert
fyrir Skallagrímsmenn því
munurinn hélst áfram mikill.
Það benti nákvæmlega ekkert
til þess að sigur Grindavíkur yrði
í hættu eftir þrjá leikhluta. En
Skallagrímsmenn sýndu mikinn
karakter í þeim síðasta og náðu að
minnka muninn í 6 stig, 73-67,
þegar fimm mínútur voru til leiks-
loka og mikil spenna hlaupin í leik-
inn. Grindavík bætti aðeins í og
þökk sé rándýrum þristum frá
Þorleifi Ólafssyni og Páli Axel var
munurinn skyndilega kominn í 15
stig á ný. Öruggur sigur heima-
manna var því í höfn, 93-78, og
mætir Grindavík því Snæfelli í
undanúrslitum.
„,Þetta var frábær sigur hjá
okkur. Við settum leikinn upp með
það að stjórna hraðanum. Liðs-
heildin kom sterk upp og það er
einmitt það sem við þurfum,“
sagði Grindvíkingurinn Þorleifur
Ólafsson, sem átti stórleik. „Það
verður gaman að mæta Snæfelli,
sem fer reyndar ekki í úrslit því
við verðum þar.“
Kenneth Webb, þjálfari Skalla-
gríms, var svekktur eftir leik.
„Þeir áttu alltaf leikmenn í þessari
seríu sem skoruðu 30 stig og meira
og það taldi ansi mikið fyrir þá.
Þeir voru betri en við og óska ég
þeim til hamingju með sigurinn,“
sagði Webb. - höþ
Þorleifur Ólafsson var brattur eftir sigur Grindavíkur á Skallagrími, 93-78, í oddaleik í Röstinni:
Snæfell mun ekki komast í úrslitarimmuna
STÓRLEIKUR Þorleifur
Ólafsson fór á kostum í
liði Grindavíkur í Röst-
inni í gær.
MYND/VÍKURFRÉTTIR
KÖRFUBOLTI ÍR-ingar urðu fyrsta
liðið í átta ár til þess að slá ríkj-
andi meistara út úr átta liða úrslit-
um og gerðu það með stæl. ÍR-
ingar unnu 19 stiga sigur á KR,
74-93, á þeirra eigin heimavelli,
voru yfir allan tímann og leiddu
mest með 26 stigum. ÍR skoraði
átta fyrstu stig leiksins og það var
ljóst frá fyrstu mínútu í hvað
stefndi enda raðaði liðið niður
þristum og endaði með því að hitta
úr 12 af 21 skoti sínu fyrir utan.
„Þetta var frábært kvöld fyrir
ÍR. Við lögðum allt í þennan leik
og uppskárum eftir því. Ég hef
bara eitt að segja við KR: Ég sagði
ykkur þetta,“ sagði Nate Brown,
sem hafði upplifað það tvö ár í röð
að detta út fyrir KR-ingum í DHL-
Höllinni. „Við erum miklu betri en
árangurinn okkur í deildinni sýnir.
KR er með gott lið en betra liðið
vann í dag. Þetta var einn besti
leikur ÍR hvað varðar andlegu
hliðina en ég tel að ÍR eigi eftir að
sýna hvað í liðinu býr og við eigum
enn eftir að spila okkar besta
körfubolta,“ sagði Nate Brown,
sem lék vel eins og fyrr í seríunni
og endaði með 13 stig, 8 fráköst og
6 stoðsendingar.
Besti maður vallarins var þó
ÍR-ingurinn Hreggviður Magnús-
son, sem talaði um það eftir fyrsta
leikinn að ÍR væri með töluvert
betra lið.
„Ég stóð við mín stóru orð. Við
vitum alveg hvað býr í þessu liði,
við erum með gríðarlega öflugt
varnarlið og erum síðan með
fimm leikmenn sem á hverjum
degi geta skorað 20 stig. Við töp-
uðum leiknum á mánudaginn og
þeir unnu hann ekki. Við komum
hingað brjálaðir eftir að hafa
tapað þeim leik og brjálaðir eftir
að hafa tapað fyrir KR-ingunum í
fyrra og sýndum þeim í heimana
tvo,“ sagði ÍR-ingurinn Hreggvið-
ur Magnússon en Keflvíkingar,
næstu mótherjar ÍR, hafa vænt-
anlega horft á leikinn. „Það ætti
hvaða lið sem er að vera hrætt við
okkur í dag. Við erum að spila
okkar besta körfubolta og erum
með alveg ofboðslega gott lið,“
sagði Hreggviður. „Ég óska KR-
ingum gleðilegs sumars,“ sagði
Hreggviður að lokum en hann
hann var með 29 stig og hitti úr 11
af 16 skotum sínum í gær.
Auk Nate og Hreggviðs átti
Sveinbjörn Claessen frábæran
leik líkt og þeir Ólafur Jónas Sig-
urðsson, Eiríkur Önundarson og
Tahirou Sani. Allt liðið var að spila
frábærlega og Íslandsmeistarar
KR-inga áttu engin svör. Avi Fogel
og Joshuga Helm voru að reyna
en íslensku leikmenn liðsins
brugðust alveg, skiluðu aðeins 20
stigum og hittu aðeins úr 7 af 33
skotum sínum.
„Vörnin okkar var ekki eins
skelfileg eins og hún lítur út fyrir
að vera því þeir hittu með mann í
andlitinu hvað eftir annað en
sóknar lega vorum við algjörlega
geldir og erum búnir að vera það
alla seríuna. Ég hef ekki náð nógu
miklu út úr þessum hópi því það
eru þrír til fjórir lykilmenn sem
ég hef engu náð út úr í þessarri
seríu. Mér hefur algjörlega mis-
tekist að „mótivera“ liðið fyrir
þennan leik og er ósáttur við bæði
sjálfan mig og liðið. Þetta skrifast
algjörlega á mig,“ sagði Benedikt
Guðmundsson, þjálfari KR, og um
mótherja sína sagði hann: „ÍR-
ingar geta farið eins langt og þeir
vilja og ef þeir spila eins og þeir
gerðu í dag geta þeir þess vegna
farið alla leið.“
Það er ekki hægt annað en að
taka undir þessi orð en það verða
Keflvíkingar sem fá það erfiða
verkefni að hægja á ÍR-liðinu og
það er ljóst að Breiðholtsliðið er
enginn óskamótherji í úrslita-
keppninni.
ooj@frettabladid.is
Hreggviður stóð við stóru orðin
ÍR-ingar rassskelltu Íslandsmeistara KR og sendu þá í sumarfrí með sannfærandi 19 stiga sigri í DHL-höll-
inni í gærkvöldi. Hreggviður Magnússon átti stórleik í liði ÍR og stóð svo sannarlega við stóru orðin.
SUNGIÐ OG TRALLAÐ Stuðningsmenn ÍR létu vel í sér heyra er þeir öttu kappi við
„Miðjuna“ í stúkunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SKREFI Á EFTIR Brynjar Björnsson og
félagar voru alltaf skrefi á eftir ÍR-ingum
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
STÓR OG STERKUR Hreggviður Magnússon hefur talað digurbarkalega í kringum leiki KR og ÍR. Hann stóð við stóru orðin í gær er
hann fór á kostum og sá svo ástæðu til þess að fara úr að ofan eftir leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL