Fréttablaðið - 29.08.2008, Síða 55

Fréttablaðið - 29.08.2008, Síða 55
FÖSTUDAGUR 29. ágúst 2008 27 UMRÆÐAN Kristín Ómarsdóttir skrifar um heilbrigð- ismál Það er gaman að fæðast inní skemmtilegan heim. Margt hægt að gera, láta sig dreyma, vak- andi og sofandi, leyfa sér að njóta augnablikanna. Taka á móti landsliðinu í handbolta er það kemur heim með medalíu úr silfri. Drengirnir aka niður Laugaveginn á vögnum í boði Ríkisstjórnarinnar, Alþingis og Ráðhússins. Ungu stúlkurnar, með barmana sætu, rjóðar og sælar, veifa af svölum íbúðanna sem ég ímynda mér að hafi rauð- máluð handrit og fögur blóm í blómapottum: Klæðast þær ekki hvítum blússum með rauða slaufu í hálsmálinu og dá íþróttamanns- leg læri? Og enginn drengjanna hefur staurfót, eða afskorið nef, hálfa rasskinn sem betur fer því þeir koma um langan veg af iðgrænum friðarvöllum Ólymp- íuleikanna. Silfurkonurnar, eigin- konur íþróttamannanna, hafa ekkert að óttast afþví í mann- þrönginni sem hyllir mennina sjást líka börn, einstæðra mæðra, og börn draga ætíð úr lífshættu girndarinnar; börn, hundar, hamstrar, páfagaukar, en ekki þó gamalmennin, því hver sem hefur unnið á gamalmennahæli kannast við laust blundandi erótíkina sem þar ríkir. Erótík sem hrekkur upp við minnsta hnjask. Ófaglært og faglært starfsfólkið bregður sér inná lín, að gera það, í sloppum. Annars er veika fólkið á Íslandi orðið leitt á að halda uppi heil- brigðiskerfinu, þessum starfs- vettvangi mörg hundruð manna og kvenna: Hví þá ekki? Leitt á að liggja í bælinu og horfa á eftir rósrauðum vöngum, lækna og sjúkraliða, bregða sér frá, inná lín, að gera það, í hvítum slopp- um. Þvílík erótík sem við þeim blasir. Leitt á að þiggja skömm fyrir að skapa hundruðum manna spennandi störf sem má njóta, í botn, á leyndardómsfullum augnablikum. Eins og þegar geislar síðdegissólarinnar stinga sér niður gegnum sjúkrahús- gluggana, baka loftið sem verður þykkt og dulmagnað og lengja skuggana: Langir skuggar. Enn lengri, jafnvel langdregnir, dag- draumar um sælu og frið, skemmtun, líf... o.s.fr.v. - eins og ljóðskáld Íslands segja svo fal- lega. Það er orðið leitt á að vera veikt og þiggja ölmusu - refsingu – skömm fyrir: Skamm-skamm, veiki maður. Skamm-skamm, veika kona. Vertu ekki með þennan aumingja- skap. Lokaðu bara augunum og hugsaðu: Ég er h e i l – ég er h e i l l – lokaðu augunum og sjáðu þig dansa á Goldfinger eins og alheil- brigður einstaklingur, faðmaðu gæfu þína vinur og sjá, krafta- verkið gerist, þú ríst uppúr bæl- inu, þú ert heill. Svona já. Svona á að gera það. Ekkert húk. Þau veiku eru leið á því að vera veik. Þau ætla í verkfall. Hætta að taka inn lyf, yfirgefa sjúkra- rúmin, taka leigubíl heim fyrir klink, sem óneitanlega minnir á medalíur, leggjast í kör og bíða dauðans: Hins frelsandi engils, hins óþekkta afls. Hinir krabba- meinssjúku mæta ekki í geisla, eða í lyfjainntöku - þeim er alveg sama, þau ætla bara að deyja. Hin geðhvarfasjúku hætta að taka sín lyf og hlaupa eftir hús- þökunum, skrúfa niður loftnetin, brjóta rúður, öskra. Hin alnæmis- smituðu grennast á sviphraða eins og þegar loft hverfur úr blöðru. Þau veiku ætla ekki að þiggja það sem í boði er á meðan aðför er gerð að velferðarríkinu, örorkubótum er líkt við ölmusu, hneisu, með vanþóknun hent í fólk, sem afgangsmolum af borði sem andartaki áður var þungt af veigum, og þrýstnum höfugum ávöxtum. Mæður á örorkubótum hætta að gefa brjóst, leggja börn í körfur, fara. Hvað meira? Við þurfum ekki að vera veik, við getum eins dáið. Svo svífa vagnar sem íturvaxnir og ósýnilegir guðir teyma niður Laugaveg í boði fallegrar ríkisstjórnar og heilbrigðrar borg- arstjórnar. Guð veri með þeim. Guð er með þeim. Þau sögðu í rík- isstjórninni að eitt sinn áður hefðu þau, eða fyrirrennarar þeirra, tekið á móti verðlauna- hafa, hinum meiriháttar Halldóri Laxness þegar Gullfoss flutti hann með nóbelsverðlaunin heim og í Reykjavíkurhöfn. En það voru mismæli. ASÍ og Bandalag íslenskra listamanna skipulögðu móttökurnar á hafnarbakkanum. Ríkisstjórnin ákvað að skatt- leggja ekki verðlaunaféð. Og bæjarstjórnin sendi skáldinu fagran blómvönd. Medalíur hinna sjúku eru svo mjúkar að sjúklingarnir borða þær og skola niður með vatni. En nú íhuga þeir að taka ekki við fleiri verðlaunapeningum. Af auðmýkt. Í sparnaðarskyni. Hætta að þiggja lækningu – annað hvort deyja eða hugsa í sig, dreyma inní sig heilbrigðið með áhrifamætti töfra, eins og maður sem læknar skemmda tönn með hugleiðslu: Þið getið átt þessi sjúkrahús. Breytt þeim í hótel. Við ætlum heim, leggjast í kör, mæta dauðanum, eins og venju- legur átjándu aldar almenningur. Við höfum ekki áhuga á að borga reikninga. Við höfum ekki efni á að vera veik. Þiggjum ekki ölm- usugjörð til þess að halda uppi eigin hryggðarmynd, sem einnig er spegilmynd ykkar, hinna hraustu, ef betur er að gáð: Ruslið sem þið forðuðuð úr draumum ykkar. Verkfall hinna sjúku, hinna veiku, hinna lösnu, hinna lasburðu, er í burðarliðnum. Hvað svo? p.s. með litlum stöfum: en ef þú skyldir nú deyja, elsku- legi veiki sjúklingur, skamm, skamm, ertu til í að tala máli okkar við himnaföðurinn, eða móður, ef hann er kelling. etc. Höfundur er rithöfundur. Hinir veiku fara í verkfall Þau veiku eru leið á því að vera veik. Þau ætla í verkfall. Hætta að taka inn lyf, yfirgefa sjúkrarúmin, taka leigubíl heim fyrir klink, sem óneit- anlega minnir á medalíur, og leggjast í kör, bíða dauðans. KRISTÍN ÓMARSDÓTTIR GÓÐUR OG SVALANDI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.