Fréttablaðið - 25.09.2008, Side 13

Fréttablaðið - 25.09.2008, Side 13
FIMMTUDAGUR 25. september 2008 HEKLA Laugavegi 172-174 · Sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is · Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranes · Ísafjörður · Reyðarfjörður · Reykjanesbær · Selfoss SIMPLY CLEVER FJÓRIR LÍTRAR Á HUNDRAÐIÐ. ÞAÐ ER STÖÐUGLEIKI Í ÞVÍ. NORÐURLÖND Norrænir mennta- málaráðherrar hafa ekki fram- kvæmt stefnu um norrænt málsamfélag. Þeir vinna hægt og taka norrænt málsamfélag ekki nógu alvarlega, segir í yfirlýs- ingu frá „fjölmörgum fulltrúum“ í Norðurlandaráði. Markmið stefnunnar, sem er frá árinu 2006, er að allir Norðurlandabúar geti rætt hver við annan á norrænni tungu. Heildstætt málsamfélag þessara þjóða mætti svo nota sem fyrirmynd fyrir önnur fjöltyngd svæði í heiminum. - kóþ Norðurlandaráð: Ráðherrar menntamála standa sig ekki ÞÝSKALAND, AP Thomas Dörflein, ísbjarnahirðir í Berlín, fannst látinn í íbúð sinni á mánudag. Hann hafði átt við alvarleg veikindi að stríða, en lögregla segir ekki vitað hver dánarorsökin var. Dörflein komst í heimsfréttirnar á síðasta ári sem þjálfari Knúts, litla ísbjarnarhúnsins í dýragarðin- um í Berlín sem heillaði börn og fullorðna víða um heim. Dörflein var 44 ára og hafði starfað í dýragarðinum í aldar- fjórðung. Þeir Knútur komu fram daglega í dýragarðinum í nokkra mánuði þar til Knútur þótti orðinn of stór. - gb Ísbjarnahirðirinn Dörflein: Þjálfari Knúts fannst látinn DÖRFLEIN OG KNÚTUR Ísbjörninn Knút- ur hefst enn við í dýragarðinum í Berlín. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Hraðakstur í Skógarseli Brot 24 ökumanna voru mynduð í Skógarseli í Breiðholti á mánudaginn. Á einni klukkustund, eftir hádegið var fylgst með 180 ökutækjum og af þeim óku 13 prósent ökumanna of hratt. Meðalhraði þeirra var rúm- lega 61 kílómetri á klukkustund en hámarkshraði í Skógarseli er 50. LÖGREGLUFRÉTTIR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.