Fréttablaðið - 25.09.2008, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 25. september 2008 3
Tískustraumar spretta oft upp úr
ríkjandi þjóðfélagsástandi.
Fatatísku má skilgreina sem vin-
sældabylgju sem gengur yfir
ákveðið tímabil og mótast af ríkj-
andi þjóðfélagsástandi og menn-
ingarstraumum. Tískustraumarn-
ir ná að festa sig mismikið í sessi.
Þá þróa margir persónulegan stíl
sem stundum gengur þvert á tísku-
strauma en er yfirleitt undir ein-
hverjum óljósum áhrifum frá til
dæmis rómantískri fatatísku,
pönktímanum eða frjálslegum
fatnaði blómabarnanna. - ve
Mörgum þótti kjóll
Christinu Applegate
bera af hátíðinni og
Sandra Oh þótti líka
glæsileg í kjól frá Oscar
de la Renta.
LÍTIÐ KOM Á ÓVART Í KLÆÐAVALI
STJARNANNA Á EMMY-VERÐLAUNAHÁ-
TÍÐINNI Í ÁR EN NOKKRAR SKÖRUÐU
ÞÓ FRAM ÚR.
Stjörnurnar sem spígsporuðu eftir
rauða dreglinum á Emmy- verðlauna-
hátíðinni, sem fram fór í Los Angeles
síðastliðinn sunnudag, þóttu taka litla
áhættu í klæðavali og var talsvert um
kunnugleg snið og kjóla.
Nokkrar stjörnur báru þó af eins og
venja er og þótti leikkonan Christina
Applegate taka sig sérstaklega vel út
í ljósbláum kjól með gyltum skellum.
„Hann er í senn fágaður og djarfur,“
sagði stílistinn Mary Alice Stephenson.
Grey’s Anatomy-stjarnan Sandra
Oh þótti einnig skara fram úr, en hún
hefur áður mátt dúsa á lista hinna
verst klæddu. Hún skartaði gamaldags
blúndukjól frá Oscar de la Renta og
þykir hafa tekið stórstígum framförum.
Annars voru fjólubláir og hlýralausir
kjólar áberandi ásamt uppsettu hári
enda hitinn í Los Angeles mikill. - ve
Stjörnurnar tóku
litla áhættu
Straumar og stefnur
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
P
arís er borg tískunnar.
Auk hinna frægu
verslunargatna eins og
Avenue Montainge og rue
Faubourg St. Honoré er París
þekkt fyrir stóru verslunarhúsin
le Printemps, les Galeries
Lafayette og le Bon Marche, svo
þau frægustu séu nefnd. Þau
minna á Harrod´s í Lundúnum og
Barney´s í New York. Einhver
myndi kannski halda að því hljóti
Frakkar að vera afskaplega vel
klæddir. Ef að er gáð er þetta
ekki alltaf staðreynd.
Á tíu ára ferli í tískuheiminum
hef ég marga fjöruna sopið, jafnt
í fínum búðum sem og á „show-
roomum“ þar sem tíska næstu
árstíðar er seld til verslana en
undanfarið hef ég stöku sinnum
hlaupið í skarðið á „corneri“ hjá
einu af ítölsku tískuhúsunum í
tveimur af fyrrnefndum
verslunarhúsum, Printemps og
Galeries Lafayette. Þessi
verslunarhús sem bæði er að
finna á Haussmann-búlvarðinum
eru eins og dagur og nótt. Annars
vegar er það Printemps sem um
nokkurt skeið hefur dregið að
sér efnaðri viðskiptavini með
sífellt fágaðri vöru, með
hugmyndum eins búð í búð (shop
in shop) þar sem mörgum fínum
búðum er safnað undir sama þaki
og svo með því að fækka smátt
og smátt ódýrari merkjum sem
eru eins og skrattinn úr sauðar-
leggnum samanborið við fínu
merkin.
Á meðan er Galeries Lafayette
samkomustaður allra mögulegra
og ómögulegra gesta og auglýst í
hverjum einasta ferðamanna-
bæklingi. Franskur almenningur
minnir stundum á bændur úr
moldarkofum Íslands á
nítjandu öld og virðist hafa
mælt sér mót í verslunarhús-
inu. Í ljós kemur að stór hluti
viðskiptavina Galeries
Lafayette klæðir sig í myrkri
í þær flíkur sem hendi eru
næst og hafa ekki kynnst
hárgreiðu um nokkurt skeið.
Gínurnar eru gengnar niður
af fyrirferðarmiklum og
æstum viðskiptavinum og svo
harkalega er togað í viðkvæm-
ar silkiblússur á herðatrjánum
að smám saman koma í ljós göt
á axlarsaumunum. Goðsögnin
um land tískunnar fölnar því
dálítið eftir nokkra daga í svona
stórverslun.
Hér í landi er mikill þrýsting-
ur frá kaupmönnum að lengja
afgreiðslutíma verslana. Bæði
Printemps og Galeries Lafayette
hafa nýlega fært lokunartímann
til klukkan 20 og í október ætla
kaupmenn að loka klukkan 21.
Hugmyndin er svo að hafa opið
alla sunnudaga 2009. En nú er
að sjá hvort starfsfólkinu sé
nóg boðið í landi þar sem
almenningur er þekktur fyrir
að mótmæla á götum úti.
Verslunarhúsið sem kannski
er hvað minnst þekkt og því
rólegt er Bon Marche sem er á
vinstri bakkanum í St. Germain
des Près-hverfinu. Bon Marche
er í fínni hluta Parísar og
viðskiptavinirnir ansi fágaðir og
andrúmsloft afslappað.
berg75@free.fr
Kolaport hátískunnar
KRINGLAN SMÁRALIND LAUGAVEGUR
69354 00101
Lir: Svart
Stærðir:
36-47
Exercise W.
22484 00101
Lir: Svart
Stærðir:
40-47
Transporter
42073 00709
Lir: Svart
Stærðir:
36-42
Urban Flexor
46913 00101
Lir: Svart
Stærðir:
36-42
Catch
FIMMTUDAGS
TILBOÐ
15.995
12.495
16.995
13.495
13.995
10.995
14.995
11.995
Síðumúla 3 - Reykjavík
Hæðasmára 4 - Kópavogur
Opið virka daga 11-18, laugard. 11-15
Frábært úrval
AÐHALDSUNDIRFÖT
Opið virka daga 10-18 laugardaga 11-15
Alla föstudaga
Þjóðfélagsástand hefur áhrif á tísku.