Fréttablaðið - 25.09.2008, Blaðsíða 66
40 25. september 2008 FIMMTUDAGUR
Norðlenska útgáfufyrirtækið
Kimi Records hyggur á landvinn-
inga í Skandinavíu á næstunni.
Fyrsta platan sem kemur þar út
verður Bat Out of Hellvar með
hljómsveitinni Hellvar og á eftir
henni fylgja plötur með hljóm-
sveitunum Klive, Hjaltalín, Benni
Hemm Hemm og Morðingjarnir.
Sænski dreifingaraðilinn Dotshop
mun aðstoða Kimi Records við
dreifingu platnanna.
„Þetta er kröftugt og virkt fyr-
irtæki í þessari indítónlist og við
erum að fókusera á þennan jaðar-
markað,“ segir Baldvin Esra Ein-
arsson hjá Kimi Records. Á næsta
ári vonast hann síðan til að geta
gefið út nýjar plötur fyrirtækisins
samtímis hérlendis og í Skandin-
avíu. „Markmiðið er að stilla
útgáfufyrirtækinu ekki upp sem
íslensku fyrirtæki í skand inavískri
útrás heldur sem skandinavísku
fyrirtæki,“ segir hann.
Næstu útgáfur Kimi Records
hérlendis eru nýjustu plötur
Reykjavík! og Retro Stefson. - fb
folk@frettabladid.is
BALDVIN ESRA EINARSSON Baldvin Esra
hyggur á landvinninga í Skandinavíu
með fyrirtæki sitt Kimi Records.
> TILNEFND Í FRÆGÐARHÖLL
Hljómsveitirnar Metallica, The Stooges og Run DMC hafa verið
tilnefndar til innvígslu í Frægðarhöll rokksins á næsta
ári. Gítarleikarinn Jeff Beck, söngkonan Wanda
Jackson og diskósveitin Chic eru einnig á meðal
þeirra sem koma til greina. Þeir fimm flytjend-
ur sem fá flestar tilnefningar hljóta inngöngu
í Frægðarhöllina, sem er í Cleveland í Banda-
ríkjunum. Aðeins þeir listamenn sem eiga
að baki 25 ára útgáfusögu geta komist í
Frægðarhöllina. Á meðal þeirra sem hlutu
inngöngu á síðasta ári voru Madonna,
John Mellencamp og Leonard Cohen.
Kimi til Skandinavíu
Þrettán ára íslensk stúlka,
Birna Gústafsson, situr
fyrir í nýjasta hefti frétta-
tímaritsins Time.
„Hún er með umboðsmann í New
York sem hringdi í hana í maí og
þá fór hún í prufutöku ásamt
nokkrum öðrum stúlkum. Hún var
svo valin ásamt einni annarri
stúlku, en svo enduðu þeir með að
nota bara myndirnar af Birnu,“
segir Edda Gústafsdóttir, móðir
Birnu Gústafsson, þrettán ára
íslenskrar stúlku sem birtist
í nýjasta tölublaði banda-
ríska fréttatímaritsins
Time. Myndirnar birtust
með grein undir yfir-
skriftinni „The truth
about teen girls,“ þar
sem fjallað er um
hvort unglingsstúlk-
ur séu að fullorðn-
ast of snemma nú til
dags. Birna hefur
meðal annars fengist
við fyrirsætustörf
fyrir Barbie og Sam-
sung. Hún hefur verið
búsett ásamt foreldrum sínum í
Connecticut frá því að hún fædd-
ist, en Magnús Gústafsson, faðir
Birnu, hefur starfað sem aðalræð-
ismaður Íslands í New York undan-
farin þrjú ár.
„Hún fór til New York og var
heilan dag í tökum fyrir Time. Það
var þvílíkt umstangið með föt, skó
og skartgripi sem var komið með í
stúdíóið allan daginn frá klukkan
átta um morguninn til sjö um
kvöldið,“ útskýrir Edda.
„Birna hefur voðalega gaman af
fyrirsætustörfum og leiklist.
Hún hefur haft það sem
svona aukastarf með skól-
anum og ballettinum sem
er númer eitt hjá henni,
en hún hefur verið í ball-
ett frá því að hún var
þriggja ára í New Eng-
land Academy of
Dance,“ segir Edda.
alma@frettabladid.is
Íslensk stúlka
á forsíðu Time
ÓLÍK ANDLIT ÆSKUNNAR Myndirnar tvær sem birtust af Birnu í tímaritinu Time er
heldur ólíkar, en á hægri myndinni er hún heldur fullorðinslegri en á þeirri vinstra
megin. Í myndatextanum stendur að hún sé ellefu ára, en Birna var 12 ára þegar
myndirnar voru teknar. Að auki birtist tilvísun í greinina á forsíðu blaðsins.
BALLETT Í UPPÁHALDI
Birna hefur verið búsett í
Bandaríkjunum frá því hún
fæddist og stundað ballett
frá þriggja ára aldri.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki