Fréttablaðið - 25.09.2008, Blaðsíða 54
28 25. september 2008 FIMMTUDAGUR
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Stefán Einar Stefánsson
rafverktaki, Breiðabliki 3, Neskaupstað,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað mánudag-
inn 22. september. Útförin verður auglýst síðar.
Ása Stefánsdóttir
Bergþóra Stefánsdóttir Elmar Halldórsson
Guðný Stefánsdóttir
Þuríður Stefánsdóttir Björn Kristjánsson
Aldís Stefánsdóttir Rúnar Gunnarsson
Þóra Stefanía Stefánsdóttir Karl Gunnar Eggertsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Guðrún Aðalheiður
Arnfinnsdóttir
Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
lést sunnudaginn 21. september. Útför hennar fer fram
frá Akraneskirkju föstudaginn 26. september kl. 14.00.
Ragnar Hallvarðsson,
Guðrún Hallvarðsdóttir,
Jón Sævar Hallvarðsson Jóhanna Arnbergsdóttir
Halla Guðrún Hallvarðsdóttir Ásgeir Samúelsson
Arnfinnur Hallvarðsson Guðrún Berta
Guðsteinsdóttir
Einvarður Hallvarðsson
og ömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn, tengdasonur,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Haraldur Sigurjónsson
Gullsmára 9, áður Álfhólsvegi 24A,
Kópavogi,
lést laugardaginn 20. september á lungnadeild
Landspítalans í Fossvogi. Útförin fer fram frá
Digraneskirkju föstudaginn 26. september kl. 13.00.
Rannveig Leifdóttir
Leifur Eiríksson
Sveinbjörg Haraldsdóttir Guðlaugur Kristinsson
Jóhanna Helga Haraldsdóttir
Eiríkur Ingi Haraldsson Bryndís Reynisdóttir
Íris Elva Haraldsdóttir
Elín Björg Haraldsdóttir Sveinn Ragnar Jónsson
barnabörn og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Arnfríður Róbertsdóttir
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, áður til
heimilis að Furulundi 1c,
andaðist á Dvalarheimilinu Hlíð 17. september. Útför
hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 26.
september kl. 13.30.
Herborg Káradóttir Geir Örn Ingimarsson
Pálmi Kárason
Stefán Kárason Margrét Haddsdóttir
Steindór Kárason Jóna Þórðardóttir
og ömmubörnin.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Birgir Valdemarsson
Huldugili 8, Akureyri,
lést mánudaginn 22. september.
Kolbrún Theódórsdóttir
Björgvin Birgisson Gunnhildur Einarsdóttir
Þóra Guðný Birgisdóttir
Harpa Birgisdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðrún Guðmundsdóttir,
áður til heimilis á Tjörn, Stokkseyri,
sem lést á Fossheimum Selfossi að morgni
20. september, verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju
laugardaginn 27. september kl. 15.00.
Guðmundur Baldursson Helga Snorradóttir
Sigríður Sigurðardóttir
Elías Þór Baldursson Þóra Bjarney Jónsdóttir
Erna Guðrún Baldursdóttir Jónbjörn Þórarinsson
Hrönn Baldursdóttir Kristinn Karl Ægisson
Freyr Baldursson Rósa Matthíasdóttir
Aðalbjörn Þ. Baldursson Ásta Stefánsdóttir
Magnús Björn Baldursson Íris Mjöll Valdimarsdóttir
Skúli Baldursson Ingunn G. Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Ásthildur Guðrún
Gísladóttir Königseder
lést úr hjartaáfalli á heimili sínu 13. september. Hún
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánu-
daginn 29. september kl. 15.00.
Már Wolfgang Mixa Kristín Loftsdóttir
Halla Guðrún Mixa
Jörg Albert Königseder Mirijam Wolfgruber
Mímir, Alexía og Sól.
Bróðir okkar,
Þorsteinn Jónsson (Denni)
vélstjóri frá Ísafirði, Arnarhrauni 18,
Hafnarfirði,
sem lést á Landspítalanum 19. september, verður jarð-
sunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 26.
september kl. 11.00.
Fyrir hönd systkina,
Þorleifur Ófeigur Jónsson.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Guðmundur Valdimarsson
frá Fjalli, Efri-Brúnavöllum, Skeiðum,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 17. sept. sl. Útför
hans fer fram frá Skálholtskirkju föstudaginn 26. sept.
kl. 14.00.
Áslaug Björt Guðmundardóttir
Guðfinna Auður Guðmundsdóttir Jón Finnur Hansson
Auður Sif Sigurðardóttir, Steinn Hermann Sigurðarson,
Fróði Guðmundur Jónsson, Erla Mekkín Jónsdóttir, Bára
Björt Jónsdóttir, Tinna Kjartansdóttir.
timamot@frettabladid.is
Hríseyingurinn Sigurður Pétur Högnason opnar sýningu á 17
nýjum akrýlmyndum í Galleríi Sævars Karls í Bankastræti í
dag klukkan 17. Hún stendur í eina viku. Þetta er sölusýning
og Sigurður hefur ákveðið að styrkja SPES barnahjálp með 30
prósentum af andvirði hverrar seldrar myndar. Kveðst hafa
heillast af því óeigingjarna starfi sem samtökin vinni í hinu
fátæka Afríkuríki Tógó. „Samtökin bjarga börnum sem eru
borin út og finnast á götum. Þau byrjuðu smátt með átta börn
en nú held ég þau séu komin með um hundrað svo þetta er
orðin heilmikil starfsemi,“ lýsir hann.
Sigurður kveðst hafa heillast af Hrísey og flutt þangað
fyrir átta árum, ásamt konu sinni, Elínu Jóhannesdóttur. „Við
búum í Njálshúsi og ég byggði vinnustofu við hliðina sem ég
kalla Gallerí Njálshús. Þar uni ég
mér vel og spila músík á fullu. Sem
sést í myndunum. Það liggur nærri
að konan mín verði að nota sömu
aðferð og bændakonurnar, að taka
rafmagnið af útihúsinu svo bónd-
inn skili sér í mat!“
Spurður hvernig standi á því að
listamenn sæki til Hríseyjar svar-
ar Sigurður. „Hrísey er góð til list-
sköpunar,“ Bætir svo við dulúðug-
ur. „Þar erum við í næsta nágrenni við eina mestu orkustöð
landsins, fjallið Kaldbak og á austanverðri eyjunni er magn-
aður orkublettur.“
Undanfarin ár hefur Sigurður Pétur sótt viðfangsefni sín í
fjörur og grjótnámur og séð út úr þeim ýmsar kynjaverur. Nú
kveðst hann mála meira abstrakt eftir frjálsri línu og fanga
augnablikin. Annars er hann rafvélavirki að mennt og starf-
ar við það fag sem verktaki. „Ef það bilar rafmótor í Héð-
insfjarðargöngum eða einhvers staðar hér fyrir norðan þá
er hóað í mig,“ segir hann hlæjandi. Kveðst ekki hálærð-
ur í listinni og láta allar stefnur lönd og leið. „Afkomendur
mínir hafa bætt upp menntunarleysi mitt. Jónborg dóttir mín
er myndlistarkona á Akureyri og elsti sonur hennar, Sigurð-
ur Eggertsson myndlistarmaður, var tilnefndur til sjónlistar-
verðlaunanna í liðinni viku.“ - gun
STYRKIR SPES: SÝNIR HJÁ SÆVARI KARLI
Tónlist í
myndunum
HEILLAÐIST AF HRÍSEY Sigurður Pétur Högnason kveðst hafa heillast af
Hrísey og flutti þangað fyrir átta árum. Þar málar hann listaverkin.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Þennan dag fyrir fimmtíu árum
náðu Íslendingar fyrsta fiski-
skipinu á sitt vald í nýbyrjuðu
þorskastríði við Breta. Það voru
varðskipin Óðinn og María Júlía
sem tóku togarann Paynter þar
sem hann var við ólöglegar
veiðar úti af Vestfjörðum. Tund-
urspillirinn Diana sem gætti
landhelgisbrjótanna fékk leyfi til
að fara með veikan mann inn til
Patreksfjarðar. Togar arnir áttu að
fara út fyrir landhelgi á meðan
en Paynter virti þau fyrirmæli að
vettugi og kastaði vörpunni. Þá
lagði Óðinn að honum og setti
nokkra menn um borð og var
þeim mætt með bareflum. Þá
kom María Júlía að með aukinn
liðsafla. Stimpingar urðu en ekki
veruleg meiðsl. Lauk átökunum
með því að varðskipsmenn tóku
við stjórn togarans og bjuggu
sig undir að færa hann til hafn-
ar. Þá komu fyrirmæli frá Land-
helgisgæslunni um að sleppa
togaranum þar sem svo liti út
sem Íslendingar hefðu notfært
sér leyfi herskipsins til að leita
hafnar.
ÞETTA GERÐIST: 25. SEPTEMBER 1958
Fyrsti togarinn tekinn
WILLIAM FAULKNER RITHÖFUND-
UR FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ
1897.
„Að lifa í þessum heimi í
dag og vera á móti jafnrétti
vegna kynþáttar eða litar-
háttar er eins og að búa í
Alaska og vera á móti snjó.“
William Faulkner var frá Miss-
issippi. Hann hlaut bók-
menntaverðlaun Nóbels árið
1949. Meðal verka hans sem
þýdd hafa verið á íslensku eru
Griðastaður og Ljós í ágúst.