Fréttablaðið - 25.09.2008, Blaðsíða 58
32 25. september 2008 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Sex sýningar, fimm einka-
sýningar og ein samsýning,
verða opnaðar í listamanna-
húsinu StartArt við Lauga-
veg í dag. Á sýningunum
kennir ýmissa grasa; þar
verður meðal annars boðið
upp á innsetningu, ljós-
myndir, olíumálverk og
skúlptúra.
Í Forsal Startart fer fram sýningin
Qualia, en hún er samsýning Ragn-
hildar Stefánsdóttur og Kristínar
Reynisdóttur. Útgangspunktur
Kristínar og Ragnhildar í þessari
sýningu er hugtakið Qualia, en það
hverfist um virkni skynjunarinnar.
Þær stöllur vinna út frá því að
skynjun sé oft samspil ytri og innri
veruleika og að upplifun eins sé
ekki sú sama og upplifun annars.
Qualia er innsetning í rýmið þar
sem himnur, belgir, orkupunktar
og líffæri tengja hið innra og ytra.
Á Loftinu verður opnuð sýning
Björns Birnis, Frá útmánuðum og
vori. Björn Birnir hefur lengi verið
virkur í hérlendu myndlistarlífi;
hann lauk námi frá Myndlistar-
deild Myndlista- og handíðaskóla
Íslands árið 1952 og fór svo í fram-
haldsnám til Bandaríkjanna. Björn
hefur haldið fjölda einkasýninga
víða um heim, til að mynda í Kan-
ada, Bandaríkjunum og Svíþjóð, en
hér á landi hefur hann meðal ann-
ars sýnt á Kjarvalsstöðum og í
Norræna húsinu. Þetta er fyrsta
sýning hans í StartArt.
Í Austursal niðri opnar Björn
Valdimarsson sýningu sína Portrett
af róbótunum mínum. Þetta er
fyrsta myndlistarsýning Björns,
en hann hefur starfað við grafíska
hönnun og margmiðlunarhönnun.
Hann nam þó myndlist við Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands á átt-
unda áratug síðustu aldar og hefur
því drjúga reynslu á því sviði.
Í Vestursal niðri opnar Gréta S.
Guðjónsdóttir ljósmyndasýning-
una Dúna. Á sýningunni má sjá
myndir sem Gréta tók af ömmu
sinni á árunum 2001-2007. Gréta
nam ljósmyndun í Hollandi og
hefur starfað sjálfstætt sem ljós-
myndari frá því árið 1996. Hún
hefur tekið þátt í samsýningum
Blaðaljósmyndarafélags Íslands
og Ljósmyndarafélags Íslands, en
Dúna er fyrsta einkasýning henn-
ar.
Sýningin Leyfi nr. 814 verður
opnuð í Vestursal uppi. Á henni má
sjá ljósmyndir Kristveigar Hall-
dórsdóttur af hópi hreindýraveiði-
manna á ferð um fjallshlíðar í Geit-
hellnadal. Kristveig lauk námi frá
Myndlista- og handíðaskóla Íslands
árið 1993 og fór svo í framhalds-
nám til Noregs. Sýningin í StartArt
er sjötta einkasýning hennar.
Í Austursal uppi verða opnaðar
sýningar Ásu Ólafsdóttur og Þór-
dísar Öldu Sigurðardóttur. Sýning
Ásu nefnist Hringekja ´08 og má á
henni sjá myndir sem unnar eru
með blandaðri tækni á vatnslita-
pappír. Ása hefur áður haldið fjöl-
margar einkasýningar og einnig
tekið þátt í samsýningum hér heima
og erlendis. Sýning Þórdísar nefn-
ist Söguþráður og eru verkin á
henni nú jafnframt framhald af
syrpu verka sem Þórdís hefur
unnið að undanfarin ár. Á sýning-
unni má sjá lágmyndir og skúlptúr
sem Þórdís hefur unnið úr alls kyns
bandi, þráðum og aflóga hlutum.
Sýningarnar verða opnaðar kl.
17 í dag og standa yfir til 29. októb-
er. StartArt listamannahús er á
Laugavegi 12b. vigdis@frettabladid.is
Sex sýningar í litlu húsi
AMMA DÚNA Ljósmyndasýning Grétu S. Guðjónsdóttur verður opnuð í StartArt
listamannahúsi á morgun.
Kórinn Vox academica er að hefja sitt 13. starfsár.
Vox academica er blandaður 60 manna kór skipaður
tónlistarmenntuðu fólki og þrautreyndum kórsöng-
vurum. Æfingar eru einu sinni í viku, á þriðjudags-
kvöldum og fyrsta mánudag hvers mánaðar.
Markmið kórsins er að vinna stærri verk tónbók-
menntanna með íslenskum tónlistarmönnum og
reyndum kórsöngvurum og takast á við stór og
krefjandi kórverk.
Á komandi starfsári hyggst kórinn flytja Carmina
burana eftir Carl Orff, á tónleikum þann 22. nóvem-
ber nk., og Elijah eftir Felix Mendelssohn á vordög-
um, en þessi verk eru bæði meðal veigamestu verka
kórbókmenntanna. Kórinn hefur það síðan að
markmiði að flytja h-moll messu J.S. Bach haustið
2009.
Undanfarin ár hefur kórinn lagt áherslu á að flytja
stærri verk kórbókmenntanna. Kórinn hefur t.d.
nýlega flutt Messías eftir Händel, Deutsches
requiem eftir J. Brahms og Requiem eftir W.A.
Mozart. Síðastliðið vor flutti kórinn hið stórfenglega
meistaraverk Requiem eftir G. Verdi í Hallgríms-
kirkju við frábærar undirtektir. Stjórnandi kórsins
og stofnandi hans er Hákon Leifsson. Hann stjórnaði
Háskólakórnum um árabil og er m.a. organisti í
Grafarvogskirkju. Hákon hefur komið fram með
fjölmörgum tónlistarhópum á Íslandi, þeirra á meðal
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Jón Leifs Camerata,
Caput hópnum og fleirum. Hann kennir kórstjórn við
Tónskóla Þjóðkirkjunnar, en hluti skólastarfsins þar
er nú hluti af námsvettvangi Listaháskólans.
Vegna verkefna þessa starfsárs þurfum við nú að
bæta við fólki í eftirfarandi raddir: sópran, tenór og
bassa. Söngvurum sem áhuga hafa á því að taka þátt
í framangreindum verkefnum er bent á að hafa
samband við: Þóru Passauer (voxacademica@gmail.
com, 899-7579), Þórarinn Jónsson (th.jons@centrum.
is , 897-1257), Hákon Leifsson (hakon@vortex.is).
Frekari upplýsingar um kórinn má finna á heimasíð-
unni http://voxacademica.net.
Vox vantar raddir
VOX AKADEMICA Verdi-tónleikar 2008.
Kl. 22
Glaumbar býður upp á svokallaða
bítbox-tónleika í kvöld kl. 22. Þar
kemur fram hljómsveitin Open mic,
en meðlimir hennar eru þeir Gísli
Galdur Þorgeirsson á trommur, plötu-
spilara og hin ýmsu hljóðfæri,
Samúel Jón Samúelsson á básúnu og
slagverk, Arnljótur hinn mikli á
bassa og gítar og Steinar Sigurðarson
á saxófóna og slagverk. Aðgangur er
ókeypis.
Tvíburasysturnar Gunnhildur og Brynhildur
Þórðardætur opna sýninguna Prjónaheimur
Lúka í sýningarrýminu Torginu á Þjóðminjasafni
Íslands á laugardag kl. 14. Sýningin er framhald
af samnefndri sýningu sem haldin var við góðan
orðstír í apríl í galleríBoxi á Akureyri.
Systurnar skipa listadúóið Lúka Art & Design
sem var stofnað haustið 2004. Þær hafa undan-
farið verið í samstarfi við fyrirtækið Glófa sem
tók að sér að prjóna munstur sem þær hönn-
uðu sérstaklega fyrir íslensku ullina. Hugmyndin
að munstrinu er unnin út frá lakkrískonfekti og
lakkrísreimum og hafa þær systur búið til inn-
setningu út frá vörum sem unnar eru úr þessu
munstraða ullarefni. Systurnar stefna svo á að
fara utan með sýninguna næsta vor á vegum
Útflutningsráðs Íslands.
Brynhildur er lærður textíl- og fatahönnuður
frá Listaháskóla Íslands og Leeds University.
Gunnhildur er menntuð í listasögu, fagurlistum
og liststjórnun frá Listaháskólanum í Cambridge.
Vörur Lúka Art & Design verða bæði til sölu og
sýnis í safnbúð Þjóðminjasafnsins. Sýningin
stendur til 12. október. - vþ
Lakkrís og prjónaskapur
SKAPANDI SYSTUR Brynhildur og Gunnhildur Þórð-
ardætur skipa listadúóið Lúka Art & Design.
> Ekki missa af...
Funheitri sýningu á argent-
ínskum tangó í Gyllta salnum
á Hótel Borg í kvöld kl. 22.30.
Dansparið Matias Facio og
Claudia Rogowski er búsett
í Buenos Aires og Berlín.
Þau halda sýningar á báðum
stöðum, kenna og skipuleggja
tangóviðburði og ferðast um á
hátíðir víðs vegar um heiminn
til þess að sýna og kenna.
Húsið verður opnað kl. 21.30
og miðaverð er 1.500 kr.
Ástin er diskó, lífið er pönk
Hallgrímur Helgason
Ekki missa af eldfjörugum söngleik
sun. 28/9 örfá sæti laus
Klókur ertu, Einar Áskell
Bernd Ogrodnik
Heillandi og krúttleg brúðusýning fyrir yngstu börnin
sun. 28/ 9 þrjár sýningar, örfá sæti laus
Nánar á www.leikhusid.is
Skilaboðaskjóðan
Þorvaldur Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson
Geysivinsælt ævintýri fyrir alla fjölskylduna!
sun. 28/9 kl. 14 örfá sæti laus
Engisprettur
Biljana Srbljanovic
Einstakt tækifæri, aðeins fimm sýningar!
fös. 26/9, lau. 27/9 örfá sæti laus
Opið kort
Áskriftarkort
Forskotskort
Þú sparar í allan vetur!
Kortasalan í fullum gangi
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Þjóðleikhúsið
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Söngkonan Hanna Þóra Guð-
brandsdóttir kemur fram ásamt
píanóleikaranum Antoníu Hevesi
á tónleikum í Tónbergi, sal Tón-
listarskólans á Akranesi, á sunnu-
dag kl. 15. Tónleikarnir nefnast
Ástin í Biblíunni, en nafngiftin er
til komin vegna þess að á fyrri
hluta tónleikanna verður fluttur
ljóðaflokkurinn Söngvar úr
Ljóðaljóðum eftir Pál Ísólfsson.
Ljóðaljóðin eru eflaust einn
þekktasti texti Biblíunnar, enda
lýsa þau kærleikanum á milli
manns og konu á fagran hátt. Þau
eru sögð vera það fegursta og
yndislegasta sem nokkru sinni
hefur verið fært í letur.
Seinni hluti tónleikanna verður
svo helgaður aríum, dúettum og
tríóum eftir tónskáld á borð við
Puccini, Dvorák, Delibes, Mozart
og Rossini. Til þess að koma tón-
listinni fyllilega til skila munu
þær Hanna og Antonía fá til liðs
við sig söngvarana Sólveigu Sam-
úelsdóttur og Jón Svavar Jósefs-
son. - vþ
Sungið um ástina
HANNA ÞÓRA GUÐBRANDSDÓTTIR
Kemur fram á tónleikum á Akranesi á
sunnudag.