Fréttablaðið - 25.09.2008, Blaðsíða 46
25. SEPTEMBER 2008 FIMMTUDAGUR12 ● vísindavaka 2008
Á bás KINE verður hægt að fylgjast
með starfsemi vöðvanna með hljóði og
mynd.
Það verður líf og fjör á bás KINE
eins og alltaf. Þar gefst fólki
kostur á að hlusta á merki sem
vöðvarnir gefa frá sér og einn-
ig að sjá vöðvaspennuna á stórum
skjá.
Með því að horfa á merki frá
vöðvanum, hvenær hann er að
taka á, er hægt að laga hreyfi-
mynstur og koma þannig í veg
fyrir ranga beitingu. KINE hefur
þróað þráðlausar mælieiningar á
heimsmælikvarða sem gefur fólki
tækifæri á að hreyfa sig óhindrað
og frjálst meðan það fylgist með
hvernig vöðvarnir bregðast við.
Þessi tækni er mjög gagnleg í al-
mennri líkamsþjálfun, endurhæf-
ingu, vinnuvistfræði og þjálfun
íþróttamanna.
Hlustað á
vöðvana
MIRRA – Miðstöð Innflytjenda-
rannsókna, Reykjavíkurakademí-
unni, mun fræða gesti Vísinda-
vöku um starfsemi rannsóknar-
miðstöðvarinnar og innflytjendur
á Íslandi.
Meðal annars verður kynnt
rannsóknarskýrsla sem MIRRA
vann um íþróttaþátttöku innflytj-
endabarna í Breiðholti og skrá
sem MIRRA heldur yfir rann-
sóknir og rit um innflytjendamál.
Einnig verður gestum gefinn kost-
ur á að kanna þekkingu sína á inn-
flytjendamálum og segja álit sitt á
þeim.
Innflytjendamál
á Vísindavöku
Urriðafoss í Þjórsá. MYND/SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON
Samhliða aukinni orkunotkun,
hærra orkuverði og auknum
umræðum um loftslagsbreyt-
ingar, eru orku- og umhverfis-
mál sífellt ofar í hugum fólks.
Aukin nýting endurnýjanlegra
orkugjafa á því mun meira fylgi
að fagna nú en áður, og þá ekki
síst sem liður í að draga úr út-
blæstri gróðurhúsalofttegunda.
Sérstaða og þekking Íslend-
inga á nýtingu endurnýjanlegra
orkugjafa skapa einstakt um-
hverfi til reksturs og uppbygg-
ingu sérhæfðs orkuskóla hér á
landi.
RES – Orkuskólinn kynn-
ir námsframboð skólans á Vís-
indavökunni 2008 og býður
gestum Vísindavöku að kynnast
framleiðslu og nýtingu á endur-
nýjanlegri orku.
RES – Orkuskólinn
Vísindavakan er haldin
sama dag í helstu borg-
um Evrópu og kallast
„Researchers’ Night“
MIRRA mun fræða gesti um íþróttaþátt-
töku innflytjendabarna í Breiðholti.