Fréttablaðið - 25.09.2008, Blaðsíða 62
36 25. september 2008 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Á morgun verður frum-
sýndur í þremur kvik-
myndahúsum í Reykjavík
og á Akureyri nýjasti smell-
ur þeirra Coen-bræðra,
Burn after Reading.
Hún skaust óvænt efst á lista vest-
anhafs í aðsókn og hefur vakið
verulega athygli beggja megin
Atlantshafsins. Myndin var opnun-
armynd á kvikmyndahátíðinni í
Feneyjum fyrr í mánuðinum. Bræð-
urnir halda áfram á áður kunnug-
um slóðum líkt og í No Country for
Old Men, Fargo og Blood Simple.
Græðgi leiðir klaufa inn á braut
glæpanna með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum. Að þessu sinni gerist
sagan í hinu virðulega og ríka sam-
félagi opinberra starfsmanna í
Washington: greiningarmaðurinn
Osborne (John Malkovich) er rek-
inn frá CIA. Kona hans Katie (Tilda
Swinton) er ekkert hissa á því,
hefur um langt skeið haldið við lög-
reglumanninn Harry (George
Clooney) sem hún ætlar að giftast
– þótt hann sé ekki skilinn enn. Í
öðrum hluta borgarinnar er líkams-
ræktarþjálfarinn Linda (Frances
McDormand) með allan hugann við
lýtaaðgerð sem hún vill ráðast í og
trúir vinnufélaga sínum Chad (Brad
Pitt) fyrir sínum málum. En þegar
tölvudiskur með endurminningum
Osbornes kemst í hendur þeirra
Lindu og Chads fer í gang keðja
atburða.
Bræðurnir segja kvikmyndina
blöndu af ádeilu, kynlífsfarsa og
kjaftforri kómedíu þótt stíllinn
sæki margt til samsærismynda
sem gerast í höfuðborginni. Joel
segir: „Myndin segir af miðaldra
fólki sem er í krísu á framabraut-
inni og í einkalífinu og kemur sér í
mál sem varða þjóðaröryggi. Hér
takast á heimar leyniþjónustunnar
og líkamsræktarstöðva með slettu
af makaleit á vefnum.“ Bróðir hans,
Ethan, bætir við: „Þetta er okkar
útgáfa af Jason Bourne/Tony Scott-
mynd nema það eru engar spreng-
ingar.“
Þessi fjörugi skálkaleikur verður
sýndur í Smárabíói, Háskólabíói og
Borgarbíói á Akureyri á morgun.
- pbb
Fjórir miðaldra skálkar
KVIKMYNDIR Gamlir samstarfsmenn
þeirra Coen-bræðra, George Clooney
og Francis McDormand, sem er reyndar
eiginkona eldri bróðurins, Joels.
MYND SENA
Alþjóðlega kvikmynda-
hátíðin í Reykjavík hefst
í kvöld. Sýningar verða í
Regnboganum við Hverfis-
götu, Norræna húsinu og í
Iðnó. Margir efnisflokkar
verða í boði á hátíðinni eins
og sjá má á vef hennar:
www.riff.is.
Á hátíðinni verður sérstök rækt
lögð við samband tónlistar og kvik-
mynda með tónlistarmyndadagskrá
sem ber yfirskriftina Hljóð á mynd,
eða Sound on Sight. Þar verða frum-
sýndar tvær nýjar íslenskar heim-
ildarmyndir, Rafmögnuð Reykjavík
og Teipið gengur. Er ætlunin að
vekja athygli á því sem er að gerast
hérlendis á sviði kvikmyndar og
tónlistar og sömuleiðis kynna
Íslendinga fyrir alþjóðlegum hrær-
ingum á sama sviði.
Rafmögnuð Reykjavík er ný
íslensk heimildarmynd eftir Arnar
Jónasson um raftónlistar- og dans-
tónlistarsenuna á Íslandi síðastliðin
tuttugu ár en Arnar hefur skráð
sögu hennar á þessu tímabili og er
myndin því um leið skoðun á kima í
íslensku tónlistarlífi. Rétt eins og
Rokk í Reykjavík, Gargandi snilld,
Heima, Rokkbærinn Keflavík,
Blindsker og Ham er verkið mikil-
væg skráning á sögu dægurtónlist-
ar hér á landi. Rafmögnuð Reykja-
vík inniheldur mikið af músik og
viðtöl við ýmsa forsprakka raf- og
danstónlistarsenunnar íslensku.
Hún er jafnframt opnunarmynd
Sound on Sight.
Teipið gengur er heimildarmynd
eftir Elsu Maríu Jakobsdóttur og
Gauk Úlfarsson um upptökur
Memfismafíunnar á plötunni Oft
spurði ég mömmu sem hefur hljóm-
að í viðtækjum landsmanna í sumar,
en hljóðritunin var einungis gerð á
einn hljóðnema og var ekkert átt
við upptökurnar eftir á.
Lou Reed tók upp plötuna Berlín
árið 1973 á eftir Transformer. Hún
fékk óblíðar móttökur og gleymdist
en átti sér fáa en dygga aðdáendur.
Fyrir tveimur árum réðist hann í að
flytja verkið allt og árið 2006 var
verkið kvikmyndað af Julian Schna-
bel í New York. Ýmsir flytjendur
komu að tónleikunum og hjálpuðu
Reed að skapa heim fíknar og tor-
tímingar.
Berlin Song er saga sex tónlistar-
manna úr söngvaskáldasenu Berl-
ínarborgar. Þau eru frá Bandaríkj-
unum, Noregi, Hollandi og Ástralíu
og gerðu borgina einhvern veginn
að sinni. Leikstjórinn Uli M Schu-
eppel fékk hvert og eitt þeirra til að
sýna sér „sinn eigin stað“ í Berlín
og bað hvert þeirra um að semja lag
um borgina.
Þungarokk í Bagdad er heimild-
armynd sem segir af íröksku þunga-
rokksveitinni Acrassicauda (Svarti
sporðdrekinn) frá því að stjórn
Saddams Husseins féll árið 2003 til
ársins 2007. Þungarokksflutningur
í einræðisríki hefur alltaf verið erf-
iður (ef ekki ómögulegur) en eftir
að Saddam var steypt af stóli leit út
fyrir að sveitin gæti flutt sína tón-
list óáreitt. Þær vonir urðu fljótlega
að engu eftir að borgarastyrjöld tók
að geisa.
Teknóplötusnúðurinn og pródús-
entinn Martin Krakow, betur þekkt-
ur sem DJ Ickarus, hefur verið á
stanslausu ferðalagi um klúbba og
útihátíðir heimsins ásamt kærustu
sinni og umboðsmanni Mathilde.
Eiturlyfjaneysla Martins fer þó
stöðugt vaxandi og eftir heimkomu-
tónleika í Berlín lýkur hann nóttinni
á geðdeild. Það er kornið sem fyllir
mælinn.
Wild Combination: A Portrait of
Arthur Russell segir frá örlögum
tónlistarmanns sem lést fyrir aldur
fram úr alnæmi árið 1992 að mestu
gleymdur. Þó hafði hann sett mark
sitt á ýmsa geira; framúrstefnulega
nýklassík, tónlist söngvaskálda og
– þótt ótrúlegt sé – diskó. Hann vann
með Allen Ginsberg og Philip Glass
en eftir því sem árin liðu sökk hann
sífellt dýpra inn í eigin tónlist, í
eigin heim, og undir lokin vann
hann að mestu einn í íbúð sinni í
New York.
Squeezebox var einn alræmdasti
skemmtistaður New York-borgar
þar til borgarstjórinn Rudy Giuli-
ani, sem vildi verða forsetaefni rep-
úblikana, lét loka honum. Staðurinn
var opnaður í byrjun 10. áratugar-
ins út frá þeirri einföldu hugmynd
stofnandans, Michaels Schmidt, að
láta draggdrottningar syngja rokk-
lög uppi á sviði. Í myndinni reyna
leikstjórarnir að fanga stemning-
una eins og hún var á staðnum, bæði
með gömlum myndbútum og viðtöl-
um. Þar með fær áhorfandinn tæki-
færi til þess að kynnast karakterun-
um sem einkenndu staðinn og nú
eru orðnir goðsagnir í djammlífinu
í New York.
Ólík þessum stórborgarópusum
er kvikmyndin Saga Borgarættar-
innar frá 1920 sem verður sýnd við
undirleik hljómsveitarinnar Hjalta-
lín. pbb@frettabladid.is
Teknó: Reykjavík-Berlín
TÓNLIST Sveittir snúðar blanda á staðnum.
> MISJAFN ÁRÓÐUR MOORE
Nýjasta kvikmynd Michaels Moore, Slack-
er Uprising, var gerð almenningi aðgengi-
leg á veraldarvefnum á þriðjudag. Sá galli
er reyndar á gjöf Njarðar að eingöngu er
hægt að hala myndinni niður í Banda-
ríkjunum og Kanada, en myndin er
gerð til að hvetja fólk til að kjósa í
bandarísku forsetakosningunum í
nóvember. Myndin hefur þó feng-
ið æði misjafna dóma og því er
kannski engin ástæða til að syrgja
hana.
Stysta Bond-myndin
Leikstjórinn Marc Foster, sem
leikstýrir nýjustu myndinni um
njósnarann James Bond, Quant-
um of Solace, upplýsti nýverið að
myndin yrði stysta Bond-mynd
sögunnar enda aðeins klukkutími
og fjörutíu mínútur að lengd.
Foster hitti blaðamenn á fundi
í Lundúnum í síðustu viku þar
sem hann lýsti myndinni sem
„samþjöppuðu og tilfinninga-
þrungnu ferðalagi“.
Daniel Craig fer í annað sinn
með hlutverk James Bond, en
hann hlaut mikið lof fyrir frum-
raun sína í hlutverkinu í kvik-
myndinni Casino Royale sem
kom út árið 2006.
Quantum of Solace er beint
framhald af Casino Royale; sögu-
þráður hennar á að hefjast um
hálftíma eftir að söguþræði fyrri
myndarinnar lauk. Áhorfendur
fylgjast með Bond eltast við
alþjóðleg glæpasamtök sem urðu
völd að dauða ástkonu hans í Cas-
ino Royale. Bond heimsækir
fjölda landa, Ítalíu, Austurríki og
nokkur lönd í Suður-Ameríku, til
þess að hefna sín.
Í Bólivíu rekst hann á franska
illmennið Dominic Greene sem
þykist vera náttúruverndarsinni,
en hefur í raun í hyggju að sölsa
undir sig vatnsbirgðir landsins
með valdaráni.
Bond getur að sjálfsögðu ekki
látið slíka glæpsemi viðgangast
og tekur til sinna ráða. - vþ
Á HARÐAHLAUPUM James Bond er
hollast að flýta sér þar sem nýjasta
myndin um hann er víst heldur
hraðskreið.