Fréttablaðið - 25.09.2008, Blaðsíða 38
Wild Combination:
a Portrait of Arthur Russell
Russell var mjög góður
músíkant og forvitnilegur
karakter, skrítinn einfari og
heimilsleysingi sem samdi
hreint magnaða tónlist.
My Winnipeg
Búin að heyra mikið og
margt gott um hana frá fólki
í kringum mig. Grunar líka
að það gæti verið einhver
skemmtileg Íslandstenging,
enda Maddin Vestur-
Íslendingur og Winnipeg
miklar Íslendingalendur.
Í skugga hinnar helgu bókar
Túrkmenistan er
skrítnasta land í heimi og
Túrkmenabashi var einn
skrítnasti leiðtogi sögunnar,
það ætti að vera forvitnilegt
að skyggnast á bak við tjöldin
þar. Svo er það finnskur
leikstjóri sem gerir myndina,
finnskur húmoristi getur
varla klikkað með svona efni
í höndunum.
Getur þú ímyndað þér 8 mínútna útgáfu af „Gone With
The Wind“? Löngu fyrir daga VHS og Beta varð fólk að
láta sér lynda að horfa á kvikmyndir heima hjá sér á Super
8mm formi. Stundum voru myndir í fullri lengd klipptar
niður í 8 mínútur (án samþykkis leikstjórans) og sýndar
þannig. Upplifunin er eins og að horfa á mjög langan
treiler. Páll Óskar á vafalaust landsins stærsta safn af Super
8mm spólum og mun sýna úrval 8 mínútna útgáfum af
klassískum Kung Fu myndum frá áttunda áratugnum á borð
við Fists of the Double K (1973) með Jackie Chan, The Hong
Kong Connection (1979), Godfathers of Hong Kong (1974),
Thunder Kick (1973), og hina gullfallegu Enter the Dragon
(1973) með Bruce Lee (60 mín). Minna mas, meiri hasar.
Spennið beltin fyrir besta partíbíó ársins, 2. október kl. 21:00
í Bæjarbíói, Hafnarfirði. Pylsur, popp og kók í anddyri, eins
og í alvöru „Grindhouse“ bíó.
„Hann er yngsti 77 ára maður mannkynssögunnar.“ Þannig lýsir Teri
McLuhan leikstjóri David Amram, sem semur tónlistina í mynd hennar
Óbyggða-Gandhi. Myndin verður sýnd þrisvar á hátíðinni en auk þess verður
Amram með sérstaka friðartónleika í tengslum við heimsfrumsýningu
á myndinni hérlendis þar sem hann fær Pétur Grétarsson í lið með sér.
Á dagskrá verður etnógrafískur djass og þeir félagar taka meðal annars
djassútgáfu af Hani, krummi, hundur, svín, enda á Amram myndarlegt safn
af íslenskum lögum.
Rétt eins og leikstjórinn Teri McLuhan hefur hann heimsótt þessi
landamærasvæði Pakistan og Afganistan enda ferðast mikið á sínum 77
árum og tileinkað sér tónlistarstíla víðsvegar að úr heiminum. Hann hefur
auk þes skrifað tvær minningabækur, Vibrations og Upbeat: Nine Lives of a
Musical Cat. Fjölhæfni hans líkur þó ekki þar, því hann hefur einnig verið
þekktur fyrir að semja rímandi lagatexta á staðnum á miðjum tónleikum.
Það kemur í ljós í Ráðhúsinu mánudagskvöldið 29. september hvort hann
tekur upp á því hér, en tónleikarnir hefjast kl. 20.00.
Aðgangur ókeypis.
Þú þarft ekki fimm háskólapróf til að koma á Bílabíó, bara
bílpróf (eða keyrandi vin) og miða.
Í Bílabíóinu gefst hátíðargestum tækifæri að endurnýja
kynnin við sódómíska Reykjavík tíunda áratugarins í
Sódóma Reykjavík eftir að hafa skotist út á land með
þríeykinu óaðskiljanlega úr Dagvaktinni, en annar þáttur
Dagvaktarinnar verður frumsýndur samhliða sýningum í
sjónvarpinu. Svo er aldrei að vita nema það verði eftirpartí í
Dúfnahólum 10. Íslenskur húmor eins og hann gerist bestur
á útsöluverði fyrir utan Kringluna.
Bílabíóið fer fram á annarri hæð Kringlubílastæðisins,
28. september kl. 20:00. Öllu hljóði sýningarinnar verður
útvarpað á tíðninni 91.9. Miðaverð er 1000 kr. á hvern bíl.
Allt um
kvikmyndatónlist
Tónlist og kvikmyndir skarast sífellt oftar og nýta sömu framleiðslu- og
kynningarrásir. Samt virðast þeir sem áhuga hafa á þessum geirum eða
starfa í þeim vera illa upplýstir um hvað fer fram hinumegin borðsins. Til að
byggja brýr þar á milli hefur Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík ákveðið
að blása til ráðstefnu undir heitinu Sound on Sight. Ráðstefnan fer fram í
Norræna húsinu fimmtudaginn 2. október frá kl. 10:00 – 15:00. Þar munu
tíu vel þekktir innlendir og erlendir fagaðilar ræða málin af innsæi í þremur
ólíkum en náskyldum umræðum.
Í fyrstu lotunni er farið ofan í nýlega bylgju tónlistarheimildamynda með
velgengni Heima Sigur Rósar sem útgangspunkt. Meðal þátttakenda eru
Brad Abramson, varaforseti VH1 í Bandaríkjunum, Hanno Plate sem starfar
við ritstjórn hjá EuroArts, sjónvarpsstöð sem sýnir helst heimildarmyndir
um klassík og djass, Kári Sturluson, hérlendur umboðsmaður Sigur Rósar
og Finni Jóhannsson frá TrueNorth sem framleiddi myndina.
Í annarri lotu er fjallað um „sándtrökk“ – hvernig þau hjálpa til við að
selja myndir og öfugt – og hvernig nýjir dreifingarmöguleikar hafa breytt
landslaginu. Eric Michon frá Universal Music, sem annaðist m.a. útgáfu
tónlistarinnar úr Amélie, miðlar sinni reynslu og einnig Thomas Jamois,
sem starfar fyrir Naïve sem hefur gefið út tónlistina úr Lost in Translation,
Be Kind Rewind, Fight Club og Inland Empire. Þá mun þekktur íslenskur
kvikmyndaleikstjóri ræða sína sýn á þetta fyrirbæri.
Að lokum verður fjallað sérstaklega um réttindamál þegar tónlist og
kvikmyndir eru annars vegar og þar munu m.a. tala Mikkel Maltha, sem
hefur annast tónlistarmál fyrir Zentropa í Danmörku við framleiðslu
á Dogville og Dancer in the Dark, Veigar Margeirsson, sem er tónskáld í
Hollywood sem vann m.a. að Iron Man og No Country for Old Men, og Elisa
Luguern sem starfaði lengst af hjá EuropaCorp - framleiðslufyrirtæki Lucs
Bessons. Hún hefur m.a. unnið að Three Burials of Melquiades Estrada,
Taxi 3, Taxi 4 og Colour Me Kubrick.
Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld setur ráðstefnuna.
Fullt ráðstefnugjald er 15.000 krónur en fyrstu 15 meðlimirnir í STEF (FTT
og TÍ) sem skrá sig fá ókeypis aðgang. Örfá sæti eru eftir af þessum fimmtán.
Eftir það fá þeir aðgang á 5.000 kr. Meðlimir í FÍH fá aðgang á 5.000 krónur.
Nemar fá 50% afslátt. Hádegismatur og kaffi er innifalið í verðinu. Sendu
póst á register@riff.is hafirðu fyrirspurnir eða viljir skrá þig.
Huldar
Breiðfjörð
rithöfundur
Hvað
ætlar þú
að sjá?
Kung Fu og Páll
Óskar
Friðartónleikar með
kornungum gamlingja
Sódómískt Bílabíó
á milli vakta
Teipið gengur
And Rolling
Δ