Fréttablaðið - 25.09.2008, Side 37
Paprika Steen sækir hátíðina heim, en þessi danska
leikkona og leikstýra kemur hingað með myndina Þar til
dauðinn aðskilur okkur (Til døden os skiller) í farteskinu.
Þetta er aðeins önnur mynd Steen sem leikstjóra en
frumraun hennar í leikstýrustólnum, Lad de små
börn, fékk ekki amalegar viðtökur hjá gagnrýnendum
hérlendis og meðal annars setti Sæbjörn Valdimarsson
hjá Morgunblaðinu hana efsta á lista yfir bestu myndir
ársins 2004 í áramótauppgjöri sínu og sagði: „Danska
stórleikkonan sannar með sinni fyrstu mynd að hún
er engu síðri leikstjóri. Átakanleg og miskunnarlaus
nærskoðun á hópi fólks sem verður fyrir sárri reynslu
og hvernig það nær aftur áttum. Leikhópurinn skilar
eftirminnilegu dagsverki.“
Þar til dauðinn aðskilur okkur
Til døden os skiller
Δ
Hnattferð í bíóSíðasta lestin frá Hollywood
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík er nú haldin í
fimmta skipti og geta gestir nú valið úr um hundrað
myndum, þar af 74 í fullri lengd, frá 27 löndum.
Gestum er þannig boðið í heimsreisu í myrkum
bíósölum, allt frá Norðurpólnum til Suðurpólsins,
frá Berlín til Buenos Aires. Erlendum gestum
hátíðarinnar fjölgar líka stöðugt og því aldrei að
vita nema bíógestir geti hitt fulltrúa landanna 27
áður en yfir lýkur, því hátíðin á sér ekkert síður
stað utan bíósalsins þar sem málþing, umræður,
námskeið, fyrirlestrar og markaðstorg verða út um
allan bæ – og svo auðvitað yfir kaffibolla þar sem
bíógestir skiptast á skoðunum á nýjustu færeysku
heimildamyndinni.
Hátíðin hefst í dag og við viljum bara minna ykkur á
að þetta er veisla, endilega troðið ykkur út af góðum
bíómyndum og njótið þess svo að liggja á meltunni,
þetta er hnattferð þar sem þið þurfið ekki að hafa
áhyggjur af því að krónan sé að hrynja.
Einhverjum kann að þykja löng leið frá alter-egói Charles
Bukowski, túlkuðum af Matt Dillon, í 67 ára gamlann
norskan lestarstjóra, en þá leið fór norski leikstjórinn
Bent Hamer þegar hann fetaði sig aftur heim til Noregs
frá Hollywood. En Odd Horten, sem gefur opnunarmynd
hátíðarinnar nafn sitt, virðist þó þegar nánar er gáð sama
ólíkindatólið og Bukowski. Hann týnir pípunni sinni,
sofnar í gufubaði og týnist á f lugvelli – og á einhvern
einkennilegan hátt vofir dauðinn alltaf yfir, eða eru það
bara yfirvofandi ellilaunin?
≥
Dönsk dama og
dramatík
Fréttabréf
Upplýsingamiðstöð hátíðarinnar er í
bókabúðinni Iðu við Lækjargötu 2 og
þar er hægt að kaupa miða á hátíðina
og ýmsar aðrar vörur henni tengdar.