Fréttablaðið - 25.09.2008, Side 59
FIMMTUDAGUR 25. september 2008 33
...www.rannis.is/visindavaka
Þátttakendur á Vísindavöku 2008
Háskóli Íslands • ReykjavíkurAkademían • Hafrannsóknastofnunin • Össur hf. • Nimblegen • Listaháskóli Íslands • Matís • Háskólinn á Bifröst
Hjartavernd • Hexia, Síminn og Nuance • Hafmynd • Jardin Botanique - Strasbourg France • Landbúnaðarháskóli Íslands • KINE
Laxfiskar • Veðurstofa Íslands • ÍSOR - Íslenskar orkurannsóknir • Nýsköpunarmiðstöð Íslands • Náttúrufræðistofnun Íslands
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness • Háskólinn í Reykjavík • MIRRA • Háskólinn á Akureyri RHA - Rannsókna-
og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri • RES - Orkuskólinn • Rannís
MENNTAMÁLA
RÁÐUNEYTIÐ
IÐNAÐAR
RÁÐUNEYTIÐ
Allir velkom
nir!Láttu sjá
þig
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 25. september
➜ Kvikmyndir
RIFF Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík hefst í dag og mun standa
til 5. okt. Nánari upplýsingar á www.
riff.is.
➜ Tónleikar
19.45 Buff leikur í Viðeyjarstofu
órafmagnaða tónlist. Miðinn kostar
2000.- og er ferjutollur innifalinn.
Hægt er að tryggja sér miða á
www.elding.is. Sætafjöldi er tak-
markaður. Farið er frá Skarfabakka
kl. 19.45 og komið til baka kl.22.00.
➜ Útgáfutónleikar
21.00 Sökudólgarnir halda út -
gáfu tónleika á Kaffi Rósenberg við
Klapparstíg.
➜ Fyrirlestrar
17.00 Ísland er ekki
líkt tunglinu Ingólfur
Ásgeir Jóhannesson
flytur hugleiðingar um
þjálfun tunglfara á
Íslandi.Akureyrar-
Akademían, Þór unn-
arstræti 99, Akur-
eyri.
➜ Uppákomur
20.00 KINKI - Skemmtikraftur
að sunnan. Einsöngleikur Lýðveldis-
leikhússins um skemmtikraftinn Kinki
Geir Ólafsson verður sýndur í tónlist-
arhúsinu Salnum, Hamraborg 6.
➜ Tónlist
20.00 Markus Zahnhausen
blokk flautuleikari heldur tónleika
í Skálholtsdómkirkju. Að auki koma
fram Hrólfur Sæmundsson barítón-
söngvari og Herdís Anna Jónasdóttir
sópransöngkona sem flytja ásamt
Hilmari Erni Agnarssyni íslensk lög.
Skálholtsdómkirkjan, Skálholti.
➜ Myndlist
Sólveig Eggertz Pétursdóttir sýnir
akrýlmyndir á Hrafnistu, menningar-
sal á 1. hæð. Sýningin er opin alla
daga og stendur til 10. nóv. Hrafnista,
Hafnarfirði.
➜ Viðburður
20.00 Stefnumót hönnuða og
bænda Nemendur og kennarar í
vöruhönnun við Listaháskóla Íslands
hafa unnið í samstarfi við Matís ohf,
Gunnar Karl Grétarsson og Örvar
Birgisson, að þróun nýrra afurða
fyrir íslenska bændur. Afrakstur sam-
starfsins er kynnt í Hafnarhúsinu,
Tryggvagötu.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Skrímslapest er fjórða bókin um skrímslin tvö sem eiga sér ótal
aðdáendur í
heimalöndum
höfundanna:
Íslandi, Svíþjóð
og Færeyjum.
Áslaug Jónsdóttir,
Kalle Güettler og
Rakel Helmsdal
skapa þessar
skemmtilegu,
fyndnu en jafn-
framt lærdóms-
ríku sögur sem
allir krakkar ættu
að hafa gaman af.
Þegar stóra skrímslið fær skrímslapest
heimsækir litla skrímslið auðvitað vin
sinn. En mikið er erfitt að gera stóra
skrímslinu til hæfis þegar það er lasið!
Nú reynir sannarlega á vináttuna.
Fyrsta bókin, Nei! Sagði litla skrímslið,
hlaut Dimmalimm – Íslensku mynd-
skreytiverðlaunin og Stór skrímsli
gráta ekki var sæmd Barnabókaverð-
launum menntaráðs Reykjavíkur. Mál
og menning gefur út.
Smásagnasafnið At og aðrar sögur geymir sextán nýjar og spenn-
andi draugasögur sem ætlaðar eru
lesendum frá 9 ára aldri og kemur
út í tengslum
við alþjóðlegu
barnabókahátíð-
ina Draugur úti í
mýri, sem haldin
var í Norræna
húsinu nú í
september. Bókin
er afrakstur smá-
sagnasamkeppni
sem Forlagið og
barnabókahátíð-
in Mýrin stóðu fyrir fyrr á þessu ári.
Alls bárust 106 sögur í samkeppnina
og úr þeim valdi dómnefnd þrjár til
að verðlauna og þrettán til viðbótar
til birtingar í bókinni. Fyrstu verð-
laun hlaut sagan At eftir Guðmund
Brynjólfsson, Rauð húfa eftir Kristínu
Helgu Gunnarsdóttur hafnar í öðru
sæti og Allra sálna messa eftir Iðunni
Steinsdóttur í því þriðja. Aðrar sögur
í bókinni eru ýmist eftir þekkta
höfunda eða nýliða. Mál og menning
gefur út.
Síðan tónskáldið Sergei Prokofief samdi söguna um Pétur og úlfinn
fyrir Barnaleikhúsið í Moskvu árið
1936 hefur hún heillað börn og full-
orðna um allan heim. Pétur býr í litlu
húsi með
garði í kring.
Utan garðs-
ins er stórt
grænt engi
og lengra
er dimmur
skógur.
Pétur má
ekki fara út
úr garðin-
um. Það er
harðbannað.
Afi hans segir að úlfurinn geti komið
og hann er hættulegur. Hér birtist
þessi sígilda saga á nýjan leik en með
myndum úr vinsælum brúðuleik sem
Bernd Ogrodnik hefur sýnt í Þjóðleik-
húsinu og leikskólum víðs vegar um
landið. Myndvinnsla og hönnun var
í höndum Kristínar Maríu Ingimars-
dóttur.Íslensk þýðing er eftir Birnu
G. Bjarnleifsdóttur. Mál og menning
gefur út.
NÝJAR BÆKUR FYRIR BÖRN
Ekvadorsk menningarhátíð verð-
ur haldin í Kópavogi dagana 4.-11.
október næstkomandi. Eitt aðalat-
riði hátíðarinnar verður skemmti-
leg fjölskyldusýning dansflokks-
ins Jacchigua, sem er ekki aðeins
frægur í Ekvador heldur þekktur
um allan heim fyrir fjörlegar og
litaglaðar danssýningar sýnar.
Í Jacchigua eru um þrjátíu
dansarar, auk fimm manna hljóm-
sveitar. Flokkurinn hefur meðal
annars ferðast um heiminn á
vegum Sameinuðu þjóðanna og
dansað á stórum hátíðum. Hópur-
inn kom til að mynda fram við
setningu heimsmeistarakeppn-
innar í knattspyrnu árið 2006.
Sýningar Jacchigua verða í
Salnum í vikunni 4.-11. október,
en miðasala á þær er þegar hafin
hjá miðasölu Salarins og á www.
midi.is. - vþ
Dansar frá Ekvador
JACCHIGUA AÐ STÖRFUM Litagleði ein-
kennir þennan dansflokk frá Ekvador.